Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.05.2014, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.5. 2014
BÓK VIKUNNAR Ljóðasafn Gerðar Kristnýjar geymir
allar fimm ljóðabækur þessarar frábæru skáldkonu sem
þekkt er fyrir meitluð og áhrifamikil ljóð. Lesið og njótið!
Bækur
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
kolbrun@mbl.is
T
vífari gerir sig heimakominn er
ný ljóðabók eftir Anton Helga
Jónsson og höfuðborgin og
ákveðnir staðir í Reykjavík eru
þar í forgrunni. „Mig hefur
lengi langað til að yrkja ljóð um lífið í
borginni og fór að skrifa hjá mér hug-
myndir að þessum ljóðum fyrir um tíu ár-
um,“ segir Anton Helgi. „Ég hafði þá eign-
ast nýútkomið ljóða- og textasafn eftir Paul
McCartney og það kveikti í mér. Hug-
myndirnar fóru að hlaðast upp hjá mér og
í fyrra fannst mér bókin vera tilbúin en lét
ég hana liggja í nokkra mánuði og kom
svo ferskur að henni aftur í vetur og þá
áttaði ég mig á því að ég gat unnið ýmsa
þræði hennar betur. Nú er verkið komið út
og ég er mjög ánægður með það.“
Hvernig er lífið í borginni samkvæmt
þessari ljóðabók?
„Þetta er fjörug og glaðvær bók þar sem
ég bregð á leik en það er blús þarna líka
og dökkur undirtónn. Þetta er mikið til
bók um samskiptaleysi og fólk sem nær
ekki saman. Þetta er bók um einmana fólk.
Ég nota einkunnarorð frá Paul McCart-
ney: All the lonely people, where do they
all come from?/All the lonely people, where
do they all belong? Titillinn vísar til þess
að stundum er eins og eitthvað stemmi
ekki í samskiptum, það er eitthvað fram-
andi við þann sem maður telur sig þekkja
vel, hvort sem það er nú félagi manns,
maður sjálfur eða veruleikinn í kring um
mann.“
Fyrr á árinu hlaut Anton Helgi Ljóðstaf
Jóns úr Vör í annað sinn. Verðlaunaljóð
hans Horfurnar un miðja vikuna er í bók-
inni. „Þegar ég vann að ljóðunum gerði ég
eins og ég geri oft; ímynda mér persónu
vera að tala,“ segir hann. „Varðandi þetta
ljóð þá sá ég fyrir mér gamlan kunningja
sem langaði alltaf til að verða músíkant.
Þegar ég fékk svo verðlaunin varð ég að
viðurkenna fyrir sjálfum mér að þetta er
ljóð um mig. Ljóðið er persónuleg tjáning
manns sem er kominn á minn aldur og er
að vona að hann eigi eitthvað eftir.“
Síðustu árin hefur Anton Helgi verið
nokkuð iðinn við að senda frá sér ljóða-
bækur. Árið 2010 gaf hann út bókina Ljóð
af ættarmóti, en sú bók vakti athygli og
fékk mjög góða dóma. „Ég er að mörgu
leyti mjög ánægður með þá bók,“ segir
Anton Helgi. „Hún var ansi lengi að fæð-
ast, reyndi fyrst að vera eins konar skáld-
saga en það gekk ekki alveg upp og þá
bútaði ég hana niður í eintöl og úr varð
ljóðabók.“ Árið eftir kom svo Tannbursti
skíðafélagsins og fleiri ljóð en sú bók
inniheldur meðal annars ljóðið sem hann
hlaut Ljóðstafinn fyrir árið 2009. Árið 2012
sendi Anton Helgi frá sér bókina Hálf-
gerðir englar og allur fjandinn sem inni-
heldur limrur. Aðspurður segist hann nú
vera að vinna að skáldsögu en er einnig að
skrifa leikrit.
Anton Helgi segist afar ánægður með
þær góðu viðtökur sem bækur hans hafa
fengið: „Ég hef fengið sterk viðbrögð og
fólk hefur samband í tölvupósti eða hringir
sem gleður mig mjög og er hvetjandi.“
ANTON HELGI VINNUR AÐ SKÁLDSÖGU OG ER AÐ SKRIFA LEIKRIT
Bók um einmana fólk
„Þetta er fjörug og glaðvær bók þar sem ég bregð á leik en það er blús þarna líka og dökkur
undirtónn,“ segir Anton Helgi Jónsson um nýju ljóðabókina.
