Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.5. 2014
Matur og drykkir
E
urovision fer fram í Dan-
mörku þetta árið og er
smurbrauðið framlag Dana
til matarmenningar heims-
ins. „Eftir Eurovision-partí er snið-
ugt að nýta afganga í smurbrauð.
Rífa kjötið og nýta það sem er til á
heimilinu til að gera smurbrauð.
Þetta snýst samt svolítið um að vera
með gott hráefni,“ segir Bjarni
Gunnar Kristinsson kokkurinn geð-
þekki á Munnhörpunni sem staðsett
er á jarðhæð Hörpunnar.
Sérstaða smurbrauðsins er að það
er fyrir öll skynfæri. Bragðið svíkur
engan og augun laðast að skrautinu
sem sett er á og getur breytt fátæk-
legu hráefni í veislu. Smurbrauð á
ávallt að borða með hníf og gaffli.
„Allt sem við búum til hér á
Munnhörpunni er lagað á staðnum
og engin aukaefni. Kristín, næring-
arráðgjafi Hörpunnar, er búin að
tala mikið um ágæti Paleo-
mataræðisins og við sleppum öllum
aukaefnum,“ segir hann. „Smur-
brauðið okkar er lagað frá grunni.
Við reykjum laxinn hér og við
vinnum allt hráefni þannig að við
vitum hvað fer í það, við sættum
okkur ekki við nein aukaefni. Brauð-
ið bökum við líka á staðnum,“ segir
Bjarni. „Við keyrum svolítið á smur-
brauðunum í sumar og það er mín
von að fólk sjái sér fært að stækka
kvöldið aðeins fyrir stórviðburði
tengda Hörpu með því að kíkja til
okkar – tylla sér niður í einn drykk
og smábita. Það þarf ekki alltaf að
vera flókið eða dýrt.“
BJARNI GUNNAR KRISTINSSON Á MUNNHÖRPUNNI
Pollapönk í
Smurbrauði
BJARNI GUNNAR VILL MEINA AÐ LAGIÐ ENGA FORDÓMA
EIGI VEL VIÐ SMURBRAUÐ ÞVÍ ÞAÐ MÁ EKKI HAFA NEINA
FORDÓMA ÞEGAR VELJA Á HRÁEFNI OFAN Á BRAUÐ.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
BLEIKUR
Spægipylsa, gráðaostur með jarðarberjum,
sellerírót og granateplum.
BLÁR
Gullostur og bláber.
RAUÐUR
Blár Kastali, hráskinka og rauðrófa.
GULUR
Maribóostur með apríkósusalsa.
Apríkósur saxaðar með ögn af chili og ólífu-
olíu, kryddað með sítrónusafa.
BAKRADDIR
Fjólubláar makkarónur (sem hægt er að
kaupa í sælkerabakaríum eins og Kökuhúsinu
eða Sandholt bakaríi)
Hvítsúkkulaði með appelsínukremi
Hvítt appelsínusúkkulaðikrem
300 g hvítt súkkulaði, bráðið
100 ml rjómi með 2 strimlum af appels-
ínuberki
45 g sykur
50 g bolli smjör
Rjómi, sykur og appelsínubörkur soðið saman,
blandað í súkkulaðið og hrært með smjörinu í lokin.
Látið kólna, setjið í sprautupoka og sprautið ofan
á makkarónur, sem hægt er að kaupa í búðum.
Setjið ost að eigin vali ofan á brauðið, skreytið
svo með litríku meðlæti sem passar við hvern ost
fyrir sig. Ávextir passa vel með ostum, svo er krydd-
lagt rótargrænnmeti líka prýðisgott til að fá stökkt
bit á milli laga. Til dæmis er hrá rauðrófa eða sellerí
gott með smá ediki eða sítrónu og ólífuolíu, salti og
pipar. Þetta þarf ekki að vera flókið bara litríkt og í
stíl við Pollapönk – enga fordóma í hráefnisvali,
Pollapönks-smurbrauð
Pollapönkarar smakkast vel sem smurbrauð.
Morgunblaðið/Golli
SVÍNARIF Í BBQ-SÓSU
4 hreinsuð svínarif
30 g íslenskt flögusalt
½ tsk. svartur pipar, mulinn
2 tsk. hvítur pipar
½ tsk. cayenne-pipar
1 matskeið sykur
½ msk. hvítlauksduft
½ msk. laukduft
Kryddið kjötið með þurrkrydd-
unum. Góð BBQ-sósa að eigin vali
eða hana má búa til. Bjarni lætur les-
endur fá sína útgáfu. „Svínarif í grill-
sósu er réttur sem óhætt er að leyfa
sér endrum og eins. Það er sniðugt
að setja kalt kjöt á smurbrauð dag-
inn eftir veislu og hægt að nota ýmsa
afganga af kjöti eða jafnvel fisk-
réttum. Hráefnið er ódýrt og það er
gaman að borða rif í góðra vinahópi
með köldum bjór. Enn betra er að
klára afganga af góðu smurbrauði
daginn eftir. Gerið rif frá grunni eða
notið forelduð rif úr kæliborði,“
segir Bjarni.
Aðferð fyrir rifin: Blandið sam-
an salti, papriku, sykri, hvítlauk og
laukdufti og nuddið jafnt yfir kjötið.
Forhitið ofninn í 155 °C. Vefjið
svínarifin lauslega með álpappír, látið
beinin snúa niður. Eldið rifin að lág-
marki í 90 mínútur, snúið á 15 mín-
útna fresti .
BBQ-SÓSA BJARNA:
½ msk. sojasósa
1 bolli tómatmauk
¼ bolli kjúklingaseyði
(vatn og kraftur)
¼ bolli tómatsósa
¼ bolli eplaedik
1 kryddaður bjór
½ bolli appelsínusafi
¼ bolli vatn
3 hvítlauksrif, smátt söxuð
1 tsk. chiliduft
1 msk. laukduft
1 msk. salt
1 msk. svartur pipar
2 bollar ljós púðursykur
Smurbrauð
með svínarifj-
um og eplum
brauð
rjómaostur
reyktur lax
rauðlaukur, smátt saxaður
sítrusávextir að eigin vali
ögn af ólífuolíu
capers
svartur pipar eftir smekk
kryddjurtir að eigin vali
Skerið brauðið í sneiðar. Setjið
rjómaostinn á brauðið. Sneiðið
laxinn þunnt og leggið rjómaostinn
ofan á. Setjið rauðlauk og capers í
skál með kjötinu af sítrusávöxtum
og ólífuolíunni og myljið svo svart-
an pipar yfir laxinn ásamt sítrus-
ávöxtum og kryddjurtum að eigin
vali, til dæmis dilli eða kóríander.
Smurbrauð með reyktum
laxi, sítrussalsa og rjómaosti