Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.06.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.06.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.6. 2014 Ótti ráðamanna í vestrænum ríkjum við hryðjuverk ísl- amista hefur aukist mjög síð- ustu vikur og mánuði vegna átakanna í Sýrlandi og nú einnig Írak. Vitað er að minnst 400 breskir múslímar hafa farið til Sýrlands til að taka þátt í „heilögu stríði“. Þeir fá þar þjálfun í vopna- burði og eflast í ofstækinu. Margir þessara manna eru áfram fullir vígamóðs þegar þeir snúa aftur heim og vilja berjast gegn raun- verulegum og ímynd- uðum fjendum ísl- ams. Nýlega myrti franskur íslamisti, sem nýlega var í Sýrlandi, nokkra gyð- inga í París. H arðar deilur hafa verið undanfarin ár í Danmörku um moskur sem músl- ímar í landinu vilja reisa en á fimmtudag var opnuð stærsta moska súnní-múslíma í landinu. Hún er á Norðurbrú í Kaupmannahöfn, með bæði kúpul og bænaturn (mínarettu), eins og guðshús múslíma eiga helst að vera með. Sjálf moskan er svo hluti af geysimiklum klasa með sam- komusölum, ýmsum menning- arstofnunum og leikvöllum á um sjö þúsund fermetra lóð. Kostnaðurinn var um 150 milljónir danskra króna, 31 milljarður ísl. kr. En verður þetta friðsamlegt guðs- hús eða tákn um nýjan sigur of- stækisfullra íslamista? Það sem veldur ótta um að moskan verði eins konar hugmyndafræðileg klakstöð fyrir ofstækisöfl og jafnvel hryðju- verk er forsagan. Dæmi eru um slíka misnotkun á moskum víða á Vesturlöndum. Eftir mikla eft- irgangsmuni tókst loks að fá fram hverjir bera kostnaðinn í Kaup- mannahöfn en þeir reyndust vera ráðamenn í olíufurstaríkinu Katar við Persaflóa. Katarmenn styðja m.a. við bakið á Bræðralagi músl- íma sem boðar harðlínustefnu í trúnni og náði um hríð völdum í Egyptalandi. Og ekki er Katar frekar en flest önnur arabaríki þekkt fyrir að heiðra lýðræðisgildi, réttindi kvenna, réttindi samkynhneigðra eða mannréttindi yfirleitt. Harðlínu- íslamistar halda á lofti hinum fornu lögum íslams sem eru enn, amk. að nafninu til, undirstaða lagakerfis í mörgum múslímalöndum. Þess má geta að herskáir múslímaklerkar fullyrða að í þeim séu ákvæði um að sá sem gangi af trúnni sé rétt- dræpur. Óttinn við að ofstækis- múslímar refsi trúvillingum með þessum hætti nægir til að fæla flest trúsystkin frá því að ögra þeim. Fjármögnun verði opinberuð Dönsk stjórnvöld ætla nú að gefnu tilefni að móta tillögur sem miða að því að varpa skýrara ljósi á fjár- mögnun trúarsafnaða, segir ráð- herra félagsmála, Manu Sareen. Við opnun moskunnar miklu í vikunni voru sárafáir áhrifamenn í stjórn- málum viðstaddir þótt þeir fengju boðsmiða, málið þykir greinilega ekki líklegt til vinsælda hjá almenn- um kjósendum. Athygli vakti að ekki einu sinni borgarstjóri aðlögunar innflytjenda, Anna Mee Allerselv, sem er úr röðum miðjuflokki Radíkala, mætti og hefur hún þó áður mælt ákaft með því að moskan fengi að rísa. Inger Støjberg, talsmaður miðju- hægriflokksins Venstre, segist hafa miklar áhyggjur af orðrómi um að Bræðralag múslíma tengist mosk- unni. „Ég vona að Pet [danska