Barnablaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 6
Vertu með blýant við höndina
og spreyttu þig!
BARNABLAÐIÐ6
Fróðleikur
Píanóleikari notar meiri orku þegar hann spilar á píanóið
í eina klukkustund heldur en múrari notar við að múra í
átta klukkustundir.
Finndu fimm villur
LAUSN AFTAST
Tengdu tölurnar
Föndur
Ef þú lendir í vand-ræðum finnur þúlausnirnar aftast.
Það er lítið mál að föndra svona flott ljón. Það sem þú
þarft er gult blað, hvítt blað, tússlitir, plastgaffall og
appelsínugul málning.
1. Teiknaðu hring með tússlit á gula blaðið.
2. Dýfðu plastgafflinum í appelsínugula
málningu og notaðu svo gaffalinn til að teikna
ljónsmakkann.
3. Teiknaðu tvö augu á hvíta blaðið, klipptu þau út
og límdu inn í hringinn sem þú teiknaðir á gula
blaðið.
4. Að lokum getur þú teiknað restina af andliti
ljónsins alveg eins og þér dettur í hug.