Barnablaðið - 12.07.2014, Page 4
BARNABLAÐIÐ4
Áttu einhver systkini?
Já, eina systur sem heitir Hanna
Hulda. Hún er 12 ára, eða hún er
11 að verða 12 eftir fimm daga. Svo
á ég afmæli 7. október, síðastur í
fjölskyldunni.
Eruð þið Hanna góðir vinir?
Já, við erum það, en stundum förum
við að rífast.
Hvað gerið þið systkinin saman?
Við erum bara mest að spjalla eða
eitthvað svoleiðis. Við erum ekkert
endilega að leika okkur mikið. En
þegar ég var lítill var ég oft að leika
við hana. Hún leyfði mér alltaf að
leika með sér og vinkonu sinni þegar
ég var lítill. Hún var svolítið góð
við mig. Hún var bara sex ára eða
eitthvað svoleiðis og ég þriggja. Við
fórum stundum í Barbí og mér var
alveg sama í hvaða leik við fórum
þegar ég var þriggja ára.
Í hvaða skóla ert þú?
Laugarnesskóla. Svo er systir mín
að fara í Laugalækjarskóla, þar eru
krakkar sem eru 12-16 ára og svo
eftir það fer maður í menntaskóla.
Það er gaman í skólanum en
stundum var skemmtilegra í leikskóla
út af því að þá mátti ég alltaf leika
mér og það var frjálst í endann. En
í skóla þarf maður líka að læra. En
það er alltaf gaman að vera í fótbolta
eða körfubolta með strákunum eða
bara í einhverjum íþróttum að leika
okkur. Svo förum við út að leika í
frímínútum í 20 mínútur og svo aftur í
30 mínútur.
Hvað er uppáhaldsfagið þitt í
skólanum?
Íþróttir!
Áttu þér eitthvert uppáhaldsdýr?
Uppáhalds dýrið mitt er hundur. Ég
elska að elta hunda og leika mér við
þá og klappa þeim.
Áttu þér uppáhaldsmat?
Þetta er svolítið erfið spurning fyrir
mig. Það er alltaf eitthvað gott eins
og pítsa og hamborgarar.
Ég er ekkert í grænmetinu
en ég veit alveg hvað það er
hollt og mikilvægt, mér finnst
það bara ekkert sérstakt.
En mamma lætur mig alltaf
setja salat á pítsuna mína
og mér finnst það allt í lagi
því maður finnur ekki mikið
bragð af salatinu því
það er meira bragð af
pítsunni.
Hver er uppáhaldsíþróttin
þín?
Fótbolti! Að spila fótbolta
er það skemmtilegasta
sem ég geri, líka
körfubolti og frjálsar
íþróttir, en ég æfi frjálsar
íþróttir. Ég er lítið að
fylgjast með körfubolta
þó að mér finnist gaman
að spila hann. Ég held
samt með einu liði, það
er Lakers í Los Angeles og
pabbi minn heldur með
Spurs.
Hvert er
uppáhaldsfótboltaliðið
þitt?
Manchester United í
ensku deildinni og svo
held ég líka með Barcelona á Spáni
í ár en ég hélt einu sinni með Real
Madrid. Það er bara einn annar krakki
í bekknum mínum sem heldur með
Manchester United allir hinir halda
með Arsenal.
Ertu búinn að horfa eitthvað á HM?
Já, ég er búinn að horfa á eiginlega
alla leikina utan við svona sex. Ég hélt
sko með Spánverjum en svo duttu
þeir út og ég var ekkert sérstaklega
ánægður með það. Svo hélt ég með
Þjóðverjum og þeir eru búnir að
standa sig vel, þeir unnu Brasilíu 7-1
og þeir voru bara að leika sér í lokin.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór?
Örugglega bara fótboltamaður
eða bara einhver íþróttamaður í
einhverjum af þessum íþróttum sem
ég æfi. Það er held ég vegna þess að
ég hef svo mikinn áhuga á íþróttum.
Svo finnst mér gaman að hjóla.
Hvernig hjól áttu?
Ég er ennþá með hjálpardekk sem
ég er að fara að hætta með og svo er
ég stundum á hlaupahjóli sem systir
mín á, ég er bara nýbyrjaður að læra
á það.
En hvað gerir maður í frjálsum
íþróttum?
Maður hleypur rosalega mikið, metið
mitt í hlaupi er 60 metrar á 11,52
sekúndum. En einu sinni hlupum
við 100 metra á æfingu og þá var
ég eitthvað í kringum 20 sekúndur
minnir mig. Svo hoppar maður líka í
svona sand, það kallast langstökk.
Metið mitt í langstökki er 2,44 metrar.
Er það ekki svolítið gott met í
langstökki?
Jú, en heimsmetið er samt miklu
meira. Ég er að reyna að ná kannski
fjórum metrum.
Hvar ertu að æfa frjálsar íþróttir?
Í Laugardalshöllinni með Æskubúðum
Össurar. Ég er að æfa með fötluðum
og við erum svona fimm talsins eða
átta.
Hver er að kenna ykkur frjálsar
íþróttir?
Það er Teddi og Linda stundum.
Svo er Kalli að kenna körfuboltann
er átta ára strákur sem æfir
frjálsar íþróttir af kappi og hefur brennandi áhuga
á fótbolta. Hafliði þarf að nota gervifætur en
lætur ekkert stoppa sig og hugsar að hann verði
fótboltamaður þegar hann verður stór. Hafliði fæddist
með vanskapaða fætur fyrir neðan hné og þeir voru
teknir þegar hann var 11 mánaða og myndaðir stúfar
sem myndu passa vel í gervifætur.
Hafliði lætur ekkert
stoppa sig.
Hefur brennandi áhug
á öllum íþróttum
Hanna og Hafliði eru góðir
vinir
„A
sp
fótbolta
skemmt
sem ég
körfubolt
íþróttir
frjálsa
“jafn