Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Síða 17
11.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Alla foreldra dreymir um að börnin þeirra upplifi ham-
ingju. Foreldrar ættu þó að hafa í huga að byrja á að
huga að eigin hamingju. Óhamingjusamt foreldri er
ekki líklegt til að stuðla að hamingju barna sinna.
Hamingjusöm börn*Og það bobobobobo-borgarsig að brosa. Pollapönk
Gott Eurovision-partí byrjar að
morgni þegar allir vakna og klæða
sig. Áskorunin snýst um að allir
velja sér sinn eftirlætis Pollapönks-
lit og finna eina flík eða fylgihlut í
þeim lit og nota út daginn.
Það er eitthvað sérstaklega
skemmtilegt við það að fara í mat-
vöruverslun og velja veitingar
kvöldsins samdægurs. Takið alla
fjölskylduna með og leyfið hverjum
og einum að velja eitthvað tvennt á
hlaðborð kvöldsins. Það sem vantar
upp á hlaðborðið sjá svo hinir eldri
um að kaupa.
Á hádegi er upplagt að bjóða
allri fjölskyldunni upp á næring-
arríkan og hollan hádegisverð því
kvöldið verður án efa veisla sykurs
og fitu á flestum bæjum. Smá há-
degislúr er mikilvægur fyrir þá
sem ætla að vaka.
Eftir hádegismat skal skipta
fjölskyldunni í 2-3 hópa eftir stærð.
Tveir og tveir æfa saman skemmti-
atriði fyrir kvöldið þar sem söngur
og helst dans skal koma við sögu.
Tilvalið að sýna atriðið í hléi.
Það er rík hefð fyrir
því að sjónvarps-
kynnar Eurovision-
kvöldsins skipti um
fatnað á miðju kvöldi.
En slíkt verður að
sjálfsögðu að koma á
óvart. Leyfið öllum að
fara í fatakistur, geymslur og
annað um daginn, skoða gömul
föt og máta. Hver og einn velur sér
leynilega fatnað sem hann klæðir
sig svo í öllum að óvörum einhvern
tímann um kvöldið og reynir að
birtast aftur í stofunni eins óvænt
og hægt er með sem glæsilegastri
innkomu. Ímyndið ykkur að þið
þurfið að fanga athygli heimsins á
sviðinu og toppið hvert annað.
Seinnipartinn er gott að róa
mann-
skapinn
aðeins niður og fá alla til að
setjast niður og föndra hvatning-
arspjöld fyrir Pollapönkarana. Gott
er að nota stífari pappa eins og ut-
an af morgunkorni. Nokkur Áfram
Ísland-spjöld heima í stofu munu
án efa senda góða strauma út.
Kvöldmatinn er gott að hafa
tilbúinn á borðum um hálftíma áð-
ur en keppni hefst og fingramatur
gerir borðhaldið oft fjörugra. Til
dæmis mætti útbúa kjúklinga-
vængjaveislu eða hafa taco-þema
eins og sjá má á bls. 32.
Ef einhver vill fara út í garð til
að hvíla eyrun aðeins meðan á
keppni stendur er hér sérhannaður
Pollapönksleikur. Finnið til fullt af
smáhlutum um daginn sem eru í
Pollapönkslitunum; bleikum, bláum,
rauðum og gulum. Þetta geta verið
lúdóspilakarlar, eldhúsáhöld, serví-
ettur, blöðrur, tússpennar, sokkar
og lítil leikföng. Felið um allan
garð, vel og vandlega, alls ekki
hafa staðina auðvelda. Sendið fjöl-
skylduna út og sá sem er fyrstur
að finna og safna fjórum hlutum í
öllum litum vinnur. Hafið tilbúinn
skemmtilegan vinning svo sem bíó-
eða sundmiða. julia@mbl.is
LEIKUR, MATUR OG FJÖR
Fullkominn
Eurovision-dagur
TIL AÐ GERA EUROVISION-DAGINN SEM BESTAN
ER UM AÐ GERA AÐ NÝTA ALLAN DAGINN OG
HEFJA GLEÐINA AÐ MORGNI.
Lítur alltaf vel út.
Líka í myrkri.
Audi Q3 lýsir upp veginn í orðsins fyllstu
merkingu með glæsilegum framljósum
sem bregðast sjálfkrafa við breytingum á
birtuskilyrðum. Þetta er enn eitt dæmið um þá
stefnu Audi að láta útlit og innihald alltaf haldast
í hendur. Audi Q3 kostar frá kr. 7.590.000.