Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.5. 2014
Kristinn Már Pálmason myndlistarmaður
opnar á laugardag klukkan 14 fimmtu sýningu
Myndlistarhátíðar 002, en það er samnefnt
gallerí, rekið í blokkaríbúð í Hafnarfirði að
Þúfubarði 17. „Draumurinn um regluna“
kallar Kristinn sýninguna. Eftir að honum var
boðið að leggja íbúðina undir sig, hefur hann
nokkrum sinnum komið í hana og byrjaði
strax að skissa hugmyndir sem hann fékk.
„Næsta skref er að raða skissunum inn í
rýmið, lið fyrir lið, eftir tilfinningunni sem ég
vil ná inn í rýminu, eldhúsið vill fá þessa hug-
mynd, þessi hugmynd fer á loftið í stofunni
og svo framvegis. Í þessu ferli gerði ég mér
grein fyrir þörfinni fyrir að finna hugmynd-
unum farveg í einhverskonar vinnuplani.
Þetta er draumur minn um að koma reglu á
hugmyndirnar,“ segir hann.
KRISTINN MÁR SÝNIR
REGLAN Í 002
Kristinn Már Pálmason hefur lagt íbúðina, þar
sem 002 gallerí er rekið, undir sig.
Morgunblaðið/Golli
Sigurður Halldórsson, Ingunn Hildur Hauks-
dóttir og Ármann Helgason koma fram.
Kammerhópurinn Camerarctica leikur á síð-
ustu tónleikum vertíðarinnar í 15:15 tón-
leikasyrpunni í Norræna húsinu á sunnudag
klukkan 15.15.
Tónleikana ber upp á mæðradaginn og af
því tilefni verður flutt viðamikið Tríó eftir
franska kventónskáldið Louise Farrenc, sem
var uppi á 19.öld. Einnig verða flutt tvö lög
eftir Max Bruch, þar sem það síðara byggir á
rúmensku stefi sem hljóðfærin spinna í kring-
um, en lokaverkið á efnisskránni er Tríó eftir
ítalska tónskáldið Nino Rota sem er hvað
þekktastur fyrir tónlist í kvikmyndum.
Tónleikarnir bera yfirskriftina „Vortríó“,
þar sem leikið er á litbrigði vorsins. Flytj-
endur eru Ármann Helgason klarinettuleik-
ari, Sigurður Halldórsson sellóleikari og Ing-
unn Hildur Hauksdóttir píanóleikari.
CAMERARCTICA Á TÓNLEIKUM
VORTRÍÓ
Kóresk-bandarískur
píanóleikari, Hyunsoon
Whang, hefur verið hér á
landi undanfarna daga og
kennt masterklassa í
Allegro Suzuki-tónlistar-
skólanum. Hún heldur
tónleika í Kirkju Óháða
safnaðarins, Háteigsvegi
56, á laugardag kl. 16, og
er aðgangur ókeypis fyrir
alla píanónemendur.
Efniskráin er helguð bernskunni og leikur
Hyunsoon Whang meðal annars „Kinder-
szenen“ eftir Schumann og „Tilbrigði við
ABCD“ eftir W.A. Mozart.
TÓNLEIKAR HYUNSOON
TIL BERNSKU
Hyunsoon
Whang
Á sýningunni „Meistarahendur“ sem opnar í Ásmundarsafni viðSigtún í dag, laugardag klukkan 16, getur að líta verk semspanna allan feril Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) og sýna
vel þróunina sem varð á löngum og gifturíkum ferli hans.
Meðal verkanna á sýningunni er sveinsstykki Ásmundar, útskorinn
stóll frá námsárum hans 1915 til 1919 hjá Ríkarði Jónssyni, sem þyk-
ir tæknilega afar vel útfærður og fáir hafa séð. Í náminu lærði Ás-
mundur frumatriði í dráttlist og hefðbundin handbrögð í tréskurði.
Þá eru einnig sýndar höggmyndir sem Ásmundur gerði síðar sem
nemandi við sænska myndlistarakademíið. Þá getur að líta hin stór-
brotnu meistaraverk, sem hann gerði kominn heim frá námi, þar sem
hann hyllir íslenska alþýðu, sagnir og náttúru, og loks er á sýning-
unni fjöldi abstraktverka sem listamaðurinn vann á síðustu áratugum
ævi sinnar.
Ásmundur Sveinsson var einn helsti frumkvöðull íslenskrar högg-
myndalistar og sótti innblástur fyrst og fremst í íslenska náttúru og
bókmenntir, en einnig í sögu þjóðarinnar. En þótt myndefni hans
hafi verið þjóðleg, þá tileinkaði hann sér engu að síður meginstrauma
alþjóðlegrar listsköpunar eins og ekkert stæði honum nær og gaf
henni um leið íslenskt yfirbragð – íslenskt inntak.
NÝ SÝNING OPNAR Í ÁSMUNDARSAL
Meistarahendur
Ásmundar
Ásmundur við sveinsstykki sitt í tréskurðarnáminu hjá Ríkarði Jóns-
syni, forláta stól sem hann skar út árið 1919 og er á sýningunni.
Ljósmynd/Sigríður Zoëga
Á NÝRRI SÝNINGU ERU VERK SEM
SÝNA VEL ÞRÓUNINA SEM VARÐ
Á FERLI ÁSMUNDAR SVEINSSONAR.
