Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.06.2014, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.6. 2014
Græjur og tækni Klæðanleg tækni fyrir gæludýrin
Samkvæmt skýrslu frá IDTechEx er búist við að klæð-
anleg tækni fyrir gæludýr verði orðinn að tveggja millj-
arða dollara atvinnugrein eftir einungis 10 ár. Tæknin
er enn á frumstigi en þó er hægt að fá skynjara sem
lætur eigandannvita hvernig dýrunum líður og hvað
þau séu að gera meðan eigandinn sinnir vinnu.
É
g áætla svo að fyrst XL vill ekki
skrifa undir þessa nýju skilmála
verði öllum listamönnum útgáfunnar
úthýst frá síðunni,“ segir Kári
Sturluson, umboðsmaður Sigur Rósar.
Myndskeiðavefurinn YouTube, sem er í
eigu Google, mun taka stakkaskiptum á
næstu dögum og verða líkari tónlist-
arveitum eins og Spotify, Beats Music eða
Amazon Prime Music þar sem notendur
greiða mánaðargjald til að hlusta á tónlist
sem er inni á síðunni.
Með þessu fyrirkomulagi geta notendur
sloppið við að horfa á auglýsingar fyrir
myndskeið og á að vera hægt að hlusta og
horfa á myndböndin í síma, tölvu eða
spjaldtölvu og jafnvel án nettengingar.
XL Recordings, sem gefur út Sigur Rós,
Adele, Jack White, Radiohead, The xx og
Vampire Weekend svo fáein bönd séu
nefnd, er eitt fárra sem ekki vill skrifa
undir þessa nýju skilmála því samkvæmt
viðtali við Robert Kyncl, viðskiptastjóra
YouTube, í Financial Times hafa 95% allra
plötufyrirtækja skrifað undir nýju skil-
málana, meðal annars risarnir þrír Univer-
sal, Sony og Warner Music Group.
Snýst um lægri stefgjöld
Þau fimm prósent sem hafa ekki skrifað
undir eru óháð hljómplötufyrirtæki.
Samkvæmt heimildum Billboard snýst
deilan um að Youtube er að bjóða
lægri stefgjöld en áður og að minni
útgáfufyritækin fái minna í sinn
hlut en þau stóru. Hótunin að
myndbönd listamanna verði
svo tekin af síðunni hefur
hleypt illu blóði í óháðu
útgáfufyrirtækin. You-
tube greiðir hundruð
milljóna dollara í
stefgjöld á ári til
listamanna.
Alison Wenham,
sem stýrir World-
wide Independent
Network, sem er eins
konar regnhlífarsamtök yfir
óháðu útgáfurnar, sagði í
samtali við BBC að You-
Tube væri að gera
gríðarleg mistök og
ekki að lesa rétt í
markaðinn.
„Við höfum reynt
og erum öll af vilja
gerð að hjálpa You-
Tube að skilja hversu mikilvægt það er
fyrir hvaða tónlistarveitu sem er að hafa
gott samstarf við óháðu útgáfufyrirtækin.
Það á ekki að vanmeta okkur þó að við
séum lítil,“ sagði Wenham og bætti við.
„Ef áskrifendur YouTube fá ekki aðgang
að óháðri og sjálfstæðri tónlist er þetta
dæmt að mistakast. Meirihlutinn af
okkar félagsfólki er vonsvikinn
með þá vanvirðingu og skiln-
ingsleysi sem YouTube hefur
sýnt okkur.“
Lítið heyrist frá risanum
Samkvæmt Businessweek
munu sjálfstæðu plötufyr-
irtækin enn vera að bíða eftir
betra tilboði frá Google, eig-
anda YouTube.
Enn er ekki vitað hvort You-
Tube muni fjarlæga myndbönd
þessa listamanna alveg eða þau
verði útilokuð frá þeim pakka sem
vefsíðan mun byrja að bjóða upp á
innan skamms. Lítið hefur heyrst
frá Google nema þau orð við-
skiptastjórans að þessi nýja þjón-
usta muni taka gildi á næstu dög-
um.
