Barnablaðið - 12.04.2014, Side 6
BARNABLAÐIÐ6
Nafn: Gunnlaug Eva Árnadóttir
Aldur: 5 en alveg að verða 6 ára
Skóli: Ísaksskóli
Áhugamál: Finnst gaman
að teikna og reikna. Einnig
æfi ég fimleika og söng.
Síðan finnst mér rosalega
gaman að fara á skíði með
fjölskyldunni minni og
leikhús. Ég hef líka mjög
gaman af að fara á hest-
bak og upp í hesthús hjá
stóru systur minni Jónínu.
Hvaða bók/bækur ertu
að lesa í augnablikinu
og hvernig finnst þér
hún? Ég er að lesa Kuggur
7 – Gleðilegt sumar eftir
Sigrúnu Eldjárn. Fannst
hún rosalega skemmtileg,
teikningarnar í þeirri bók
eru svo flottar.
Hvernig bækur finnast þér skemmtilegastar?
Ævintýri eru í miklu uppáhaldi hjá mér – og finnst
þær skemmtilegastar.
Uppáhalds-sögupersóna? (og hvers vegna?)
Grísirnir þrír, vegna þess að mér finnst mjög
skemmtilegt að hlaupa eins og
grísirnir og líka hvað grísirnir eru
góðir að gabba úlfinn.
En uppáhaldsrithöfundur? Það
er hún Sigrún Eldjárn vegna
þess að ég var að læra um
hana í skólanum mínum.
Hvar finnst þér best að lesa?
Á bókasafninu, uppi í sófa og í
rúminu mínu.
Á hvaða bókasafn ferð þú
helst? Bókasafnið í Kópavogi.
Lastu einhverja jólabók um
síðustu jól (ef já, hvernig fannst
þér hún)? Já, ég las Jólaandann eftir
Góa leikara, fannst hún mjög góð.
Ef þú mættir velja þrjár bækur sem þér finnst
að allir ættu að lesa, hvaða bækur yrðu fyrir
valinu? Skúli skelfir númer 3, Herra Sterkur &
Fjársjóðskistan: Fimm mínútna ævintýri.
Finnst skemmtilegast að lesa ævintýri
Á hestbaki
Lestrarhestur mánaðarins
Hvað passar? Stafarugl
1. Bræðið smjör, súkkulaði og síróp
saman í skál yfir vatnsbaði (passið
að vatnið komi ekki nálægt
blöndunni). Hrærið vel saman.
2. Takið af hitanum og blandið
morgunkorninu saman við
súkkulaðiblönduna. Hrærið vel.
3. Skiptið næst blöndunni með
skeið í 12 múffuform – gott er að
hafa þau í múffubakka.
4. Notið skeiðina (eða puttana, ef
ekki of heitt) til að gera smá-dæld
í „hreiðrin“.
5. Kælið á bakka í ísskáp í
ca. 1 klst.
6. Raðið næst ca. þremur
súkkulaðieggjum í hvert „hreiður“
og setjið aftur inn í kæli.
7. Eftir annan klukkutíma má
gæða sér á góðgætinu.
Hvert af þessum fjórum stykkjum hér passar
inn í myndina af litla Mexíkananum?
Lausn aftast.
Uglur í skógi
Súkkulaði-hreiður
Þegar vel er að gáð sjást þónokkrar uglur hér í felum í
skóginum. Sérð þú hvað þær eru margar? Lausn aftast.
Þessi frændsystkini hér eru í óðaönn
að undirbúa páskana og byrjuð að mála
hænuegg. Sérð þú hvað krakkarnir heita?
Lausn aftast.
A R
N
Þ
R
Ú
Ð
U
R
S
T
A
R
K
A
R
R
Ð
U
Það er auðvelt að búa til girnileg súkkulaðihreiður í múffuformum, fyrir páskana. Passið
bara að hafa einhvern fullorðinn viðstaddan, svo enginn brenni sig á bráðnu súkkulaði..
Það sem þarf:
Aðferð:
12 pappírs-múffuform
100 gr smjör
200 gr suðusúkkulaði
6 msk síróp
½ l morgunkorn eftir smekk
(t.d. Corn flakes eða All bran)
36 súkkulaðiegg (fást í nammibörum
flestra matvöruverslana)
Verði ykkur að góðu :)