Barnablaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 5
BARNABLAÐIÐ 5
nefnt garðyrkju en þá væri
ég reyndar að plata.
Sólveig: Mér finnst mjög
gaman að fara á hestbak,
út að hjóla, leika mér við
stelpurnar mínar og vera
með vinum mínum.
Hvað þurfa krakkar að gera sem
hafa áhuga á að verða leikarar í
framtíðinni?
Svenni: Það sama og með allt
annað, æfa sig og hafa gaman af
því. Eða eins og máltækið segir:
,,Æfingin skapar leikarann.‘‘Eða
eitthvað svoleiðis.
Sólveig: Það er líka sniðugt að fara
á leiklistarnámskeið og sjá hvort
manni finnist þetta ekki örugglega
skemmtilegt. Svo er gott að skrifa
sögur og búa til leikrit með vinum
sínum. Það er góð byrjun.
M
yn
di
r/
Ó
m
ar
og
So
lla
M
at
t
Skalla-Pétur
kveður.
,,Ég
hef aldreiverið einsdrullugur og íþessari
sýningu‘‘
Maður þarf að æfa sig mikið
til að verða leikari.
xxxxxxxxxxxx
Svenni og Sólveig að fíflast.
Sólveig og Svenni eru drullug
eftir að hafa leikið í Lífinu.