XL RECORDINGS, SEM GEFUR ÚT SIGUR RÓS, ER
EITT ÞEIRRA FYRIRTÆKJA SEM HAFA NEITAÐ AÐ
SKRIFA UNDIR NÝJA SKILMÁLA MYNDSKEIÐA-
SÍÐUNNAR YOUTUBE OG VERÐA LISTAMENN ÚTGÁF-
UNNAR FJARLÆGÐIR AF SÍÐUNNI. ADELE, RADIOHEAD OG JACK WHITE
MUNU ÞVÍ HLJÓMA EINHVERS STAÐAR ANNARS STAÐAR EN Á YOUTUBE.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Það getur verið
notalegt að
hlusta á Adele.
Tónar Sigur
Rósar fjarlægðir
af YouTube
Tom Yorke,
söngvari
Radiohead.
Efni frá Sigur Rós og útgáfu-
fyriræki þeirra verður tekið af
Youtube náist ekki samningar.
AFP
Í Sádi-Arabíu eru uppi plön að byggja hæstu byggingu
heims sem mun heita Kingdom Tower. Mun turninn standa
einn kílómetra upp í loftið. Burj Khalifa er hæsta bygging
heims í dag, rúmir 830 metrar.
Prinsinn Alwaleed Bin Talal Bin Abdulaziz Alsaud valdi
finnska fyrirtækið Kone til að sjá turninum fyrir 65 lyftum
og segist hönnunardeild Kone fundið upp nýja aðferð til að
hífa fólk upp í hæstu hæðir. Alls verða 157 hæðir á turn-
inum og útsýnispallur í 610 metra hæð. Þangað mun lyfta
frá Kone hífa upp fólk sem vill njóta útsýnisins og mun hún
ferðast 12,5 metra á sekúndu eða 750 metra á mínútu sem
slagar upp í eina hraðskreiðustu lyftu heims. Hraðskreið-
asta lyfta heims er núna í Taipei 101 turninum í Taiwan.
Búist er við að turninn verði tekinn í notkun 2018 en
hann mun kosta 1,2 milljarða dollara. Prinsinn ætti ekki að
vera í vandræðum með þá upphæð en hann er talinn eiga
34 milljarða dollaraað sögn Forbes-tímaritsins.
Hratt upp í hæstu hæðir
LYFTA Í TURNINUM KINGDOM TOWER Í
SÁDI-ARABÍU, SEM STANDA MUN ÞÚSUND
METRA UPP Í LOFTIÐ ÞEGAR HANN VERÐ-
UR FULLKLÁRAÐUR, MUN LYFTA FÓLKI UPP
UM 12,5 METRA Á SEKÚNDU.
Teikning af turninum í Sádi-Arabíu sem kallast King-
dom Tower. Hann mun ná þúsund metra upp í loftið
og skarta lyftum frá Finnlandi.
Ódýrt: Logitech
Verð: 19.990 krónur
Aðeins um: Hátalarakerfi með
djúpum bassa og 360° hljóði.
RCA og 3.5 mm jack tengi
Fæst í: Tölvulistanum
Miðlungs: Harman Kardon
Verð: 43.990 krónur
Aðeins um: Hátalarakerfi með
innbyggðum 40 watta magnara.
Fjölnota kerfi fyrir tölvur,
MP3, geislaspilara og fleira.
Fæst í: Sjónvarpsmiðstöðinni
Dýrt: LG
Verð: 149.995 krónur
Aðeins um: 430 watta 2.1
heimabíó. 3D Blu-ray spilari,
þráðlaust bassabox, WiFi og
Bluetooth og margt fleira.
Fæst í: Elko
ÓDÝRT, MIÐLUNGS OG DÝRT
2.1 hátalarakerfi