Málfríður - 15.03.2005, Side 3
MÁLFRÍÐUR 3
Í þessu tölublaði Málfríðar fá lesendur tækifæri
til að kynnast nýju tungumáli, töluvert ólíku því
sem flestir þeirra eiga að venjast, þ.e. táknmáli.
Rannveig Sverrisdóttir, lektor í táknmálsfræði við
Háskóla Íslands, fræðir lesendur um grundvallarat-
riði íslenska táknmálsins í mjög áhugaverðri grein
þar sem hún reifar einnig stuttlega sögu táknmáls-
ins.
Málsnið talmáls í frönsku er efni greinar Jóhönnu
Bjarkar Guðjónsdóttur sem og réttmæti þess að
sinna því í frönskukennslu í íslenskum skólum. Er
greinin byggð á fyrirlestri sem fluttur var í sept-
ember síðastliðnum á vegum Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
Samuel Lefever fjallar um efni sem æ meira ber á
í umræðum um tungumálakennslu: Hlutverk henn-
ar í fjölmenningarlegri Evrópu framtíðarinnar og
hvernig þarf að laga hana stöðugt að nýjum aðstæð-
um. Í þessu sambandi má svo sannarlega segja að
eftirfarandi húsgangur eigi vel við:
Gott er að vera ennþá ungur
og eiga í vændum langan dag
numið geta nýja tungu
nýja siði og háttalag.
Skemmtileg frásögn Önnu Jeeves mun svo koma
lesendum í sumarskap og jafnvel verða þeim hvatn-
ing til að leggjast í víking á komandi sumri!
Efnisyfirlit
Rit stjórn arrabb . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3
Alþjóðlegt samstarf STÍL . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5
Talað ritmál/ritað talmál – Vandinn
að kenna mismunandi málsnið frönsku . . . . 7
Táknmál – tungumál heyrnarlausra . . . . . . . . . . 14
Frá FEKÍ, Félagi enskukennara á Íslandi . . . . . . 19
Aðalfundur STÍL . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 19
Samræður milli menningarheima . . . . . . . . . . . . 20
Sigurborg Jónsdóttir - Nýr formaður STÍL . . . . 21
Námskeið í amerískum fræðum á vegum
Fulbright stofnunarinnar, júní–ágúst 2004. . . . 22
Fyrsti fagfundur grunn- og framhalds-
skólakennara í spænsku . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 24
The role of language teaching – looking
to the future . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26
Félag þýzkukennara – Sitthvað að gerast
og fleira á döfinni. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 30
Frá félagi frönskukennara á Íslandi . . . . . . . . . . . 31
Frá félagi dönskukennara . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 31
Málfríður
tímarit Samtaka tungumálakennara,
1. tbl. 2005
Útgefandi:
Samtök tungumálakennara á Íslandi
Ábyrgðarmaður:
Auður Torfadóttir
Ritnefnd:
Ásmundur Guðmundsson
Bryndís Helgadóttir
Halla Thorlacius
Jóhanna Björk Guðjónsdóttir
Prófarkalestur:
Eygló Eiðsdóttir
Umsjón með netútgáfu:
Guðbjartur Kristófersson
Málfríður á Netinu:
http://malfridur.ismennt.is
Umbrot, prentun og bókband:
Gutenberg
Póstfang Málfríðar:
Pósthólf 1110
128 Reykjavík
Eftirtalin félög tungumálakennara eiga fulltrúa
í ritstjórn Málfríðar haustið 2004:
Félag dönskukennara:
Bryndís Helgadóttir
Iðnskólanum í Hafnarfirði
heimasími: 557 4343
netfang:
bryndis.helgadottir@idnskolinn.is
Félag enskukennara:
Halla Torlacius
Garðaskóla
heimasími: 552 4509
netfang: halla@gardaskoli.is
Félag frönskukennara:
Jóhanna Björk Guðjónsdóttir
Háskóla Íslands
heimasími; 562 2677
netfang: jobg@hi.is
Félag þýskukennara:
Ásmundur Guðmundsson
Menntaskólanum í Reykjavík
heimasími: 568 1267
netfang: asmgud@mr.is
Ritstjórnarrabb
Forsíðumynd: Á kaffihúsi.