Morgunblaðið/Þórður
ANTON HELGI JÓNSSON HEFUR
SENT FRÁ SÉR NÝJA LJÓÐABÓK,
EN ÞAR YRKIR HANN UM LÍFIÐ
Í BORGINNI. LJÓÐASAFN EFTIR
PAUL MCCARTNEY KVEIKTI
HUGMYNDINA AÐ BÓKINNI.
Það er erfitt fyrir bókaorma að velja sér uppáhaldsbók. Endur fyrir
löngu var uppáhaldsbókin mín Bör Börsson og ég grét fögrum tár-
um yfir Önnu Karenínu eftir Tolstoj þegar ég var 12 ára. Þannig
hafa uppáhaldsbækurnar verið ótalmargar í gegnum
tíðina og yfirleitt hef ég á ákveðnum tímabilum tekið
ástfóstri við bækur ákveðinna höfunda og lesið nán-
ast allt eftir þá.
Ég held að það sé samt ekki á neina bók hallað
þótt ég nefni Heimsljós eftir Halldór Laxness
sem mína uppáhaldsbók. Ég las hana alla í einum rykk
þegar ég lagðist í slæma flensu um tvítugt. Bókin tók
mig slíkum heljartökum að því gleymi ég aldrei. Ég
þjáðist með Ólafi ljósvíkingi, gladdist og vonaði, en
án árangurs. Textinn var magnaður og endirinn ógleymanlegur.
Gabriel Garcia Marquez, sem nú er nýfallin frá, var einn af þeim
höfundum sem ég las mikið og Ástin á tímum kólerunnar er
óvenjuleg saga um ást og þolinmæði. Töfrar hans voru slíkir að við
lestur bóka hans er hægt að finna þrúgandi hitann og lyktina af rykinu
í bæjunum þar sem sögurnar gerast.
Síðustu árin hef ég haft sérstaka ánægju af bókum sem fjalla um
sagnfræði og pólitík. Ævisaga Katharine Graham, útgefanda
Washington Post, er meðal bestu bóka í þeim flokki. Hún er allt í
senn, heimild um líf bandarískrar konu af ákveðinni stétt, um sögu
landsins, pólitík, blaðamennsku og að sjálfsögðu um Watergate.
Dásamleg blanda.
Bækur Guðjóns Friðrikssonar eru allar á lista yfir uppáhalds-
bækurnar mínar og bókin Gunnar Thoroddsen eftir Guðna Th.
Jóhannesson var einnig frábær.
Í UPPÁHALDI
ERNA INDRIÐADÓTTIR
FJÖLMIÐLAMAÐUR
Heimsljós eftir Halldór Laxness er uppáhaldsbók Ernu Indriðadóttur, en
þegar hún var yngri var Bör Börsson í miklu uppáhaldi.
Morgunblaðið/Golli
Halldór Laxness
BÓKSALA 1.-30. APRÍL
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Eldhúsið okkarMagnús Ingi Magnússon
2 30 dagar - leið til betri lífsstílsDavíð Kristinsson
3 Eða deyja ellaLee Child
4 Húsið við hafiðNora Roberts
5 PrjónabiblíanGréta Sörensen
6 Marco-áhrifinJussi Adler-Olsen
7 SonnettugeigurValdimar Tómasson
8 Heilsuréttir HagkaupsSólveig Eiríksdóttir
9 Pennafærni: Skrifum ogþurrkum út
10 ParadísarfórnKristina Ohlsson
Kiljur
1 Eða deyja ellaLee Child
2 Húsið við hafiðNora Roberts
3 Marco-áhrifinJussi Adler-Olsen
4 ParadísarfórnKristina Ohlsson
5 Og fjöllin endurómuðuKhaled Hosseini
6 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert
Joël Dicker
7 Stelpa fer á barHelena S. Page
8 HHhHLaurent Binet
9 SandmaðurinnLars Kepler
10 Fimmtíu gráir skuggarE L. James