leyni- þjónustan] fylgist vel með staðnum og svo vona ég að hófsamir múslím- ar, eins og flestir múslímar í Dan- mörku eru, láti vera að heimsækja hana,“ segir Støjberg. En mega múslímar ekki reisa sér guðshús eins og aðrir trúarhópar? Þeir eru nær 180 þúsund, næst- stærsta trúarfylking Danmerkur og krefjast sömu mannréttinda og aðr- ir. Og fáir bera brigður á þá stað- hæfingu að allur þorri þessa fólks sé friðsamir borgarar. En þekktur múslími og gagnrýn- andi harðlínumanna íslams, Palest- ínumaðurinn Yahya Hassan, fékk ekki aðgang að moskunni þegar hún var tekin í notkun. Helstu talsmenn danskra múslímasafnaða hafa líka þótt ósannfærandi þegar þeir gagn- rýna ofstækisfulla bókstafstúlkun á kóraninum og öðrum helgiritum ísl- ams. Einkum þótti tvískinnungur danskra múslímaklerka koma vel fram fyrir nokkrum árum þegar dönsk blöð birtu teikningar sem sýndu Múhameð spámann í óvirðu- legu ljósi. Afstaða klerkanna til heiftarlegra viðbragða ofstæk- ismanna var þokukennd, enginn þeirra þorði að benda á að tjáning- arfrelsi væri í landinu. Menn yrðu bara að koma sér upp þykkari skráp eins og kristnir menn hafa gert. Þeir svara ekki móðgun við Guð með morði. Ef til vill voru klerkarnir hræddir um að kalla yfir sig morðingja harð- línuaflanna. Bandaríski lögfræðing- urinn Alan Dershowitz benti eitt sinn á að hryðjuverk eru stunduð vegna þess að oftast virka þau. Vestræn blöð eru vís til að birta skopmyndir af Kristi en ekki Mú- hameð spámanni, reynslan af því var slæm. Þau yrðu auk þess sökuð um rasisma. Tákn friðar eða ofstækis múslíma? DANIR ÆTLA AÐ SETJA SKÝRARI REGLUR UM FJÁRMÖGN- UN TRÚARSAFNAÐA. ÁSTÆÐAN ER AÐ AFTURHALDS- SAMIR MÚSLÍMAR Í KATAR HAFA KOSTAÐ MIKLA MOSKU SEM REIST HEFUR VERIÐ Í KAUPMANNAHÖFN. INNFLUTT OFSTÆKI Ghaith bin Mubarak Ali Omran Al-Kuwari (annar f.v.), ráðherra trúmála í Katar, í Rovsingsgade á Norðurbrú á fimmtu- dag þegar stærsta moska sunní-múslíma í Danmörku var tekin í notkun. AFP *Með moskunni fáum við því miður tákn um gildi semeru fjarlæg þorra Kaupmannahafnarbúa. Carl Christian Ebbesen, borgarstjóri menningarmála.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is HEIMURINN D Bretar ætla að opna ý, en því var lokað 20 r íslamistar, stuðn ar heran, ré ar upluð áð ra Br en úð en bann BANDARÍKIN WASHINGTON Bandaríkjamenn hafa ákveðið að f Ú vegna umd sem þreng að mannré samkynhne á um ævila samkynhne því að „rek henni. Úga tekið hafa gegn samk i munu ekki Bandaríkjanna, fram ýmissa verkefna í Úga verða skorin niður og hætt við sameiginlega heræfingar ÍN gegnÞrír baráttumenn maelsisdóngið langa fang s að emb uum auðæfi sín. Æ berjast gegn spill í Kína, en þeir sæ baráttu.r tð að grasrótarh m.a. aða dósty samanr se ÚKR Petro Po ur í 14 liðum um fhyggst leggja fram tillög insausturhéruðum lands . Fram kom að hann hefði Vladimír Pútín Rússlandsforsetatvisvar rætt í síma við jóst hvort Pútín lagði blessunum málið en ekki er l n. Porosénkó hefur þegar sksína yfir þessa áætlu að hann hyggist pnahléi til að ýta undir friðalýsa yfir einhliða vo ðræðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.