Morgunblaðið - 14.05.2014, Side 1

Morgunblaðið - 14.05.2014, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2014 ÍÞRÓTTIR Bestur Malímaðurinn Kassim Doumbia úr FH er leikmaður 3. umferðar Pepsídeildar karla. Óhress með Gary Martin og segir hann stöðugt reyna að svindla. Ánægður með móttökurnar í Kaplakrika. 2-3 Íþróttir mbl.is Í EYJUM Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Við fórum vel yfir þrjá fyrstu leik- ina og þar kom í ljós að við erum með Haukana. Það vantaði upp á markvörsluna hjá okkur í þriðja leiknum en annars erum við með þá og við sýndum það að þessu sinni,“ sagði glaðbeittur Grétar Eyþórsson, hornamaður ÍBV, eftir að Eyjamenn skelltu ÍBV, 27:20, í fjórða leik lið- anna í Íþróttamiðstöðinni í Vest- mannaeyjum í gærkvöldi. Þar með er ljóst að það kemur til oddaleiks á milli Hauka og ÍBV um Íslands- meistaratitilinn í handknattleik karla í Schenkerhöllinni á Ásvöllum annað kvöld kl. 19.45. „Mér finnst við hafa lausnir við þeirra leik en þeir hafa færri lausnir á okkar leik. Þannig að við berum höfuðið hátt á Ásvöllum á fimmtu- dagskvöldið. Maður er búinn á því eftir svona leiki en þegar maður lít- ur upp í stúkuna og heyrir í áhorf- endum fær fólkið mann til þess að trúa að nóg sé eftir á tanknum. Á því flýtur maður áfram,“ sagði Grétar Eyþórsson, leikmaður ÍBV, en sem fyrr var stemningin meðal áhorfenda mögnuð í Íþrótta- miðstöðinni í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Vel yfir eitt þúsund áhorfendur troðfylltu húsið, þar af var vaskur hópur stuðningsmanna Hauka sem einnig lét vel í sér heyra að vanda. Erum stemningslið „Við erum stemningslið,“ sagði Róbert Aron Hostert, leikmaður ÍBV, glaður í bragði en þreyttur þegar hann gekk af leikvelli í gær- kvöldi eftir sigurinn. „Okkur var spáð 3:0-tapi í þessu einvígi en við höfum blásið á allar spár. Mætum brjálaðir til leiks á Ás- völlum á fimmtudagskvöldið. Sjálfs- traustið er sko fyrir hendi,“ sagði Róbert Aron. Vilji og stemning „Þetta var fyrst og fremst vilji, stemning og flottur handbolti,“ sagði Arnar Pétursson, annar þjálfari ÍBV, eftir sigurleikinn í Eyjum í gær. „Ég fann það strax inni í klefa að menn voru klárir í slaginn í okkar síðasta heimaleik fyrir framan okkar frábæru stuðningsmenn. Menn ætl- uðu að selja sig dýrt og sú varð og raunin,“ sagði Arnar, sem eins og nærri má geta brosti eins og sólin eftir þennan sjö marka sigur, 27:20. Spurður hvort Eyjamenn væru nú komnir í óskastöðu sagði Arnar svo vera. „Úr því sem komið var þá var þetta staðan sem við vildum komast í; oddaleikur. Það er óskastaða fyrir okkur og fyrir handboltann,“ sagði Arnar Pétursson, annar þjálfari ÍBV. Óvissa með Sigurberg Sigurbergur Sveinsson, stór- skytta Hauka og markahæsti leik- maður úrslitakeppninnar, meiddist á hné snemma í fyrri hálfleik og kom ekkert meira við sögu eftir það. Pat- rekur Jóhannesson, þjálfari Hauka, sagði það í gærkvöldi óvíst hvað væri að hrjá Sigurberg. „Við höldum að það sé í liðþófanum. Það kemur betur í ljós á morgun og enn of snemmt að segja hvaða áhrif það hefur á þátttöku hans í oddaleiknum á fimmtudaginn,“ sagði Patrekur. Um leikinn sagði hann: „Sama gerðist nú og í leik tvö. Við hörf- uðum í síðari hálfleik. Menn hættu að fara í sínar aðgerðir. Síðan hafði það mikil áhrif á okkur að geta nán- ast ekkert teflt fram tveimur af okk- ar bestu leikmönnum, Jóni Þorbirni Jóhannssyni og Sigurbergi Sveins- syni,“ sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka. Við erum komnir í óskastöðu  Leikmenn og þjálfari ÍBV eru fullir sjálfstrausts eftir að hafa unnið Hauka á heimavelli í gærkvöldi og knúið fram oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn Ólafur Andrés Guðmundsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður sænska liðsins Kristianstad, leikur í þýsku 1. deildinni á næstu leiktíð. Ólafur hefur samið til tveggja ára við Hannover-Burgdorf og mun hann ganga í raðir félagsins í sumar og verða liðsfélagi Rúnars Kárasonar. Ólafur, sem er 24 ára gamall og uppalinn FH-ingur, hefur leikið með Kristianstad undanfarin tvö ár en var þar áður í herbúðum Nord- sjælland í Danmörku. gummih@mbl.is Ólafur samdi við Burgdorf Ólafur Andrés Guðmundsson 14. maí 1989 Ísland og Austur-Þýskaland skilja jöfn, 26:26, í vináttulands- leik karla í hand- knattleik í Berlín. Óskar Þór Ár- mannsson skorar 6 mörk og Bjarki Sigurðsson 5 fyrir íslenska liðið sem hafði tapað með ellefu mörkum í leik liðanna í Magdeburg daginn áður. 14. maí 1994 Karlalandslið Íslands í körfu- knattleik sigrar b-lið Svía, 67:66, á Norðurlandamótinu í Stokk- hólmi. Teitur Örlygsson skorar 22 stig fyrir Ísland og Jón Arnar Ingvarsson 12. 