Barnablaðið - 25.01.2014, Qupperneq 5
ekki háar í loftinu þegar þær
dar í fylgd með foreldrum sín-
dssyni. Að þeirra sögn kunnu
r sem þær sátu fyrir framan
ríða út - og standa jafnvel
tur í hesthúsi fjölskyldunnar
la.
ann líka og að standa á hestum.
Elva: Mér finnst skemmtilegast að fara í
eiðhöllina, í reiðtúr og að keppa. [Guðný
ekur undir þetta síðastnefnda]
Hafið þið aldrei verið neitt hræddar?
Báðar: Nei!
Hafið þið lent í einhverju óvenjulegu á
hestunum?
Guðný: Ja, ég hef dottið af baki og
handleggsbrotnað.
Elva: Ég hef líka dottið af baki - einu sinni.
Og voruð þið ekkert hræddar við að fara
aftur á bak?
Báðar: Nei nei.
Guðný: Ég fór aftur á bak áður en ég
osnaði við gifsið (bara rétt áður).
Hvað er nauðsynlegt ef maður vill vera
góður knapi?
Guðný: Að vera duglegur að fara á
hestbak, á reiðnámskeið og nota hjálm.
Elva: Já og vera góður við hestana.
Guðný: Ég er búin að fara á fullt af
reiðnámskeiðum.
Hvað er nauðsynlegur búnaður fyrir
krakka sem vilja vera í hestamennsku?
Guðný: Hjálmur, hestaskór eða reiðstígvél,
reiðbuxur...
Elva: Hlý peysa og úlpa og góðir reiðvett-
lingar.
Guðný: Líka buff - undir hjálminn.
Er eitthvað sem hestar vilja ekki?
Elva: Þeir vilja ekki láta kitla sig, þeim
finnst það óþægilegt, verða bara pirraðir.
Guðný: Það má heldur ekki stríða
þeim.
Þið nefnduð hestaskóla - getið þið
sagt mér aðeins frá honum?
Guðný: Já, hann er á Hólum í Hjaltadal
- þar er frænka mín, Dísa, að vinna en
hún er reiðkennari. Við fáum stundum
að fara og hjálpa henni í svona
hestastússi og fylgjast með.
Elva: Við fáum að fara með flugvél og
vera þar síðan og fylgjast með í nokkra
daga.
Hvað með önnur áhugamál - eigið þið
einhver önnur áhugamál?
Elva: Já - fimleika. Ég er að æfa hjá
Stjörnunni tvisvar í viku.
Guðný: Já, ég líka.
Hvernig fer þetta saman - fimleikarnir
og hestamennskan?
Báðar: Bara vel!
Guðný: Fimleikarnir hjálpa manni með
jafnvægið á hestunum og maður er líka
sterkari.
Og þið ætlið að halda áfram á hestunum?
Báðar: Já!
Guðný: Mér finnst gaman að keppa - núna
keppum við á pollamótum en þegar
maður er svona 10 ára má maður fara að
keppa í stærri keppnum.
Eru vinir ykkar líka í hestamennskunni?
Guðný: Ja, við höfum eiginlega „hesta-
vætt“ bekkina okkar. Við höfum nokkrum
sinnum boðið þeim hingað upp í hesthús,
sumir hafa líka komið oft.
Elva: Já, ég var til dæmis með bekkinn
minn í síðustu viku.
Þið eigið svo eina systur í viðbót - haldið
þið að hún komi líka í hestana?
Guðný: Já, Kristín Rut - hún er að verða
tveggja ára.
Elva: Hún er allaveganna búin að fara á
bak, með mömmu og pabba.
Hvað með framtíðina - vitið þið hvað
ykkur langar til að vinna við?
Guðný: Ég myndi vilja vinna við að temja
hesta.
Elva: Mig langar bara til að verða dýrakona
- við erum líka með hund hérna, Badda, og
köttinn Álf.
flaust í
systirin
inn“
BARNABLAÐIÐ 5
Elva með Hvata frá
Saltvík og Guðný með
Seif frá Flugumýri.
Elva æfir sig
að standa.
Guðný stendur
á baki.
Ljósmyndir: Þórður Arnar Þórðarson