Barnablaðið - 08.02.2014, Blaðsíða 7
BARNABLAÐIÐ 7
Drátthagi blýanturinn
Hjálpaðu Eddu að finna leiðina til Hafsteins og Þrastar, svo að þau
geti rennt sér saman.
Fuglar í eggi
Hér eru nokkrir ungar. Hverjir þeirra haldið þið að
kæmust fyrir í egginu til hliðar, án þess að skaga
einhvers staðar út fyrir línur þess?
Lausn aftast.
Væru öll
dagblöð, sem
koma út á
einum degi á
jörðinni, lögð
saman í einn
bunka væri
sá himinhár.
Hann væri
meira að
segja hærri
en fjallið
Mont Blanc,
hið hæsta í
Evrópu, sem
er 4.810
metra hátt!!
Blaðafjall Í hvaða fjalli?
Steinar er mjög klár á snjóbretti. Sérð þú í hvaða fjalli
hann hefur gaman af því að renna sér hér?
S
K
Á LA
F
E
L
L
Völundarhús Origami
Ólympíuhringir
Ólympíuhringirnir fimm, á hvítum fleti, eru eitt þekktasta merki í heimi.
Litirnir sex, að þeim hvíta meðtöldum, eiga m.a. að tákna fána allra landa á
jörðinni - enda eiga leikarnir að vera samkoma og keppni bestu íþróttamanna
heims, hvaðan svo sem þeir koma og hvernig svo sem bakgrunnur þeirra er.
Þú getur auðveldlega föndrað þitt Ólympíumerki.
Það sem þarf er:
6 x ferköntuð blöð (jöfn á allar hliðar),
eitt í hverjum ólympíulitanna (þ.e. gult,
rautt, grænt, blátt, svart og hvítt. Líka má
lita hvít blöð, þá báðum megin)
Skæri
Límstifti eða límband
Aðferð:
1. Byrjið á að brjóta bláa blaðið saman í
fernt og takið aftur í sundur. Klippið eftir
miðjulínunni í tvo helminga.
2. Brjótið næst hvorn helming saman í
þrennt - þannig að liturinn snúi út báðum
megin og þeir myndi tvær langar, mjóar,
holar ræmur.
3. Brjótið varlega báða enda inn á við, þan-
nig að þeir snúi niður, eins og myndin sýnir.
Gerið eins við hinn renninginn.
4. Sameinið helmingana tvo núna, með
því að renna endum annars þeirra inn í
opnu endana á hinum. Setjið smá-lím inn í
samskeytin svo að „hringurinn“ haldist vel
saman.
5. Endurtakið með næsta lit. Áður en þið
tengið helmingana tvo saman, látið annan
þeirra fara í gegnum fyrsta hringinn. Þannig
„lykkjast“ hringirnir saman.
6. Þegar allir hringirnir eru tilbúnir og lyk-
kjaðir saman má líma þá á hvítan pappír
- þá er merki leikanna komið!