Málfríður - 15.03.2005, Qupperneq 30
30 MÁLFRÍÐUR
Félag þýzkukennara
Sitthvað að gerast og fleira á döfinni
FÞ (Félag þýzkukennara) boðaði til félagsfundar
föstudaginn 25. febrúar sl. í Goethe-Zentrum,
Laugavegi 18. Tilefnið var staða 3. erlenda tungu-
máls í hugmyndum menntamálaráðuneytisins um
styttingu náms til stúdentsprófs.
Eins og í fundarboðinu stóð, hafa þýskukenn-
arar líkt og margir aðrir tungu-málakennarar
þungar áhyggjur af fyrirhuguðum niðurskurði
á tungumálanámi á framhaldsskólastigi. Óskað
hafði verið nærveru menntamálaráðherra, en hann
hafði tilkynnt að Oddný Hafberg, verkefnisstjóri,
myndi sækja fundinn í sinn stað. Frummælendur
áttu að vera Gunnar I. Birgisson, alþm., for-
maður menntamálanefndar Alþingis, Kristín S.
Hjálmtýsdóttir, frkvstj. Þýsk-íslenska verslunar-
ráðsins, Bjarnheiður Hallsdóttir, frkvstj. ferðaskrif-
stofanna Katla-DMI, Katla-Travel og Viators og
áðurnefnd Oddný Hafberg. Sérstaklega hafði blm.
Morgunblaðsins, allri menntamálanefnd Alþingis
og Katrínu Jakobsdóttur verið boðið á fundinn.
Því er skemmst frá að segja, að Gunnar I.
Birgisson kvaðst hafa tvíbókað sig og kom því
ekki frekar en nokkur hinna þingmannanna í
menntamálanefnd, en Katrín og blm. mættu bæði
og í sunnudagsblaði Mbl. var ágæt grein um fund-
inn á bls. 4. Í framhaldi af fundinum og fjarveru
þingmanna varð að samkomulagi milli formanns
menntamálanefndar Alþ. og stjórnar FÞ, að tveir
fulltrúar FÞ kæmu á fund menntamálanefndar-
innar miðvikudaginn 2. mars sl. kl. 10:15. Á þann
fund fóru Oddný G. Sverrisdóttir, stjórnarmaður í
FÞ, varaforseti Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur
og forseti hugvísindadeildar HÍ, en með henni í
för var undirritaður. Virtist það koma flatt upp
á alþingismennina, að skv. tölum Hagstofunnar
var rétt tæpur þriðjungur framhaldsskólanema á
Íslandi ekki að læra neitt erlent tungumál skóla-
árið 2002-3. Á sama tíma segjast íslensk stjórnvöld
stefna að aukningu náms í erlendum tungumálum
fram til ársins 2010, sbr. Stokkhólmsályktun frá
2001 sem raunar er grundvölluð á samkomulagi
sem gert var í Lissabon árið 2000. Einnig hafði
nefndarmönnum verið send í rafpósti erindi þeirra
Kristínar og Bjarnheiðar.
Þá er FÞ búið að óska aftir samstarfi við STÍl,
Félag frönskukennara og Félag spænskukennara
um málþing um mánaðamótin mars/apríl um
þetta sama mál og hefur þeirri umleitan verið vel
tekið.
Um mánaðamótin apríl/maí er svo meiningin að
senda nokkra fulltrúa Íslands á Deutscholympiade
- þá fjórðu frá upphafi - en hún verður haldin í
Póllandi.
Fyrir skemmstu er lokið árlegri Þýskuþraut, sem
félagið stendur að í samvinnu við yfirvöld mennta-
mála í Þýskalandi og með milligöngu þýska sendi-
ráðsins í Reykjavík. Í framhaldi af henni fara vænt-
anlega 3 nemendur til þriggja / fjögurra vikna
dvalar í Þýskalandi í sumar.
Alþjóða þýskukennarasambandið (IDV) heldur
sitt 13. þing í Graz í Austurríki í sumar og hafa 18
íslenskir þýskukennarar boðað för sína á það. Að
auki fara tveir kennarar á tveggja vikna námskeið
í Lübeck og fjórir aðrir á námskeið í öðrum borg-
um Þýskalands í boði Goethestofnunarinnar.
Fyrir síðasta aðalfund FÞ, sem haldinn var 19.
apríl 2004, höfðu lög félagsins verið endurskoðuð
rækilega af þeim Valgerði Þ. E. Guðjónsdóttur og
Elnu Katrínu Jónsdóttur. Í framhaldi af þeirri end-
urskoðin voru gerðar allmargar lagabreytingar og
skal m.a. skv. þeim halda aðalfund félagsins fyrir
lok marsmánaðar ár hvert. Í samræmi við það
verður aðalfundurinn haldinn fljótlega eftir páska
á þessu ári.
F.h. stjórnar FÞ
Ingi S. Ingason, formaður