Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.06.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.06.2014, Blaðsíða 41
22.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 Á st mín á alvöru „outlett- um“ í útlöndum er tak- markalaus. Þá er ég ekki að tala um outlet sem selja staflana af fjöldaframleiddum gallabuxum eða eru með íþróttaföt uppi um alla veggi heldur outlet sem selja alvöru góss. Þegar ég segi „al- vöru góss“ þá er ég að meina vörur frá flottustu tískuhúsum heims úr eðalefnum og með fáguðu sniði. Þannig er nefnilega mál með vexti að alvöru tískuhús gera alltaf ráð fyrir að selja mun meira en þau gera í raun og veru og því verður alltaf smá afgangur og honum þarf að koma í verð. Verðið á öllu fínerínu er því oft bara brot af upphaflega verð- inu, sem réttlætir auðvitað öll þessi kjarakaup. Tók enginn kúrsa í Hag- fræði 101 eða eitthvað? Minn nördalegi áhugi á outlettum hefur dregið mig á marga skemmti- lega staði í gegnum tíðina og oft hef ég lent í ævintýrum á þessum ferð- um mínum sem hafa nú aldeilis kryddað tilveruna. Áður en ég fór í fyrsta skipti til Ítalíu hitti ég góða vinkonu mína sem hafði búið í landinu í þó nokkurn tíma. Hennar fyrsta verk var að kynna mig fyrir The Mall, sem er við gamla þjóðveginn sem liggur í gegn- um Toskana á Ítalíu. (Heimilisfangið er: Via Europa 8, 50060 Leccio, Reg- gello, fyrir þá sem verða að komast þangað strax á morgun). Í þessu outletti hef ég keypt alls konar fínerí í gegnum tíðina frá Prada, Gucci og Marni. En þar er að finna góss frá öllum helstu tískuhúsum þessa hluta Evrópu, eins og YSL, Pucci, Roberto Cavalli og Fendi. Það sem ég hef keypt í þessum ferðum mínum hefur verið notað upp til agna og gott betur. Eina eftirsjáin er eftir því sem ekki var keypt … en það er allt önnur saga. Þegar ég gekk með frumburð minn árið 2006 fór ég með vinkonu minni í húsmæðraorlof til Ítalíu (eins og allar virðulegar litlar frúr gera). Á ein- hverju augnabliki ferðarinnar áttaði ég mig á því að ökuskírteinið hafði orðið eftir heima, sem setti allt í uppnám hjá ungliðahreyfingunni. Um stund leit út fyrir að litlu frúrnar kæmust ekki í The Mall vegna bílleysis. Þær dóu þó ekki ráðalausar, heldur hringdu heim í þáverandi eiginmann undirritaðrar, sem áttaði sig á vandamálinu á núlleinni og sendi öku- skirteinið með hraðpósti … eins og allir alvöru gæjar myndu gera. Í ákveðinni kreðsu sem ég tilheyri er töluvert rætt um „alvöru góss“. Þegar ég sagði vinkonu minni að ég væri á leið í litla Parísarferð tók hún andköf og sagði: „Þið verðið að fara í La Vallée Village. Þetta er bara 40 mínútur fyrir utan París.“ Á núlleinni var ég búin að finna út hvaða góss væri fáanlegt á La Vallée Village og hvernig væri best að komast þangað. Þegar La Vallée Village- dagurinn rann upp blés ég hárið, klæddi mig í kjól og setti á mig varalit. Guggur í teygðum kvennahlaupsbolum og með lendatöskur fá nefni- lega ekki afgreiðslu í þessum verslunum sem selja svo fína kjóla að þeir eru læstir við slárnar. Það borgar sig því að skarta sínu fínasta og treysta svo bara á að það sé ennþá heimild á kortinu þegar kemur að því að borga … martamaria@mbl.is Roberto Cavalli er með verslun á La Vallée Village. Í þeirri verslun voru kjólarnir læstir við slárnar. Þessa mynd tók ég í Diane von Fur- stenberg versluninni í La Vallée Vil- lage í Frakklandi. Heimilisfangið er 3 Cours de la Garonne, 77700 Serris. Það er sko alveg hægt að eyða deginum í La Vallée Village. Svona er stemningin á La Vallée Village í Frakklandi. Er ekki örugg- lega heimild á kortinu? SPORTÍS MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS KAYANO - DÖMU CUMULUS - DÖMU NIMBUS - DÖMU Verð: kr. 30.990.-Verð: kr. 26.990.-Verð: kr. 32.990.- KAYANO - HERRA Verð: kr. 32.990.- CUMULUS - HERRA Verð: kr. 26.990.- NIMBUS - HERRA Verð: kr. 30.990.- Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16 Ertu að fara í brúðkaup?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.