Morgunblaðið - 27.01.2014, Page 6
6 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2014
kaffivélar fyrir heimili og vinnustaði
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |www.eirvik.is
„Það er ánægjulegt að menn skuli
leysa þetta í heimabyggð,“ segir
Stefán Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Ísfélags Vestmannaeyja, en
félagið hefur gert samning um kaup
á öllum hlutabréfum í útgerðarfélag-
inu Dala-Rafni ehf., sem gerir út
togbátinn Dala-Rafn VE 508. Bát-
urinn var smíðaður í Póllandi árið
2007 og eru aflaheimildir félagsins á
yfirstandandi fiskveiðiári tæp 1.600
þorskígildistonn. Öll áhöfn bátsins
fylgir með í kaupunum.
Kaupin eru liður í hagræðingar-
aðgerðum Ísfélags Vestmannaeyja,
ekki síst í kjölfar sífellt aukinnar
skattheimtu stjórnvalda á útgerðar-
félög, segir í fréttatilkynningu frá
fyrirtækinu. „Er sú skattlagning
komin út fyrir öll mörk þess sem
getur talist sanngjarnt og eðlilegt.
Með kaupunum styrkir Ísfélagið
mjög veiðar og vinnslu félagsins á
bolfiski. Ísfélagið rekur fjölþætta
fiskvinnslu í Vestmannaeyjum og á
Þórshöfn,“ segir meðal annars í til-
kynningunni. agf@mbl.is
Ísfélag Vestmannaeyja
kaupir Dala-Rafn VE
Báturinn Dala-Rafn VE-508 er kom-
inn með nýja eigendur í Eyjum.
Liður í hag-
ræðingu í rekstri
Áhöfnin fylgir með
» Ísfélag Vestmannaeyja ehf.
er elsta starfandi hlutafélag
landsins, stofnað 1901.
» Allir skipverjar Dala-Rafns
VE 508 fylgja með í kaupunum,
en ekki kemur fram hvað Ís-
félagið greiðir fyrir Dala-Rafn.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Rafmagnsvagnar frá fyrirtækinu
Yutong Eurobus voru með lægsta
tilboðið í útboði vegna endurnýjunar
strætisvagna hjá Strætó bs. sem
opnað var nýverið á Innkaupaskrif-
stofu Reykjavíkurborgar.
Tilboð Yutong Eurobus hljóðaði
upp á tæpar 109 milljónir fyrir raf-
magnsvagn, en næsta tilboð á eftir
var upp á tæpar 113 milljónir fyrir
dísilvagn.
Magnús Gíslason, sölustjóri Yu-
tong Eurobus, segir það ánægjuleg
tímamót að nú sé hægt að bjóða upp
á rafmagnsvagna á betri kjörum en
sambærilega vagna sem gangi fyrir
jarðefnaeldsneyti. „Útboðið miðar
við útreiknaðan líftímakostnað
strætisvagns á 10 ára tímabili, þ.e.
kaupverð og rekstur vagnsins yfir 10
ára tímabil,“ segir Magnús og bend-
ir á að mest muni um reksturinn á
vagninum. „Bæði gengur rafmagns-
vagninn fyrir ódýrari orkugjafa og
er ódýrari í rekstri þar sem hann
hefur færri íhluti. Það er t.d. enginn
gírkassi eða flókin bílvél.“
Spennandi kostur
Um er að ræða kaup og rekstur á
30 til 40 strætisvögnum á næstu
fjórum árum og því töluverð bylting
að eiga sér stað ef gengið verður til
samninga um kaup á svona fjölda
rafmagnsvagna fyrir Strætó. Einar
Örn Benediktsson, borgarfulltrúi
Besta flokksins og stjórnarformaður
Strætó bs., segist ekki vilja tjá sig
um útboðið sjálft, enda sé enn verið
að skoða gögn og upplýsingar frá að-
ilum og ekki verið tekin ákvörðun
um við hvern verði samið. „Það er
spennandi kostur að hægt sé að fara
yfir í orkuskipti á svona mikilvægum
faratækjum eins og strætó og ef
þetta er að verða þróunin þá er það
hið besta mál, sama hver síðan nið-
urstaðan af útboðinu verður,“ segir
Einar.
Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs., segir að verið sé að
meta tilboðin en horft sé til fleiri
þátta en bara verðs. „Auðvitað horf-
um við jákvæðum og björtum augum
á þá þróun sem er að eiga sér stað í
rafmagnsbílum en nú eru tilboðin í
matsferli þar sem m.a. er horft til
verðs og áreiðanleika og ég get ekki
tjáð mig um niðurstöðu útboðsins á
þessari stundu,“ segir Reynir.