14. maí 1997 Ísland sigrar Portúgal, 20:18, í vináttulandsleik í handknattleik karla í Kumamoto í Japan, átta dögum áður en heimsmeistara- mótið hefst þar. Valdimar Gríms- son er markahæstur með 4 mörk. Á ÞESSUM DEGI Annar Afríku- maður gæti bæst í leikmannahóp FH á næstu dög- um en FH-ingar hafa náð sam- komulagi við Charley Roussel Fomen, 24 ára gamlan vinstri bakvörð frá Kam- erún, sem hefur verið til reynslu hjá liðinu síðustu daga. Hann var síðast á mála hjá Clermont Foot í frönsku 2. deildinni en FH bíður eftir að fá leikheimild fyrir leikmanninn. gummih@mbl.is Kamerúni á leið til FH Charley Roussel Fomen HANDBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Meiðsli landsliðsmannsins Arons Pálmarssonar, leikstjórnanda Kiel, reyndust ekki eins alvarleg og haldið var í fyrstu en hann sneri sig á ökkla á upphafsmínútunum í viðureigninni gegn Flensburg í þýsku 1. deildinni um síðustu helgi. „Þetta gerðist á þriðju mínútu leiksins. Ég lenti á leikmanni Flens- burg og sneri mig á ökklanum. Ég var heppinn að þetta reyndist bara tognun. Þetta leit ekki vel út í fyrstu og var jafnvel haldið að liðbönd hefðu slitnað en sem betur reyndist svo ekki vera. Ég ætti með góðri meðhöndlun að ná leik okkar um næstu helgi enda megum við ekki mikið við meiðslum,“ sagði Aron við Morgunblaðið. Kiel og Rhein-Neckar Löwen berjast hart um meistaratitilinn en þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni eru liðin jöfn að stigum. Löwen stendur þó betur að vígi en markatala liðsins er betri sem nem- ur átta mörkum en endi liðin með jafnmörg stig ræður markatalan úr- slitum. Kiel á eftir útileik við Lübbecke og heimaleik gegn Füchse Berlin en Löwen á eftir Melsungen á heima- velli og Gummersbach á útivelli. „Við komum okkur sjálfir í þessa stöðu og við verðum að borga fyrir það að reyna að vinna þessa tvo leiki sem við eigum eftir með sem stærst- um mun. Löwen á kannski auðveld- ara prógramm eftir en það getur allt gerst og við stefnum á að gera eins vel og við getum. Við gætum þurft að keyra vel á Berlínarliðið í síðustu umferðinni,“ sagði Aron en Kiel er einnig með í baráttunni um Evrópu- meistaratitilinn. Liðið mætir Veszp- rém í undanúrslitum í Köln hinn 31. þessa mánaðar og í hinum undan- úrslitaleiknum eigast við Flensburg og Barcelona. Tveir titlar eru í boði „Það eru fjórir leikir eftir af tíma- bilinu og tveir titlar í boði. Þetta er það sem maður er búinn að vera að bíða eftir og frábært að vera í þess- ari stöðu. Það er meiriháttar að vera í „Final Four“. Ég hef verið þar þrisvar áður og þetta er það stærsta sem maður gerir í handboltaheim- inum,“ sagði Aron. Aron á rúmt eitt ár eftir af samn- ingi sínum við Kiel sem hann hefur leikið með frá árinu 2009. Félagið hefur gert honum nýtt tilboð en hann er með fleiri tilboð upp á vas- ann. „Ég er ekki búinn að skrifa undir neins staðar. Ég hélt að málin yrðu orðin klár á þessum tímapunkti. Ég er með tilboð frá nokkrum liðum sem ég er að skoða. Ég hef verið í viðræðum við nokkra aðila og þar á meðal Kiel og nú er það bara mitt að velja úr og sjá hvað hentar mér best, líkamlega, handboltalega og hvað mig langar að gera. Í dag er ég ekki búinn að útiloka neitt en það styttist í að ég taki ákvörðun,“ sagði Aron. Velja hvað hentar best  Meiðsli Arons Pálmarssonar reyndust ekki eins alvarleg og haldið var í fyrstu  Er kominn með nokkur tilboð og ætlar að taka ákvörðun fljótlega Morgunblaðið/Eva Björk Spennandi Það ræðst á næstunni hvort Aron Pálmarsson verði áfram hjá þýska meistaraliðinu Kiel eða rói á önnur mið. Hann er með nokkur tilboð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.