Barnablaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 5
BARNABLAÐIÐ 5
Pennavinir
Góðan daginn,
Marta Omolara Adeleye heiti ég og mig langar að fá pennavini
á aldrinum 8-11 ára. Ég verð sjálf 9 ára á þessu ári.
Kv Marta Omolara Adeleye
Selvað 3
110 Reykjavík
og Nonni og Halli kenna
fótboltann. Svo eru einhverjir
fleiri líka sem koma stundum
og aðstoða. Metið þeirra í
að halda fótbolta á lofti er
eitthvað rosalega mikið.
En ert þú búinn að æfa þig í
að halda á lofti?
Já, ég er ekkert sérstakur en
ég hef náð fjórum.
Hver er uppáhalds-
fótboltamaðurinn þinn?
Ég held að það sé Cristiano Ronaldo.
Metið hans í að halda á lofti er eitthvað
í kringum 5.800 en þá nennir hann
ekki að halda á lofti lengur, það er
málið. Annars held ég að það væri
bara endalaust.
Hvaða krakkar eru að æfa með þér
frjálsar íþróttir?
Það er einn vinur minn þarna sem
er með hjartagalla og æðarnar hans
ná ekki að lengja höndina svo hann
er með stuttan handlegg. Hann á
svo góða frænku og hún styttir alltaf
peysurnar hans svo hann sé ekki með
síða ermi og þá getur hann alltaf notað
hendurnar. Svo þekki ég einn strák
sem er eldri en ég, hann heitir Hilmar
Björn Zoega og það vantar á hann einn
fót og við erum oft að spjalla og það er
gaman.
Eru krakkarnir í skólanum forvitnir
um fötlun þína?
Já, ég myndi segja það. En ég er svo
ánægður að vera í Laugarnesskóla
því ég er búinn að segja öllum þar frá
þessu. Krakkarnir voru alltaf að spurja
mig hvað hefði komið fyrir og maður
nennir ekkert alltaf að svara þessu.
Núna er ekkert verið að spyrja mig af
því að kennarinn sem ég var með í
öðrum bekk kenndi mér að fara bara í
fyrsta bekk og sýna þeim fæturna
mína og útskýra þetta fyrir þeim.
En stundum spyrja sumir en það
eru ekki margir.
Áttu marga gervifætur?
Já, nokkra, og það er verið að búa
til nýja fætur fyrir mig af því að ég
er að stækka. Stundum fer ég í
Össur þegar fæturnir eru orðnir
þröngir.
Fótbolti er uppáhalds
íþrótt Hafliða.
Gott er að nota
blýant til að
leysa þessa
þraut ef þú þarft
að stroka út vit-
leysur. Stóri fern-
ingurinn er búinn
til úr fjórum
minni ferningum.
Í hverjum litlum
ferningi eiga
tölurnar frá 1 til
4 að koma fyrir.
Eins eiga tölurn-
ar 1–4 að koma
fyrir í hverri línu,
bæði lárétt og
lóðrétt.
Krakka–Sudoku
LAUSN AFTAST
3 1
1 2
3
3
4
2
ga
Það er gaman að hoppa á
trampólíni.
Hafliði á nokkra mismu-
nandi gervifætur
Að
pila
a er það
tilegasta
g geri, líka
a og frjálsa
r
r en ég æfi
ar íþróttir.
nvel líka.“