Barnablaðið - 17.05.2014, Qupperneq 5
BARNABLAÐIÐ 5
tilegast
verður hissa
Jón Arnór æfir
sig á gítarinn.
Áttu dýr?
Já, ég á eitt dýr. Ég töfraði fram
kanínu og ég er búinn að skíra
hana Lubbi. Hún er niðrí kjallara.
Bróðir hans heitir Bubbi og býr
annarsstaðar.
Áttu þér einhverja fyrirmynd?
Bara ég sjálfur. Svo er Einar
Einstaki líka mjög flottur. Við sýnum
stundum saman.
Áttu þér önnur áhugamál?
Ég hef áhuga á fótbolta, spila á
gítar og syng. Ég byrjaði að læra
söng í Söngskóla Maríu Bjarkar
þegar ég var 3 ára.
Eru fleiri í fjölskyldunni sem töfra?
Já, pabbi töfrar aðeins og kennir
mér. En mamma kann alls ekki að
töfra.
Hvernig töfrar maður?
Jón Arnór vildi lítið gefa upp hvað
býr að baki töfrabrögðum enda er
það algjört leyndarmál.
Hefur þú fengið góð viðbrögð
eftir þáttinn?
Já, krakkarnir í skólanum
fylgjast vel með.
Þau hittust öll
í matsalnum
og horfðu á
úrslitaþátt-
inn saman.
Viðbrögðin eru mjög skemmtileg.
Hvernig verður framhaldið?
Ég er farinn að töfra við hin ýmsu
tækifæri, t.d. í afmælum og nú síð-
ustu helgar á kosningaskrifstofum.
Ég er að æfa fullt af nýjum trixum
og ætla að halda áfram að töfra af
fullum krafti. Það verður margt nýtt
fram undan í sumar.
Ég er kominn með læksíðu á Face-
book þar sem yfir 2.000 manns
hafa lækað. Þar er hægt að finna
allar upplýsingar.
Eitthvað að lokum?
Já, takk fyrir, þeir
sem kusu mig.
„Ég
vakti stundumpabba um helgarog við æfðum
okkur.