Morgunblaðið - 21.03.2014, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
BÍLASÝNING GENF 2014
Sá smábíll sem vakti einna mesta
athygli í Genf var alveg nýr Re-
nault Twingo. Káetan er stærri en
búast má við í svona litlum bíl, en
hann er aðeins 3.590 mm langur.
Ástæðan er sú að vélinni er fyrir
komið aftur í bílnum. Hann er 100
mm styttri en gamli Twingo en
fjarlægðin frá mælaborði að aftur-
hurð er samt 220 mm lengri. Far-
angursrými er 220 lítrar og þar
sem hægt er að fella niður fram-
sæti er hægt að flytja hluti sem
eru allt að 2,2 metra langir. Vél-
arnar í boði eru tvær, eins lítra
þriggja strokka SCe-vélin sem
skilar 70 hestöflum og svo TCe-
vélin sem er aðeins minni eða 0,9
lítra. Hún er þó öflugri þar sem
hún fær túrbínu og skilar því 90
hestöflum og 135 Newtonmetrum
af togi. njall@mbl.is
Ný kynslóð
Twingo
Renault hefur áratuga reynslu af því að
smíða bíla sem eru knáir þó þeir séu smáir
AFP
Risastór Renault settu smábílinn Twingo í nýtt samhengi á bílasýningunni í Genf með því að bera hann saman við módel af sama bíl. Twingo ku hafa innanrými sem kemur á óvart.
Yfirgnæfandi Ný kynslóð Renault Twingo með vélina afturí vakti verðskuldaða athygli á sýningunni. Bíllinn er
styttri en forverinn en með því að færa vélina aftur í hafa framleiðendur búið til meira farþegarými.
Adam S er tilraunaútgáfa af smá-
sportara frá Opel sem stutt er í að
fari í framleiðslu. Þessi sportlegi
smábíll er með túrbínu en vélin er
fjögurra strokka 1,4 lítra vél sem
spýtir út 150 hestöflum og skilar
ágætis togi líka eða 220 Newton-
metrum. Undir bílnum eru alvöru
bremsur úr OPC með 16 tomma
diskum að framan. Búið er að
breyta undirvagni og gera hann
stífari og einnig að dobbla stýrið
meira eins og það heitir á bílamáli.
Til að koma fyrir stórum OPC-
bremsunum er hann á 18 tomma
felgum svo hann er ansi verklegur
ásýndum. Auk þess er stór vængur
fyrir ofan afturglugga sem setur
mikinn svip á hann. Innandyra er
leður í fyrirrúmi og Recaro sport-
sæti frammí sem eru ásamt stýri,
gírstöng og handbremsu með
rauðum ísaumi. Ekki fæst gefið
upp hversu fljótur hann er í
hundraðið en hámarkshraðinn er
220 km á klst. Opel frumsýndi
einni Adam Rocks í Genf en hann
er 15 mm hærri en hefðbundni
bíllinn og ætti því að henta vel ís-
lenskum kaupendum. Hægt verður
að fá hann með rafdrifnum tau-
toppi. Vélarnar eru glænýjar
þriggja strokka Opel-vélar, eins
lítra með túrbínu og skilar önnur
90 hestöflum en hin 115 hestöflum.
njall@mbl.is
AFP
Sportlegur Opel Adam S er ansi sprækur að sjá á 18 tomma felgunum og
gaman verður að sjá hvort bíllinn fari óbreyttur í framleiðslu.
Sportúgáfur Opel
Adam-smábílsins
Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is
Komdu og
veldu þér kubba
eftir litum
- 12 mismunandi
tegundir í boði
Plus-Plus bar í Krumma