Málfríður - 15.03.2005, Page 5
MÁLFRÍÐUR 5
STÍL er aðili að FIPLV, Fédération Internationale des
Professeurs de Langues Vivantes, sem eru alþjóðleg
samtök tungumálakennara og eru ráðgefandi fyrir
UNESCO í málefnum tungumála. Innan FIPLV
starfa minni deildir, þar á meðal Nordic Baltic
Region (NBR), en STÍL starfar innan hennar ásamt
finnsku samtökunum SUKOL, þeim sænsku LMS,
norsku LMS og lettnesku samtökunum LALT. Í
undirbúningi er að stofna samtök tungumálakenn-
ara í Eistlandi og Litháen, en þau lönd hafa verið
gestir á ráðstefnum og málþingum NBR síðastliðin
ár. Samtökin skiptast á um að hafa umsjón með ráð-
stefnum eða málþingum á tveggja ára fresti. STÍL
skipulagði stóra ráðstefnu árið 2000 undir yfirskrift-
inni Fjöltyngi er fjölkynngi. Árið 2002 stóð SUKOL
fyrir ráðstefnu í Tallin þar sem fjallað var um allar
helstu stefnur og áherslur Evrópuráðsins í kennslu
tungumála, s.s. Rammaáætlunina í tungumálakennslu,
Portfolio, upplýsingatækni í tungumálakennslu og námi,
svo eitthvað sé nefnt. Það eru haldnir árlegir fundir
í stjórn NBR, en hana skipa nú Ranveig Reggestad,
frá LMS í Noregi, formaður, Diana Rumpide, frá
LALT, ritari, Guðrún H. Tulinius, gjaldkeri, frá
STÍL.og meðstjórnandi er Leena Hamalainen frá
SUKOL.
Síðastliðið sumar skipulagði LMS í Noregi málþing
í Vikersund, skammt frá Osló undir yfirskriftinni:
The Multicultural Aspect in the Foreign Language
Classroom, dagana 28. júní til 1. júlí. Við það tækifæri
hélt stjórnin tvo fundi, annars vegar stjórnarfund og
hins vegar fund í svæðisráðinu, en þann fund sátu
í boði stjórnar fulltrúi frá Sprogsam, dönsku sam-
tökunum, fulltrúi frá Eistlandi, FIPLV og kanadísku
samtökunum.
Á fundi stjórnar var samþykkt tillaga aðila sam-
takanna um að þeir sem sætu í stjórn NBR þyrftu
ekki að vera stjórnarmeðlimir í landssamtökum
sínum, heldur nægir að vera félagsmaður í sam-
tökunum.
Árgjöld voru samþykkt en þau eru 100 evrur
fyrir Noreg, Svíþjóð og Finnland, en 50 evrur fyrir
Ísland og Lettland. Á fundinum afhenti fráfarandi
gjaldkeri NBR, Leena Hamalainen, Guðrúnu fjárráð
samtakanna og ábyrgð yfir þeim.
Ákveðið var að setja upp vefsíðu samtakanna sem
hefði tengla í síður aðildarfélaga og FIPLV og halda
áfram að aðstoða félög tungumálakennara í Eystra-
saltslöndunum, á Grænlandi og í Færeyjum að
mynda samtök sem síðar gætu starfað innan NBR.
Hefur það verið stefna NBR að fá tungumálakenn-
ara í þessum löndum til að mynda samtök og í því
skyni hefur verið ákveðið að halda næsta málþing
í Riga í Lettlandi árið 2006 og fela LALT skipu-
lagningu þess. Er það samt sem áður ekki að fullu
frágengið, þar eð óvissa ríkir um hvar og hvenær
eigi að halda næsta heimsþing, sem er áætlað næsta
sumar í Kanada. Hugmyndin er að fjalla um nýjung-
ar í tungumálakennslu og námi í fjölmenningarlegri
Evrópu á málþinginu í Riga. Var ákveðið að halda
næsta stjórnarfund í Riga í vikunni fyrir páska 2005
og ákveða þá hver framvinda málsins yrði. Upp
kom nokkur gagnrýni á fundinum um tímasetn-
ingar ráðstefna og málþinga sem haldin hafa verið
undanfarin ár, sem er venjulega um mánaðamótin
júní/júlí þegar flestir gera ráð fyrir að vera komnir
í sumarfrí. Var rædd tillaga frá STÍL um að halda
næstu ráðstefnu í vikunni fyrir páska 2006 og stefna
að því að hún standi ekki lengur en 2 daga. Verða
aðstæður til þess skoðaðar á næsta fundi í Riga.
Á fundi svæðisráðsins sem haldinn var í beinu
framhaldi af stjórnarfundinum ræddum við stöðu
tungumála í löndum okkar. Gafst þar tækifæri til að
ræða yfirvofandi styttingu náms til stúdentsprófs
á Íslandi, sem flestum þótti eðlileg, enda nám til
stúdentsprófs í þeim löndum í flestum tilfellum, ef
ekki öllum, 3 ár og eru stúdentar þar flestir á aldr-
in um 18 -19 ára gamlir. Reynslan sýnir að við svo
stutt nám falla út greinar eins og tungumál önnur
en enska og er það áhyggjuefni fyrir framtíð tungu-
málakennslu í Evrópu þar sem nú er lögð vaxandi
Alþjóðlegt samstarf STÍL
Guðrún Tulinius, fráfarandi formaður STÍL og spænskukennari við MH
Þau leiðu mistök urðu
við birtingu þessarar
grein ar í síðasta tölu-
blaði að bæði nafn höf-
undar og mynd vantaði.
Biðst ritnefnd velvirð-
ingar á því.
Guðrún Tulinius