Morgunblaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 75
75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2014
Við elskum lífrænt
1 paprika, skorin í teninga
1 laukur, skorinn í teninga
1 msk engifer, rifið
2-3 msk rautt karrímauk (ég notaði Blue dragon red curry
paste)
2 dósir kókosmjólk (ég notaði Blue dragon coconut milk)
500 ml kjúklingakraftur (3 kjúklingateningar leystir upp í
500 ml heitu vatni)
2 msk fiskisósa (ég notaði Blue dragon fish sauce)
2 msk púðursykur
2 msk hnetusmjör
1-2 dl grænar baunir, frosnar (má sleppa)
3 kjúklingabringur, skornar í teninga og steiktar á pönnu
1 límóna
Til skrauts:
Saxaðar salthnetur
límónusneiðar
kóríander
hrísgrjón, elduð (má nota núðlur)
Léttsteikið lauk og papriku og bætið engifer saman við.
Bætið rauðu karríi, kókosmjólk, kjúklingakrafti, fiski-
sósu, púðursykri, hnetusmjöri og baunum saman við og
hrærið vel í. Leyfið súpunni að malla við lágan hita í 45
mínútur eða eftir því sem tíminn leyfir.
Kreistið safa úr einni límónu út í og bætið einnig kjúk-
lingakjötinu saman við. Smakkið hana til og fyrir þá sem
vilja hafa súpuna sterka má bæta 1-2 tsk af minced hot
chili út í.
Setjið súpuna í skálar og toppið með soðnum hrís-
grjónum/núðlum, söxuðum salthnetum, límónusneiðum
og jafnvel kóríander.
Vandræðalega góð kjúklingasúpa með
hnetusmjöri og rauðu karríi
80 g haframjöl
1 þroskaður banani
4 eggjahvítur
5 msk whey prótein frá Now, van-
illu- eða súkkulaðibragð
hnífsoddur kanill (má sleppa)
1 tsk vanilludropar
möndlumjólk til þykkingar, eftir
þörfum
4 msk grísk jógúrt
Bláberjasósa
100 g bláber
1 msk agave-sýróp
Setjið haframjölið í matvinnslu-
vél og fínmalið þar til áferðin er
orðin lík hveiti.
Blandið saman haframjöli, pró-
teini og kanil. Geymið.
Stappið banana og blandið síðan
eggjahvítum og vanilludropum
saman við bananann og hrærið vel.
Hellið bananablöndunni saman
við haframjölsblönduna og hrærið í
dágóða stund. Ef þörf er á bætið þá
örlitlu af möndlumjólk saman við.
Setjið olíu á pönnu og hitið hana
vel. Bætið þá deiginu út í og steikið
pönnukökurnar í 1-2 mínútur á
hvorri hlið.
Gerið bláberjasósuna með því að
láta bláber og sýróp saman í pott
við vægan hita. Kremjið berin og
þegar sósan er tilbúin takið hana þá
af hitanum og setjið í skál.
Staflið pönnukökunum á disk,
látið 2 msk af grískri jógúrt ofan á
og hellið bláberjasósu yfir.
Prótein-
pönnukökur
með grískri
jógúrt og blá-
berjasósu
– með morgunkaffinu