Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Side 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.5. 2014
Svar: Það verður ekki bæði sleppt og haldið.
Það er alltaf neyðarbrauð að setja lög á verk-
fallsaðgerðir.
Atli Rafn Kristinsson, 66 ára.
Svar: Ég hef bara enga skoðun á þessu máli.
Sjálfur er ég ekki flughræddur og treysti
þessum mönnum að gera rétt hvort sem það
er í háloftunum eða á jörðu niðri.
Daníel Guðlaugsson, 19 ára.
Svar: Mér finnst það ekki sanngjarnt að
setja lög á verkfall ef þeir eru að berjast
fyrir hærri launum.
Karen Gestsdóttir, 26 ára.
Svar: Ég hef samúð með flugmönnum því
þeir bera mikla ábyrgð. Þeir eru engir há-
launamenn – ekki miðað við ábyrgð
þeirra og vinnu.
Maren Ármannsdóttir, 65 ára, og Ómar, 12 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
HVAÐ FINNST ÞÉR UM VERKFALL FLUGMANNA OG VERKFALLSLÖGIN?
Margrét Vilhjálmsdóttir leik-
kona fær draum sinn um að
vinna með listamönnum frá
Grænlandi og Fær-
eyjum loks uppfylltan á
Listahátíð í Reykjavík
Menning 54
Í BLAÐINU
MEÐALLAUN Í MAÍ 2013
Heimild: Icelandair (upphæðir sýna heildarlaun á mánuði)
Flugmenn og flugstjórar Flugfreyjur
1.125.000
kr.
547.000
kr.
Morgunblaðið/Kristinn
BJÖRN BRAGI ARNARSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hver er versti brandari sem þú hefur sagt?
Ég var að greiða fyrir matinn á veitingastað um daginn.
Afgreiðslustúlkan sagði: „Það er 1990.“ Ég svaraði:
„Bíddu nei, er ekki 2014?“ Henni stökk ekki bros.
Var erfitt að stíga á svið í fyrsta sinn og
segja brandara?
Það var svolítið stressandi já, en alveg hrikalega
skemmtilegt líka.
Finnur þú fyrir frægðinni?
Ég lendi stundum í því að ókunnugt fólk tjaldar í garð-
inum hjá mér í von um að sjá mig með berum augum þegar
ég fer út úr húsi á morgnana. Að öðru leyti er ég góður
bara.
Þú spilaðir fótbolta með Fylki í gamla daga.
Varstu góður?
Menn töluðu um að ég yrði næsti Baldur Þór Bjarnason. Það má
deila um hvort það sé gott eða slæmt.
Ætlar þú að vera duglegur að mæta á völlinn í
sumar?
Já, ekki spurning. Fylkisliðinu gengur betur þegar það finnur
fyrir nærveru minni.
Þú varst mikill frímerkjasafnari á þínum yngri
árum. Áttir þú stórt safn?
Þetta átti að vera vel falið leyndarmál! Ég átti vissulega stórt
frímerkjasafn. Svo hætti að vera kúl að safna frímerkjum þann-
ig að í dag safnar það ryki uppi á háalofti hjá foreldrum mínum.
Þú verður gestgjafinn í HM stofu RÚV. Hverjir
verða heimsmeistarar?
Belgar.
Gettu betur, Týnda kynslóðin, Mið-Ísland eða
HM?
Strákarnir í Mið-Íslandi eru önnur fjölskylda mín. En allt eru
þetta mjög skemmtileg verkefni og forréttindi að vinna með öllu
því fólki sem hefur unnið að þeim með mér.
Fyndinn frí-
merkjasafnari
Forsíðumyndina tók
Kristinn
Hvítur er einn aðallitur sumarsins
en hvítt við hvítt var áberandi
á tískusýningum helstu hönn-
uða heims fyrir sumarið
2014. Nú er lag að ná sér í
fallega hvíta flík fyrir sumarið
sem smellpassar við sól-
kyssta húð. Tíska 42
Cheerios-hringir, spaghettí,
tannstönglar og annað sem
finna má í eldhúsinu getur verið
fyrirtaks efniviður í föndur með
þeim yngstu. Fjöl-
skyldan 16
Grínistinn og sjónvarpsmaðurinn Björn Bragi Arnarsson fagnaði fimm
ára afmæli grínhópsins Mið-Íslands um síðustu helgi.
Hann verður einnig tíður gestur í stofum landsmanna í sumar því
hann verður gestgjafi HM stofu RÚV.
Ragnheiður Guðmundsdóttir bjó á Indlandi í hálft
ár og dreymir nú um að bjóða Íslendingum upp á æv-
intýraferðir til Indlands. Ferðalög 18