Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Page 14
D
aði Guðbjörnsson
myndlistarmaður
fagnar sextugs-
afmæli eftir helgi,
12. maí og hefur
þegar verið minntur hressilega á
aldurinn. „Þetta byrjaði ekki vel, ég
fékk í pósti blað frá Félagi eldri
borgara um það hvernig eigi að lifa
lífinu. Mér brá svolítið við það,“
segir hann. „Annars hef ég ekki
verið jafn hress árum saman, það er
heilbrigðari lífsstíl að þakka, sér-
staklega jóga. Það eru um átta ár
frá því ég byrjaði að stunda Sahaja
jóga en þar er leitast við að tengja
andann við alheimsvitundina. Þann-
ig getur maður breytt sjálfum sér
til hins betra, notið þess að vera
núinu og vera hamingjusamur.
Þannig að Sahaja jóga hefur breytt
lífi mínu til hins betra.“
Erfið fötlun
Af hverju fannst þér ástæða til að
breyta þér?
„Mér fannst ég orðinn dálítið út-
brunninn, ég hef reyndar alltaf
hreyft mig en var farinn að borða
óhollan mat og drakk aðeins of mik-
ið og fann að sá lífsstíll var ekki að
gera mér gott. Ég hef alltaf haft
áhuga á andlegum efnum og fór að
stunda jóga í framhaldi af því að ég
kynnist konu sem hét Nora
Kornblueh. Hún var sellóleikari og
dyslexíukennari og var að leita að
þekktu fólki sem vildi leggja nafn
sitt við að vera lesblint. Mér fannst
það allt í lagi vegna þess að þetta er
erfið fötlun. Það eru notaðar slök-
unaraðferðir í Davis lesblindu-
meðferð sem ég heillaðist af og í
framhaldinu kynntist ég Sahaja jóga
sem ég stunda reglulega.“
Víkjum aðeins að lesblindunni,
reyndist skólagangan þér erfið
vegna lesblindunar?
„Þegar ég var barn fengu les-
blindir enga aðstoð í skólakerfinu
og voru afgreiddir með því að þeir
væru heimskir. Það var því ekki
annað í boði fyrir mig en að vera í
tossabekk. Í sjálfu sér var skóla-
gangan mér ekki erfið og ég
skemmti mér ágætlega. Ég var í
ákveðinni stöðu og reyndi að finna
sem besta leið fyrir sjálfan mig. Þar
sem ég gat það ekki í gegnum bók-
nám þá gerði ég það á annan hátt. Í
gagnfræðaskóla gekk ég í málfunda-
félagið og leiklistarfélagið og tók
þátt í að gefa út skólablað. Ég var í
félagsskap skemmtilegs fólks. Ég
held að ég hafi fengið mikla bjart-
sýni í vöggugjöf og það hjálpaði
mér. Ég sat í tímum og þegar ég
var ekki að tala og trufla kennsluna
hlustaði ég á kennarann og þar sem
ég hafði heyrnarminni tókst mér að
læra. Það sem háði mér mest var að
ég gat ekki komið frá mér því sem
ég vissi því ég skrifaði allt vitlaust.
Svörin voru röng af því þau voru
vitlaust skrifuð. Einhvern veginn
tókst mér samt að ná lokaprófum í
gagnfræðaskóla.“
Tíminn vann með mér
Hvernig stóð á því að þú ákvaðst að
læra myndlist?
„Eftir gagnfræðaskóla var planið
að læra myndlist en karl faðir minn
var vel stæður togaraskipstjóri og
vildi engan aumingjaskap í sinni
fjölskyldu. Hann píndi mig til að
læra húsgagnasmíði og eftir á
reyndist það hafa verið góð hug-
mynd. Ég lærði húsgagnasmíði hjá
Helga Einarssyni sem var þekktur
fyrir fallega hönnun, og rak menn-
ingarlegt húsgagnaverkstæði þar
sem ég undi mér ágætlega með
skemmtilegum vinnufélögum. Á
kvöldin var ég á námskeiðum í
Mynd- og handíðaskólanum og
lærði teikningu hjá Hringi Jóhann-
essyni. Ég ákvað svo að taka inn-
tökupróf í skólann og náði því. Ef
ég hefði fallið í fyrstu atrennu sem
unglingur, þá er ekki víst að ég
hefði lagt fyrir mig myndlist.
Ég var örlítið eldri en aðrir nem-
endur þegar ég kom á svæðið með
mína lesblindu sem er samkvæmt
því sem mér skilst núna mikil guðs-
gjöf fyrir listamenn því þrívídd-
arhugsun hentar mjög vel fyrir
myndlistarnám. Flestir nemendanna
voru að fara í sitt fyrsta fagnám og
stefndu síðan á kennaradeild eða
auglýsingadeild og ætluðu að leggja
fyrir sig eitthvað praktískt. Mér,
með bakgrunninn í húsgagnasmíð-
inni, fannst ég hins vegar vera bú-
inn að gera nógu margt praktískt í
þessu jarðlífi og jafnvel þeim næstu
og ákvað að gera það sem mér
sýndist. Málaradeildin á þeim tíma
fannst mér ekki vera spennandi svo
ég fór í nýlistadeildina. Tískusveifl-
ur eru mjög hraðar á Íslandi og
þegar kom að nýlistinni skynjaði ég
að þar var ein lína í gangi; lista-
menn voru að gera ljósmyndir í stíl
Sigurðar Guðmundssonar. Það hent-
aði mér ekki þannig að ég flosnaði
upp úr nýlistinni og þegar ég út-
skrifaðist úr Myndlista- og hand-
íðaskólanum var ég farinn að mála á
fullu. Ég hafði á tilfinninguna að
komið væri að endurkomu mál-
verksins, þótt sú hugmynd mín
þætti fremur heimskuleg í íslensk-
um listaheimi þessa tíma.
Ég fór til Hollands í framhalds-
nám í myndlist til að bæta við mig.
Mér fannst að það hlyti að vera
þroskandi að fara út, kynnast nýj-
um straumum og viðhorfum og
horfa á myndlistina hér utan frá.
Mér gekk vel því um svipað leyti og
ég hóf námið í Hollandi hélt ég
myndlistarsýningu í Amsterdam
sem hlaut nokkra fjölmiðlaathygli
og í skólanum vissi fólk hver ég var.
Þegar Sigurður Guðmundsson kom
svo í heimsókn til mín í skólann og
gaf mér í nefið um leið og hann leit-
aði eftir aðstoð í ákveðnu máli þá
voru hinir hollensku samnemendur
mínir vissir um að ég væri mjög
óvenjulegt séní því Siggi var goð í
hollenska listalífinu á þessum tíma.
Þegar ég sneri heim fóru verkin
Fékk mikla
bjartsýni í
vöggugjöf
DAÐI GUÐBJÖRNSSON FAGNAR SEXTUGSAFMÆLI MEÐ
MYNDLISTARSÝNINGU. Í VIÐTALI RÆÐIR HANN UM MYND-
LISTARFERILINN, EN HANN SEGIR AÐ NÁNAST SÉ BÚIÐ AÐ
EYÐILEGGJA SÖLUMARKAÐINN Í MYNDLISTINNI. LESBLINDA
OG JÓGA BERST EINNIG Í TAL SVO OG STJÓRNMÁLIN.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.5. 2014
Svipmynd
Mæðradagurinn er í dag