Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.05.2014, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.5. 2014
Í vikunni voru sett lög á flugmenn. Verkfallþeirra hafi skaðað þjóðarhag og auk þess séuflugmenn hálaunamenn sem ekki hafi siðferði-
legan rétt á því að beita verkfallsvopni sjálfum sér
til framdráttar – á kostnað annarra. Þannig var
talað í Alþingi.
Um síðustu áramót voru áhöld um hvort lág-
launafólk færi í verkfall. Þar á bæ voru launin
undir tvö hundruð þúsundum og var krafan um að
þoka þeim upp á við.
Menn tóku bakföll. Sérstaklega höfðu milljóna-
króna-forstjórarnir uppi stór orð um að stöð-
ugleikanum yrði ógnað ef lágu launin yrðu
hækkuð.
Mig grunar þó að forstjóratalið hafi ekki end-
urspeglað almennan vilja þjóðarinnar. Því má
spyrja hvort sett hefðu verði lög á verkfall ef sam-
tök láglaunafólks hefðu stöðvað flugið.
Sennilega hefði það verið gert, en stjórnvöld
hefðu síður komist upp með það gagnvart almenn-
ingi. Fólki hefði fundist lagasetning ranglát.
Það er nefnilega siðferðilegur þráður í þessari
umræðu. Almennt getur fólk, hygg ég, fallist á að
launafólk skuli hafa rétt til þess að leggja niður
vinnu ef kjörin eru óásættanleg. Og verkfalls-
vopnið held ég að flestir vilji að sé til staðar sem
öryggisventill í réttlátri kjarabaráttu. En það eru
líka lykilhugtökin, réttlát kjarabarátta.
Hvað með að hugsa verkfallsréttinn upp á nýtt
eins og kallað var eftir á Alþingi? Já, gerum það
endilega. Ég legg til að í stað þess að semja um
hækkun lægstu launa semjum við um leyfilegan
kjaramun í launakerfunum. Setjum svo að samið
yrði um að sá hæst launaði mætti aldrei hafa
meira en þreföld laun hins lægsta. Ef sá hæsti
ætlaði síðan að knýja fram kjarabætur með verk-
falli umfram þennan ramma, skoðaðist slíkt ólög-
legt. Ég myndi samþykkja þetta.
Mér býður í grun að forstjóri Icelandair, sem
jafnframt er formaður Samtaka atvinnulífsins,
myndi hætta að hneykslast á kjarabaráttu lág-
launafólks. Hans kjör væru nú vísitölubundin við
hlaðmanninn í Leifsstöð. Ef menn eru til í þessa
vegferð skal ég taka þátt í að ræða um endur-
skoðun á verkfallsrétti.
En gæti þetta gerst? Jákvæð teikn eru á lofti.
Finnair ætlaði að lækka kjör flugáhafna um
fimmtung. Þjóðarhagur í húfi sögðu forstjórar og
stjórnvöld. Verkfalli var hótað – nema forstjór-
arnir lækkuðu eigin bónusa. Fallið var frá launa-
lækkun – alla vega í bili. Húrra segi ég.
En réttlátur kjaraheimur er fjarri því að vera
veruleikinn. Þess vegna verður verkfallsvopnið
ekki gefið eftir. Réttindi launafólks – afrakstur
hundrað ára baráttu – eru í húfi. Þess vegna
greiddi ég atkvæði gegn lögum á flugmenn.
Að hugsa verkfallsréttinn upp á nýtt
*Ég legg til að í stað þessað semja um hækkunlægstu launa semjum við um
leyfilegan kjaramun í launa-
kerfunum. Setjum svo að sam-
ið yrði um að sá hæst launaði
mætti aldrei hafa meira en
þreföld laun hins lægsta.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus
Hjálmarsson, betur þekktur sem
Dr. Gunni, viðurkenndi á Facebook
að hann væri ekki
alveg nógu ánægð-
ur með iðju sína
þann daginn. „Í
staðinn fyrir að
vera að vinna er
ég allt í einu byrj-
aður að skoða myndir af ælupok-
um. Helvítis internet - það ætti að
banna það!“ sagði doktorinn, lík-
lega meira í gríni en alvöru þó.
Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir laganemi með meiru
greindi frá
sumarstarfinu
sínu á Facebo-
ok á föstudag:
„Í sumar verð
ég lög-
reglukona í
umdæmi lög-
reglunnar á
Hvolsvelli.
Stefnir í frá-
bært og mjög lærdómsríkt sumar.“
Áslaug Arna birti mynd af sér í
fullum skrúða og fékk mikil við-
brögð frá vinum sínum á Face-
book.
Framkvæmdastýra UN Women
á Íslandi, Soffía Sigurgeirs-
dóttir, var ánægð með afrakstur
vikunnar og sagði
frá mikilvægu
skrefi á Facebook-
síðu sinni. „Mikil
hamingja ríkir á
skrifstofu UN
Women en við
tókum þátt í því að koma á Hvatn-
ingaverðlaunum jafnréttismála í
samstarfi við atvinnu- og nýsköp-
unarráðuneytið, Festu og Samtök
atvinnulífsins. Þau verða afhent í
fyrsta sinn þann 27. maí næstkom-
andi.“
Quarashi-liðinn Sölvi Blöndal
er ánægður með nýjustu afurð
sveitarinnar, lagið Rock on, sem er
nýkomið í spilun.
Sagt var frá því á
dögunum að
Quarashi kæmi
saman á ný á
Þjóðhátíð í Eyjum
í sumar. „Ég er fá-
ránlega stoltur af þessu lagi…
stoltur af stöffinu, artworkinu…
öllu helvítis klabbinu… bestu vin-
um mínum sem ég er svo heppinn
að þekkja og vinna með… ROCK
ON.“
AF NETINU
Rokksveitin Sólstafir lék á sínum fyrstu tónleikum í Norður-Ameríku á
fimmtudag, en sveitin er nú í snarpri tónleikaferð um Bandaríkin og Kanada.
Fyrstu tónleikar ferðarinnar voru haldnir í Toronto í Kanada. Sveitin spilar
þétt í ferðinni, heldur alls fimm tónleika á jafnmörgum dögum frá fimmtudegi
til mánudags og slær svo lokatóninn vestra með sjöttu tónleikunum um næstu
helgi.
Eftir tónleikana í Toronto á fimmtudag hélt sveitin rakleitt upp í rútu til
New York borgar þar sem hún kom fram á tónleikum í Brooklyn. Sólstafir
spila í borginni Philadelpiu á laugardag, í Boston á sunnudag og í bænum
Springfield í Virginiu á mánudag.
Lokahnykkur ferðarinnar er svo þegar sveitin kemur fram á tónlistarhátíð-
inni Maryland Deathfest í Baltimore næstkomandi föstudag 23. maí. Hátíðin
er sögð stærsta þungarokkshátíð í Bandaríkjunum en um 80 hljómsveitir koma
fram á hátíðinni sem stendur yfir í fjóra daga. Sólstafir eru fyrsta íslenska
hljómsveitin til að spila á hátíðinni. Maryland Deathfest er nú haldin í ellefta
sinn en aðstandendur hennar hafa það að markmiði að flytja til Bandaríkjanna
bestu og mest ögrandi sveitir á þessu sviði tónlistar í heiminum hverju sinni. Rokksveitin Sólstafir eru nú á sínu fyrsta tónleikaferðalagi um Bandaríkin og Kanada.
Morgunblaðið/RAX
Sólstafir í Vesturheimi
FYRSTA ÍSLENSKA HLJÓMSVEITIN SEM SPILAR Á
STÆRSTU ÞUNGAROKKSHÁTÍÐ BANDARÍKJANNA,
MARYLAND DEATHFEST
Vettvangur