Barnablaðið - 12.04.2014, Side 5
BARNABLAÐIÐ 5
o opinn og
svo mikið af
að leika hann?
heillast af
Spurðir þú margra spurninga þegar þú varst lítil?
Já, auðvitað. Það er svo margt í þessum heimi sem
manni finnst skrítið og skilur ekki og þá verður
maður að spyrja til að átta sig betur á heiminum.
Heldur þú að það séu mörg börn þarna úti sem
velta hlutunum mikið fyrir sér – lífinu og tilverunni
– eins og litli prinsinn? Áttu einhver góð ráð
handa þeim?
Já, það er partur af því að vaxa og þroskast að velta
hlutunum fyrir sér. Fullorðið fólk getur stundum
verið svo skrítið og
gerir undarlega hluti
sem börn skilja ekki.
Mitt ráð er að vera
aldrei feimin og spyrja
allra þeirra spurninga
sem brenna á vörum
okkar. Engin spurning
er ómerkileg eða
kjánaleg.
Þú átt litla stelpu,
sem fæddist á
meðan á æfingatíma
leikritsins stóð.
Heldur þú að þú eigir
eftir að segja henni
frá litla prinsinum
þegar hún stækkar?
Já, ég hlakka
mikið til að segja
henni söguna af
litla prinsinum
og ævintýrum hans. Svo ætla ég að taka til mín
boðskap litla prinsins og reyna að læra eins mikið
og ég get af stelpunni minni. Börn eru nefnilega
sönnustu og einlægustu manneskjur sem til eru.
Eitthvað að lokum?
Mig langar til að segja ykkur frá leyndarmálinu
sem refurinn sagði Litla prinsinum, það er mjög
einfalt: Maður sér ekki vel nema með hjartanu. Það
mikilvægasta er ósýnilegt augunum.
ns
skap
enda saga hans
ne de Saint-Exupéry,
n kom fyrst út
tli prinsinn mætti
ægt að sjá þessa
eð hlutverk prinsins
nánar út í kynnin af
veruna.