Rafmagns-
vagnar ódýr-
astir í útboði
Líftímakostnaður rafmagnsvagna er
minni en sambærilegra dísilbíla
Morgunblaðið/Ómar
Bílar Strætó gæti tekið í notkun 30
til 40 rafmagnsvagna á næstu árum.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Þetta er orðið daglegt brauð. Við
skerum niður í öllum liðum embætt-
isins. Það er ekki ein aðgerð sem
dugir þegar spara á tugi milljóna
króna í rekstri,“ segir Snorri Olsen
tollstjóri. Embætti tollstjóra hefur
staðið frammi fyrir árlegum niður-
skurði frá árinu 2008.
Samkvæmt fjárlögum fyrir árið
2014 er embættinu á ný gert að
skera niður í rekstri. Hagræðingar-
krafan er um tæp 2 prósent.
Snorri bendir á að það sé ekki al-
veg einfalt að reikna út hver raun-
verulegur niðurskurður til embætta
sé. Það sé vegna þess að oft komi á
móti fjárveiting fyrir önnur sérverk-
efni til embættisins.
„Ef ég vil láta þetta líta illa út, þá
get ég sagt að við höfum verið skorin
niður um 8-9% á þessu ári. Það væri
engin lygi en kannski bara hálfur
sannleikur. Inni í þeirri tölu er 150
milljóna króna IPA-styrkur sem átti
að koma en kemur ekki.“ Snorri seg-
ir embættið ekki vera undanskilið
hagræðingarkröfu ríkisins þegar
stefna á að hallalausum fjárlögum á
árinu 2014.
Spurður út í hvað áhrif þetta hafi á
starfsemina segir hann: „Þrátt fyrir
að farþegum sem koma í gegnum
Keflavík hafi fjölgað síðustu ár þá
hefur starfsmönnum þar ekki fjölg-
að. Það sama má t.d. segja um toll-
verði á tollpósti þrátt fyrir aukið
áhættumat á þeirri starfsemi. Þeim
hefði verið fjölgað ef allt ástand hefði
verið eðlilegt,“ segir Snorri en ítrek-
ar að brýnasta hlutverkið sé alltaf að
forgangsraða verkefnum. Þetta eigi
við um eftirlit og innheimtu opin-
berra gjalda.
Ekki verður ráðið inn í störf sem
losna og tímabundnar ráðningar
starfsmanna ekki framlengdar.
Þá segir hann að stöðugt verði að
bæta stjórnsýsluna og beita nýrri
tækni. Í þessu samhengi bendir
hann á að rafræn samskipti hafa
aukist sem eru vinnusparandi.
Hann segir að niðurskurðurinn
hafi ekki haft veruleg áhrif á starf-
semina. „Við sjáum það t. d. bæði í
tölum um innheimtuárangur og
einnig á tölum yfir fíkniefni sem við
höfum lagt hald á,“ segir Snorri og
bætir við: „Auðvitað vill enginn
missa fjárheimildir en við stöndum
frammi fyrir því. Það er alltaf auð-
velt að væla en við þurfum að finna
leiðir til að spara.“
Ekki ráðið í störf sem
losna hjá tollstjóra
Niðurskurðurinn „daglegt brauð“, segir tollstjóri
Ljósmynd/Þorgils Jónsson
Tollverðir Frá fundi tollvarða í
Leifsstöð árið 2008.
„Ef Strætó á að endurspegla
skipulag og grænar áherslur
Reykjavíkurborgar er augljóst mál
að reyna verður við rafmagns-
vagna að einhverju leyti,“ segir
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
„Öll sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu eru með grænar áherslur
svo mér finnst þetta borðliggjandi.
Fulltrúi Reykjavíkurborgar í
Strætó bs.hlýtur því að leggja mik-
inn þunga og áherslu á þetta mál.“
Þorbjörg Helga segir að borgin
verði að þora að taka skref inn í
framtíðina sér í lagi þegar um
lægsta tilboð sé að ræða.
Augljós valkostur fyrir Strætó
GRÆNAR ÁHERSLUR SVEITARFÉLAGA
Álftirnar flykktust á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi um
helgina og engu líkara en að afkomendur Svandísar,
hinnar frægu álftar frá Bakkatjörn, væru saman-
komnir á nokkurs konar ættarmóti, eða álftamóti.
Álftir flykktust á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/Ómar
Afkomendur Svandísar á ættarmóti