Barnablaðið - 22.11.2014, Qupperneq 4
BARNABLAÐIÐ4
Fulltrúar ungmennaráða Barnaheilla, UNICEF og
Umboðsmanns barna sátu fund ríkisstjórnar Íslands
í vikunni í tilefni af afmæli Barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna. Barnablaðið hitti þær Lilju Reykdal
Snorradóttur, 15 ára, Söru Mansour, 17 ára, og Lilju
Hrund Lúðvíksdóttur, 15 ára, en þær gera sitt besta
við að standa vörð um réttindi barna.
Í hvaða ungmennaráði eru þið?
Lilja: Ég er í ungmennaráði
Barnaheilla.
Við viljum vinna að því að bæta
réttindi barna og passa upp á
það börn hafi það gott og líði vel
allsstaðar og alltaf.
Sara: Ég er formaður ungmenna-
ráðs UNICEF.
Við fáum þann heiður að snúa
okkur meira að nánasta umhverfi;
meðan UNICEF á Íslandi leggur
meiri áherslu á þróunarlönd erum
við meira með innlend málefni á
okkar könnu.
Lilja Hrund: Ég er í ungmennaráði
UNICEF.
Hafið þið verið lengi í ykkar
ungmennaráðum?
Lilja: Ég er tiltölulega nýbyrjuð.
Lilja Hrund: Ég er nýbyrjuð líka.
Sara: Ég er búin að vera í fjögur ár.
Þið fóruð á fund með ríkisstjórn-
inni. Af hverju?
Lilja Hrund: Ríkisstjórnin bauð
okkur á fund í tilefni af 25 ára
afmæli Barnasáttmála sameinuðu
þjóðanna. Við vorum þar
talsmenn barna og
ungmenna að
segja hvernig
börn upplifa sig
í samfélaginu
og hvað okkur
finnst megi
laga í þeim
málefnum sem
tengjast börnum.
Hvernig gekk á
fundinum?
Sara: Það gekk vel, við
vorum rosalega þakklát fyrir
áheyrnina. Við komum okkar til
skila og vonum að ráðherrar muni
hafa okkar tillögur í huga við
framtíðarákvarðanatökur.
Hverjir voru á fundinum?
Lilja: Við vorum sex fulltrúar
frá ungmennaráðum Barna-
heilla, UNICEF og Umboðs-
manna barna.
Lilja Hrund: Og flestir ráðherra
ríkisstjórnarinnar.
Þið hittuð helstu ráðamenn
þjóðarinnar, var það ekkert
skrýtið?
Lilja: Jú, ég var alveg smá
stressuð.
Lilja Hrund: Þetta er mikill
heiður, þetta eru nú einu
sinni valdamestu embætti á
landinu. Þannig að þetta er
ekkert smámál.
Hvað fór fram á fundinum?
Lilja: Við kynntum hvert
okkar eitt málefni. Síðan voru
samræður.
Lilja Hrund: Ráðherrarnir þökkuðu
okkur fyrir. Við komum með okkar
punkta. Ég held að þeir hafi ekki
gert ráð fyrir því að það væri
eitthvað til í því sem við myndum
segja. En þeir vissu samt að við
höfðum rétt fyrir okkur
og fóru í smá vörn
og svöruðu allir á
sama hátt.
Við t.d.
komum inn á
geðheilbrigð-
ismál og
bentum á að
þar væri léleg
þjónusta fyrir
börn og ungl-
inga. Þá fengum
við þau svör að við
ættum að tala við vini
okkar og láta þá vera geðlækna af
því það vantar lækna. Það fannst
okkur dálítið spes. Það er hins
vegar ekki á okkar ábyrgð að halda
geðheilbrigðiskerfinu uppi.
Sara: Það voru klár vonbrigði að
við vorum að búast við því að það
yrði talað við okkur sem jafningja.
Þau töluðu dáldið þannig að þau
gætu ekki gert betur og væru að
gera sitt besta. Þau eru eflaust að
gera sitt besta en það þýðir ekki
þau séu yfir gagnrýni hafin.
Lilja Hrund: Við erum líka ekki að
ætlast til þess að nýr spítali rísi á
morgun eða ný aðalnámskrá verði
tekin upp í næstu viku. Við erum
bara að koma með tillögur og við
vonumst til að það verði tekið
mark á þeim.
Hvað viljið þið sjá betur fara í
menntamálum?
Lilja: Við viljum meira praktískt
nám. Meiri lífsleikni og að okkur sé
kennt betur á lífið. T.d. Jafningja-
fræði, fjármálalæsi, kynjafræði,
fjölmiðlalæsi.
Lilja Hrund: Við vorum líka að
benda þeim á að þegar það er
verið að taka stórar ákvarðanir
varðandi menntamál þá ætti að
vera í samráði við þá sem eru í
skóla núna. Ekki bara þá sem voru
í skóla fyrir 20 árum.
Hvernig komið þið annars sjónar-
miðum ykkar ungmennaráða
almennt á framfæri?
Sara: Við leggjum áherslu á að
ná til jafnaldra og þeirra sem eru
yngri.
Lilja: Skrifum greinar og við tölum
um þetta við vini okkar.
Lilja Hrund: Við erum með á döf-
inni herferð sem heitir Heilabrot
og snýst um vitundarvakningu á
aðstæðum í geðheilbrigðismálum
á Íslandi. Þetta er allt að fara af
stað.
Var einhver ávinningur
af fundinum?
Lilja: Vonandi hafa þeir það meira
í huga núna að börn vilja taka
þátt í ákvörðunum sem snúa að
börnum. Börn eru sérfræðingar í
að vera börn.
Lilja Hrund: Við erum allavega
búin að brjóta ísinn. Þetta er bara
byrjunin hjá okkur.
„Við
komum ok
kar
til skila og
vonum
að ráðherr
ar muni
hafa okkar
tillögur í
huga við fr
amtíðar-
ákvarðana
-
tökur.“
Börn eru
sérfræðingar
í að vera börn
SARA
LILJA