Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.07.2014, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Náttúran þolir ekki ótakmarkaðan ágang og við því verður að bregð- ast, segir Ragn- heiður Elín Árnadóttir, iðn- aðar- og við- skiptaráðherra. Í skriflegu svari ráðherra við fyrirspurnum Morgunblaðsins segir hún unnið að lausnum innan ráðuneytisins en aldrei fyrr hafi jafn miklum fjármunum verið varið til verndunar ferðamannastaða og á þessu ári. „Við vitum að yfir 80% erlendra ferðamanna nefna náttúruna sem ástæðu komu sinnar til Íslands og bara af þeirri ástæðu er nauðsyn- legt fyrir okkur að vernda „vör- una“,“ segir Ragnheiður Elín og vísar þar til ummæla Ólafs B. Schram leiðsögumanns, sem sagði í samtali við Morgunblaðið að verið væri að eyðileggja söluvöru ferða- þjónustunnar með offjölgun ferða- manna. Ragnheiður Elín segir al- menn náttúruverndarsjónarmið ávallt höfð að leiðarljósi. Snýst ekki síst um skipulag Ráðherra segir þolmörk ferða- mannastaða ekki eina óbreytanlega tölu, heldur ráðist þau m.a. af inn- viðum og skipulagi. „Við höfum sett aukinn kraft í rannsóknir þessu tengt og hefur Ferðamálastofa framkvæmt þolmarksrannsóknir þar sem vinsælustu ferðamanna- staðirnir eru skoðaðir bæði út frá upplifun ferðamannanna sjálfra, sem og umhverfislegum þolmörkum svæðanna.“ Þá segir hún að á veg- um stofnunarinnar sé hafin könnun á viðhorfum heimamanna gagnvart ferðaþjónustunni og ferðamönnum og kortlagning menntunarframboðs í ferðaþjónustunni. „Allt þetta hjálpar í framhaldinu, við frekari stefnumótun og ákvarðanatöku,“ segir hún. Ragnheiður Elín segir aðgengi að ferðamannastöðum ekki síst snúast um skipulag og bendir á vinnu fag- hóps um skipulag á miðhálendinu, sem fjallaði m.a. um það hvernig stýra mætti aðgengi að viðkvæmum svæðum. Þá segir hún ákveðin svæði þola mun meiri ferðamanna- straum og þau kalli raunar eftir honum. „Ég get nefnt Vestfirði sem dæmi og Norðausturlandið, þar sem mikill áhugi er á því að kanna möguleika á beinu millilandaflugi til þess að fá fleiri ferðamenn inn á það svæði og til þess að fá þá til að dvelja lengur. Ég var á ferð á Þórshöfn um daginn og þar var helsta umkvörtunarefnið það að ferðamönnum færi fækkandi. Öll okkar markaðssetning snýr að því að dreifa álaginu sem best. Ís- land sem ferðamannaland getur boðið upp á fjölbreytta upplifun; bæði kyrrð og ró fyrir þá sem það vilja á afskekktum stöðum og að- gengilegar náttúruperlur sem draga til sín fleiri gesti,“ segir ráðherrann. Kröfur um réttindi til umræðu Ragnheiður Elín segir að vinna við náttúrupassa miði að því að tryggja fjármagn til þess að vernda náttúruna og viðhalda fjölsóttum ferðamannastöðum, til þess að byggja upp fleiri áfangastaði og tryggja öryggi ferðamanna. En hvernig hugnast henni hug- myndir Ólafs B. Schram og fleiri um að gera þær kröfur til leiðsögu- manna að þeir hafi ákveðin réttindi? „Þetta hefur verið rætt en engar ákvarðanir verið teknar. Meðal þeirra hugmynda sem ræddar hafa verið er hvort setja eigi kröfur um lágmarks þjálfun hjá þeim sem ann- ast skipulagðar ferðir í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum, eins og þekkist víða erlendis. Við viljum efla fagmennsku í greininni en verð- um að stíga varlega til jarðar við að takmarka atvinnufrelsi og eins þurf- um við að uppfylla EES-skuldbind- ingar.“ Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Ráðherra segir átakið „Ísland allt árið“ ekki síst ganga út á að dreifa ferðamönnum yfir árið og um landið. Nauðsynlegt að standa vörð um „vöruna“  80% koma vegna náttúru Íslands  Unnið að lausnum Ræsi á Landmannaleið » Í viðtali við Ólaf B. Schram, sem Morgunblaðið birti sl. mánudag, kom m.a. fram að sett hefðu verið þrjú ræsi í Klukkugilsfitjum á Land- mannaleið. » Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni eru tvö þeirra orðin um fimm ára gömul en því þriðja var bætt við í vor. » Ræsunum er ætlað að koma í veg fyrir að bílar festist í djúpum pyttum sem myndast á svæðinu og ekki stendur til að fjölga þeim frekar. Ragnheiður Elín Árnadóttir 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014 Hollar vörur úr náttúrunni Íslensk framleiðsla H-Berg efh | S. 565-6500 hberg@hberg.is | hberg.is Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Í tilkynningu frá Neytendastofu um merkingar á skartgripum úr eðal- málmum kemur fram að í mörgum tilfellum vanti merkingar á vörur sem seldar eru á mörkuðum og handverkssýningum. Sunnefa Hafsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Handverks og hönn- unar, kennir fjárhag og hugsunar- leysi um skort á merkingum. „Við hvetjum alltaf fólk til að merkja vörurnar sínar, því þá verður varan merkilegri fyrir framtíðina. Yfir- leitt eru það einyrkjar sem taka þátt í handverkssýningum en tölu- verður kostnaður felst í því að merkja vörurnar, sem útskýrir þetta kannski að einhverju leyti. Hjá mörgum er þetta líka bara hugsunarleysi að merkja vörurnar ekki. Ég hef starfað á þessu sviði í mörg ár og þetta hefur batnað með árunum.“ Þá var spurt hvað sé gert ef þátt- takandi í handverkssýningu á vegum Handverks og hönnunar merkir ekki vörurnar sínar nægilega vel. „Ef við tökum eftir því að vörur eru ekki merktar hjá fólki þá bendum við fólki á að laga það, enda er það allra hagur að vörur séu vel merktar,“ segir Sunnefa Hafsteinsdóttir. Jónum og Gunnum að kenna Arna Arnardóttir, formaður Fé- lags íslenskra gullsmiða, segir að Jónar og Gunnur úti í bæ viti ekki nægilega mikið um merkingar. „Oft og tíðum á handverkssýningum eru áhugamenn að sýna sem eru ekki gullsmiðir og kunna ekki að meta málmana og þekkja ekki reglurnar. Gullsmiðir þurfa að fara í langt og strangt nám og vita að vörur þurfa að vera vel merktar en þeir sem taka þátt í handverkssýningum eru Jónar og Gunnur úti í bæ sem vita ekki nægilega mikið um þetta. Þess vegna brýnum við fyrir fólki að versla við gullsmiði til að tryggja gæðin.“ Í könnun Neytendastofu voru 26 söluaðilar kannaðir og yfir 130 skart- gripir í skartgripaverslunum skoð- aðir og voru svo til allir með merk- ingar í lagi. Skorturinn á merkingum á skartgripum úr eðalmálmum er því bundinn við markaði og handverks- sýningar. Gerðar eru kröfur um tvær merk- ingar á skartgripum úr eðalmálm- um. Annars vegar hreinleikastimpil sem segir til um þann hreinleika sem seljendur lofa við sölu á vörunni. Hins vegar nafnastimpil sem segir til um hver sé framleiðandi eða innflytj- andi vörunnar en hann ber ábyrgð á vörunni. Skartgripir illa merktir á hand- verkssýningum  Fjárhag og hugsunarleysi kennt um  Oft áhugamenn en ekki gullsmiðir Morgunblaðið/Árni Sæberg Útstilling Neytendastofa skoðaði 26 skartgripaverslanir og voru allar með merkingar í lagi. Handverkssýningar og markaðir komu ekki jafn vel út.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.