Barnablaðið - 26.04.2014, Qupperneq 4
Vissir þú ...að ...
BARNABLAÐIÐ4
4 3
3 1
1
Gott er að nota
blýant til að
leysa þessa
þraut ef þú þarft
að stroka út vit-
leysur. Stóri fern-
ingurinn er búinn
til úr fjórum
minni ferningum.
Í hverjum litlum
ferningi eiga
tölurnar frá 1 til
4 að koma fyrir.
Eins eiga tölurn-
ar 1–4 að koma
fyrir í hverri línu,
bæði lárétt og
lóðrétt.
Krakka–Sudoku
3
Lausn aftast
Pennavinir
... venjuleg manneskja er með 10 þúsund
bragðlauka?
... íkornar verða að meðaltali 9 ára
gamlir?
... meðalfíll losar sig við 22 kíló af
úrgangi á dag – alla daga ársins?
... venjulegur maður kyngir að meðaltali
295 sinnum við hverja máltíð?
... meðal-ísjaki vegur 20 milljón tonn?
... venjulegan mann dreymir yfir
1.460 drauma á ári?
... meðal-belja framleiðir mjólk í 40 mjólkurglös dag hvern?
... ísbirnir verða að meðaltali 17 ára?
... moskítóflugur verða hins vegar sjaldnast
meira en 2 vikna?
... meðal-manneskja gengur sem samsvarar
tveimur hringjum í kringum jörðina á
lífsleiðinni?
... meðal-mannslíkaminn losar sig við
700 grömm af skinni árlega?
... venjuleg kona notar að meðaltali yfir
2,7 kíló af varalit á lífsleiðinni?
... M & M-kúlur draga nafn sitt af þeim Mars
og Murrie, sem fundu sælgætið fyrst upp?
Íshokkí-íþróttinni hefur vaxið mjög fiskur um hryá undanförnum árum og stöðugt fleiri sem æfaþessa hröðu og spennandi íþrótt. Árangur íslens
landsliðanna, bæði í kvenna- og karlaflokki, hefur
vakið athygli, enda er hokkí hraður og fjörugur leik
sem gaman er að fylgjast með.
Barnablaðið fékk að skyggnast inn á æfingu hjá 6
7. flokki Skautafélags Reykjavíkur (SR) á dögunum
var hópurinn í óðaönn að undirbúa sig fyrir síðasta
vetrarins en það fer fram í Laugardalnum um helgi
Verður ekki annað sagt en að mikið líf og fjör hafi
svellinu, þar sem leikmenn, vel búnir brynjum, þutu
eins og vindurinn.
Ekkert v
Daníel Arnar Stefánsson, 8 ára,
úr Háaleitsskóla, renndi sér
fimlega til Barnablaðsins, í
smá-spjall við blaðið.
Ert þú búinn að æfa íshokkí
lengi?
Já, eða svona smá. Ég
byrjaði þegar ég var 7 ára,
svo í 1 ár.
Eru fleiri í kringum þig
að æfa, eins og t.d. í
fjölskyldunni?
Nei, eiginlega ekki, ég er sá eini.
Hvernig kom það til að þú fórst að
æfa?
Ég var búinn að vita af hokkí alveg frá
því að ég var 6 ára og langaði til að
fara að æfa.
Kunnir þú á skauta áður en þú
byrjaðir?
Já, ég var eiginlega alltaf á skautum
– þess vegna langaði mig til að fara
að æfa.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
hokkí?
Mér finnst eiginlega bara
skemmtilegast að vera á skautunum,
inni á svellinu.
Hvað æfir þú oft í viku?
Við æfum þrisvar sinnum í viku,
klukkutíma í hvert skipti.
Nú eruð þið í ansi vígalegum
búningum – getur þú sagt okkur
aðeins frá búnaðinum?
Það eru stuttbuxur og stórar
stuttbuxur, þykkir sokkar, legghlífar,
hálshlíf, hjálmur, hanskar, og svo sjálf
brynjan, treyjan og skautarnir.
Er þetta ekkert þungt – er ekkert
erfitt að skauta í þessu?
Nei það er ekkert erfitt – kannski
smá-þungt inni á svellinu.
Hvað eru margir í einu íshokkí-liði í
leik?
Yfirleitt eru 5–6 inná í einu. Stundum
sjö.
Keppið þið oft?
Já svolítið, við erum einmitt að keppa
núna um helgina – þetta er síðasta
keppnin í vetur. Núna verður keppt
hér, í Skautahöllinni, og mótið er í tvo
daga.
Eru reglurnar flóknar?
Nei eða... flóknustu reglurnar eru
eiginlega um rangstöðu, það er erfitt
að útskýra þær.
Er ekkert vont að detta?
Nei nei [þjálfarinn Andri Freyr
Magnússon hafði áður upplýst
blaðamann um að allir sem æfa, fái
líka þjálfun í að detta, þannig minnki
líkur á slysum]
Hvað með önnur áhugamál?
Nei, það eru eiginlega bara
skautarnir.
Áttu þér einhvern uppáhalds
íshokkíleikmann?
Nei, eiginlega ekki – það eru vo
margir góðir.
„Búningurinn
ekkert svo þungur“
Kæra Barnablað,
Ég heiti Hafdís og ég er að leita mér að pennavin. Áhugamálin
mín eru: að skrifa sögur, dansa, syngja, dýr, hlusta á tónlist og
leiklist.
Pennavinurinn minn má vera 10 – 13 ára. Ég er sjálf að verða
11 ára í desember.
Takk fyrir mig.
Kveðja,
Hafdís Sól
Jóhannsdóttir
Ásbrekku 5
225 Garðabær