Morgunblaðið - 28.02.2014, Page 6

Morgunblaðið - 28.02.2014, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014 Loðnuskipin hafa síðustu daga ver- ið að veiðum á norðanverðum Faxaflóa og voru þau í gær um 14 mílur suðvestur af Malarrifi. Veiðar hafa gengið ágætlega, en mest hef- ur verið veitt úr einni þéttri torfu og hafa skipin ekki öll getað at- hafnað sig á sama tíma. Loðna er trúlega jafnframt gengin inn í Breiðafjörð, en veður hefur komið í veg að hægt hafi verið að kanna miðin þar. Kappkostað er að nýta loðnu- hrognin sem allra best og eru þau fryst víða um land, m.a. í Reykja- nesbæ, á Akranesi, í Vest- mannaeyjum, á Vopnafirði og um borð í vinnsluskipunum. Loðnan drepst að mestu að lokinni hrygn- ingu, en útgerðarmaður sem talað var við í gær sagði erfitt að segja fyrir um hversu mikið væri eftir af vertíðinni. Ekki sé óalgengt að botninn detti úr veiðunum um miðj- an mars, en engar tvær vertíðir séu eins. Þá sé líklegt að enn eigi nokk- uð af loðnu eftir að ganga inn í Faxaflóa og Breiðafjörð. aij@mbl.is Að veiðum suðvestur af Malarrifi Ljósmynd/Börkur Kjartansson Við Snæfellsnes Vel gekk hjá skipverjum á Lundey NS síðdegis á miðvikudaginn. Þeir köstuðu þrisvar og fengu um þúsund tonn. Fjær má sjá Álsey VE. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Þetta er mjög atvinnuskapandi,“ segir Guðmundur J. Guðmundsson, framleiðslustjóri Saltvers í Reykjanesbæ, um vinnslu loðnuhrogna. „Vanalega erum við hérna með saltfiskvinnslu og tæplega fimmtán manns í vinnu. Þegar loðnan skellur á er- um við hins vegar með tæplega fimmtíu, fyrir utan iðnaðarmenn og allt annað sem er í kringum þetta,“ segir Guðmundur og bætir við að Saltver hafi verið rótgróið fjölskyldufyrirtæki í um hálfa öld. Vinnsla hrognanna fer fram á tveimur stöðum hjá Saltveri. Loðnunni er landað í Helguvík, þar sem hún er skorin, hrognin skilin frá og hreinsuð áður en þau eru sett í kör. „Þau kör eru flutt til okkar í Njarðvík og eru látin standa í tólf og allt að 24 tíma eftir því hvað þau eru þroskuð.“ Eftir það er þeim pakkað inn og fryst til útflutnings. Loðnuvertíðin stendur í um það bil mánuð og eru það mikið til nemar sem stökkva til í vinnu meðfram skóla, og leggja þeir hart að sér. Guðmundur segir vaktirnar hjá skólafólkinu langar. „Þessir krakkar eru ótrúlega duglegir. Þeir koma hingað um kl. sjö á kvöldin og fara ekki fyrr en um kl. sex á morgnana, og þeir geta haft mikið út úr þessu,“ segir Guð- mundur. Það eru þó ekki bara nemar sem sækja vinnu í tengslum við hrognavinnsluna. „Það er fullt af fólki sem kemur hingað annars staðar frá og tekur þetta sem aukavinnu, og það eru færri sem komast að en vilja,“ segir Guðmundur að lokum. Loðnunni landað Loðnuskipið kemur frá Tasiilaq í Grænlandi en það landar í Helguvík, þar sem hrognin eru skilin frá loðnunni fyrir frystingu. Að löndun lokinni er haldið strax aftur út. Morgunblaðið/Ómar Loðnuvindur Árni mokar hrognunum úr hrognaskiljunum, eftir að búið er að hreinsa þau og skilja blóðvatn og annað frá. Fjölgar úr fimmtán í fimmtíu Skolun Jón á slöngunni skolar loðnuskilju. Eftir löndun fer loðnan í gegnum skiljuna áður en hún fer í gegnum skurðarvélar. Að því loknu eru hrognin skilin frá loðnunni til frekari vinnslu.  Loðnuvertíðin hefur í för með sér mikla atvinnu hjá Saltveri  Færri sem komast að en vilja  Framleiðsluferlið hefst í Helguvík og lýkur í Njarðvíkum  Saltver fjölskyldufyrirtæki í 50 ár Loðnuvertíðin nálgast hámark og reynt að frysta sem mest af hrognum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.