Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Side 12
* Svakalega. Að verða borgarstjóri eins og Jón Gnarr og skrifanæstu bók mína sem borgarstjóri. Það gat alveg kitlað.Guðni Ágústsson, sem ákvað að bjóða sig ekki fram í borgarstjórnarkosningunum, spurður hvort það hafi ekki kitlað. Landið og miðin SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is UM ALLT LAND ÍSAFJÖRÐUR Settur hefur verið upp radar áVestrahúsinu á Ísafirði. Hann er gjöf frá fyrirtækinu Brimrúnu til Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. Radarinn er af g ni Furuno, með 64 sjómílna la drægni, innbyggðu sjókorti og 20 tomma litaskjá. Radarinn er notaðu ný yfirfarinn og í góðu ásigkom Fyrirtækið Særaf á Ísafirði milligöngu um gjöfina og sá uppsetningu ásamtVélsmið Á heimasíðu Fræðslumiðst nn segir að gjöfin muni nýtast ið kennslu í skipstjórn. SEYÐISFJÖRÐUR Íþróttamaður Hugins er kjörinn árlega, eins íþrótt lan hi á Sey kjörse heimi og viðurke ársins með viðhö SKÓGAR Hjónin Eyja Þóra Ei Jóhann Frímanns hafa opnað ný hótel á Skóg SÚÐAVÍK Áhugavert verkefni er framundan nor g ameð þá hu mynd að not ðir fjölnota innkaupapokar í stað oka í Búðinni okkar ehf. á taðnum. Sveitarstjórn ákvað að styrkja verkefnið um 70 þúsund krónur, nú verður hugmyndin útfærð og hrint í framkvæmd sem fyrst. SELTJARNARNES Kári Húnfjörð Einarsson h ráðinn skólastjóri Tónlista Seltjarnarness frá 1. ágúst flestum bæjarbúum að gó enda heur hann starfað vi í 24 ár, þar af aðstoðarskó sl. 17 ár. Hann á því stóran þátt í uppbyggingu skólast stöðu tónlistarskólans og Seltjarnarness. Kári tekur K ristján Kristjánsson er mörgum lesendum Morgunblaðsins að góðu kunnur. Hann var blaðamaður og ljósmyndari blaðsins á Akureyri í rúman áratug en söðlaði um fyrir nokkrum árum og hefur fengist við býsna ótengd störf undanfarið! Kristján er lærður vélvirki og starfaði sem slíkur í Stálvík í Garðabæ, hjá Foss á Akureyri og loks hjá Norðurverki á Akureyri. „Þaðan var ég lánaður í fyrirtækið Vör og vann fyrir það við að skipta um stýrishús á Þórði Jónassyni þegar auglýst var eftir íþrótta- fréttamanni á Degi, sem þá var að verða dagblað. Ég taldi að þetta gæti verið spennandi starf og sótti um. Tók fram að ég kynni ekki á ritvél en vissi allt um íþróttir og gæti örugglega lært á ritvélina.“ Kristján var ráðinn og gegndi starfinu í nokkur ár. Vann á Degi í 10 ár og tvo daga, síðustu árin sem fréttastjóri. Réð sig svo til Morg- unblaðsins þar sem hann starfaði í 10 ár og þrjá mánuði þangað til hann varð ritstjóri Vikudags um áramótin 2005-2006. „Mér var boðið það starf eftir að KEA keypti blaðið og var þar í sex og hálft ár. Það er gríðarleg vinna að vera með lítið blað; ég var bæði ritstjóri og framkvæmdastjóri og þótt ég hefði aðstoð mæddi mest á mér þannig að maður var í vinnunni flestar helgar og oft á kvöldin.“ Mágur Kristjáns og kona hans, sem er norsk, eru bændur í Að- aldal. Blaðamaðurinn hafði leyst af á bænum þegar bændurnir fóru í sumar- og jólafrí og þegar hjónin fengu þá hugmynd að dvelja einn vetur með börn sín hjá foreldrum hennar í Noregi lá beinast við að leita til Kristjáns: gat hann hugsað sér að hugsa um búskapinn á með- an þau yrðu í burtu? „Þetta var ekkert nýtt fyrir mér, þar sem ég hafði leyst þau af í frí- um, auk þess sem ég var að hluta til alinn upp í sveit. Ég leit á þetta sem góðan tímapunkt til að segja skilið við Vikudag, fara í sveitina og láta svo á það reyna hvað gerð- ist þegar ég kæmi til baka.“ Kristján sló því til og tók við stjórnvelinum á Hraunkoti 1 í Að- aldal. „Búið telst nokkuð stórt, ég mjólkaði mest 40 kýr, þarna eru 70-80 geldneyti, kálfar, naut og kvígur á öllum aldri. Á bænum eru líka 140 kindur á fóðrum, 13 hest- ar, 10 hænur og tveir hundar.“ Kristján var að mestu einn við bústörfin því eiginkonan, Borghild- ur Kjartansdóttir, sat á skólabekk á Akureyri og vann á sambýli aðra hverja helgi. En hún kom í sveitina tvær helgar í mánuði. „Tengdafor- eldrar mínir búa líka á jörðinni þannig að ég gat alltaf leitað í smiðju þeirra ef á þurfti að halda.“ Þegar Kristján kom heim til Ak- ureyrar á ný eftir dvöl í sveitnni þóttust margir kannast við mann- inn en áttuðu sig ekki alveg strax. Hann hafði lagt svo mikið af. „Ég missti hátt í 20 kíló. Þetta er mikil vinna og veturinn var erf- iður; mjög snjóþungur, svo ég þurfti oft að moka mig að útihús- unum og heyrúllunum sem voru úti. En þetta var mjög lærdómsríkt AKUREYRI Vélvirki, blaðamaður og bóndi GAFLARINN KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BJÓ UM TÍMA Á HÚSAVÍK EN FLUTTI ÞAÐAN TIL AKUREYRAR. HANN ER VÉLVIRKJAMEISTARI SEM FÓR Í BLAÐAMENNSKU ÞÓTT HANN KYNNI EKKI Á RITVÉL, VAR MJÓLKURBÓNDI Í EINN VETUR EN NÚ UMBOÐSMAÐUR TM Á NORÐURLANDI. Kristján gerði heiðarlega tilraun til þess, að eigin sögn, að finna leið til að auka hárvöxt á eigin höfði. Það virkaði ekki! Ljósmynd/Börkur Kjartansson Alvörugæðaprufa í sveitinni. Mjólk er góð og ekki síst spenvolg að sumra mati. Ljósmynd/Börkur Kjartansson 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.5. 2014

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.