Menning
Þ
etta er stórkostlegt tækifæri fyrir
mig, að takast á við tónverk sem
margir telja stærra en lífið
sjálft!“ segir finnski hljómsveit-
arstjórinn Osmo Vänskä. Hann
mun stjórna flutningi Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, Vox Feminae, Stúlknakórs Reykjavíkur
og bandarísku söngkonunnar Jamie Barton, á
Þriðju sinfóníu Gustavs Mahler á Listahátíð í
Reykjavík föstudagskvöldið 23. maí næstkom-
andi. Þetta verður aðeins í annað skipti sem
þetta viðamikla og víðfræga verk verður flutt
hér á landi.
„Þessi sinfónía er eins og heilir tónleikar.
Hún er eitt af meistaraverkum Mahlers, verk
sem er afar gefandi, fyrir áheyrendur sem
flytjendur, en vekur jafnframt fjölda spurn-
inga,“ segir hann og bætir við að hann taki
undir þá lýsingu á verkinu að það sé eins og
lífið sjálft. „Í því er margt afar fallegt, og
kröftugt, og svo þættir sem við skiljum ekki
fyllilega en þurfum engu að síður að meðtaka.
Þetta er margbrotið tónverk.“
Osmo Vänskä er íslenskum tónlistarunn-
endum að góðu kunnur. Hann var aðalstjórn-
andi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árunum
1993 til 96 og hefur síðan komið og stýrt
hljómsveitinni sem gestastjórnandi, við frábær-
ar viðtökur tónleikagesta sem gagnrýnenda.
Vänskä hefur stjórnað mörgum af kunnustu
sinfóníuhljómsveitum samtímans, meðal annars
sveitunum í Chicago, Boston og San Francisco,
og fílharmóníuhljómsveitunum í Berlín og New
York. Þá hefur hann verið talsvert í fréttum
upp á síðkastið vegna starfa sinna sem list-
rænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í
Minnesota síðustu ár, en hann sagði starfinu
lausu eftir stormasöm samskipti við yfirstjórn
hennar, eftir að hljóðfæraleikararnir voru sett-
ir í langt verkbann í kjaradeilum sem þeir áttu
í. Hljómsveitin hlaut á dögunum Grammyverð-
laun fyrir hljóðritun sína á sinfóníum 1 og 4
eftir Sibelius undir stjórn Vänskä, en upptök-
urnar voru gerðar áður en kjaradeilurnar
hleyptu upp starfi sveitarinnar. Vänskä sneri
aftur í vor, þegar deilurnar voru leystar með
talsverðum launahækkunum, og stjórnaði
flutningi á verðlaunaverkunum við frábærar
viðtökur. Hart var lagt að honum að taka aftur
við starfinu sem listrænn stjórnandi hljóm-
sveitarinnar og á dögunum var formlega til-
kynnt að hann hafi þegið starfið.
Harpa hefur góð áhrif á þjóðina
Þegar Vänskä er spurður að því hvort hann
sé fyrir löngu búinn að geirnegla hvernig
hann vilji að Þriðja sinfónía Mahlers hljómi,
og hvernig eigi að nálgast hana, þá svarar
hann með hlátri. „Nei, alls ekki,“ segir hann
síðan. „Þetta verður nefnilega í fyrsta skipti
sem ég stjórna verkinu!“
Sem kemur vissulega á óvart, þegar svo
reyndur hljómsveitarstjóri á í hlut.
„Ég hef stjórnað öllum hinum sinfóníunum
hans og er afar glaður yfir því að ég hafi nú
loks tækifæri til að takast á við þá Þriðju á
Íslandi. Það er eins og gömul reynsla og
gamlar sögur úr lífi mínu séu nú að mætast,
og þá er ég að hugsa til allra þeirra tónleika
sem ég hef stjórnað á Íslandi; mér finnst allt-
af gott að snúa aftur til Íslands – og nú fæ ég
að gera það með þetta risastóra verk í far-
angrinum.“
Mikil breyting hefur orðið á starfsemi Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands síðan Vänskä var
aðalstjórnandi hennar; nú þarf hún ekki leng-
ur að leika í kvikmyndasal.
„Það er svo sannarlega breyting,“ segir
hann. „Nú leikur hljómsveitin ekki lengur í
Háskólabíói heldur í Hörpu. Ég dái Hörpu,
hún er frábært tónleikahús og byggingin er
öll mjög vel lukkuð, auk þess sem hún er afar
vel staðsett við höfnina. Þetta er góð saga
sem fór vel, og það er ein ástæða þess að ég
vil koma aftur og aftur því loksins getur
hljómsveitin starfað við eðlilegar aðstæður.
Eldborgarsalurinn er eins og hljóðfæri fyrir
hana að leika á. Já, þetta er gríðarlega mikil
breyting sem hefur haft afgerandi áhrif til
batnaðar á líf hljómsveitarinnar.
Og ég tel að Harpa hafi haft, og komi til
með að hafa, gríðarlega góð áhrif á íslenskt
OSMO VÄNSKÄ STJÓRNAR 3. SINFÓNÍU MAHLERS Á LISTAHÁTÍÐ
Kemur með risa-
verk í farangrinum
„ÞETTA ER MARGBROTIÐ TÓNVERK,“ SEGIR FINNSKI STJÓRNANDINN
OSMO VÄNSKÄ UM SINFÓNÍU MAHLERS SEM HANN STJÓRNAR Í FYRSTA
SKIPTI Í HÖRPU Á LISTAHÁTÍÐ. HANN NÝTUR ÞESS AÐ SNÚA AFTUR TIL
ÍSLANDS OG HEFUR TEKIÐ VIÐ SÍNU FYRRA STARFI Í MINNEAPOLIS.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is