Málfríður - 15.03.2005, Blaðsíða 31
MÁLFRÍÐUR 31
Aðalfundur Félags dönskukennara var haldinn
17. febrúar sl. og var þá kjörin ný stjórn. Hafdís
Bára Kristmundsdóttir, kennari í Garðaskóla, sem
verið hefur formaður félagsins í fjögur ár, lét af for-
mennsku en mun gegna varaformennsku um sinn.
Nýr formaður félagsins var kjörin Auður Leifsdóttir,
en hún er dönskukennari í Kvennaskólanum Aðrir
í stjórn eru Bryndís Helgadóttir, IH sem er gjaldkeri
félagsins, Helene Havmøller Pedersen, MK er ritari,
og meðstjórnendur eru Guðrún Ragnarsdóttir, MH,
Jenný Steinarsdóttir, Valhúsaskóla og Kristín Jóna
Magnúsdóttir, Áslandsskóla. Úr stjórn gengu þær
Ágústa Harðardóttir og Marta Guðmundsdóttir.
Hjá félaginu er ýmislegt á döfinni núna í vor.
Föstudaginn 29. apríl kl. 14.00 verður haldinn
fagfundur í Kornhlöðunni við Amtmannsstíg. Í
ljósi þeirra breytinga sem fyrirhugaðar eru á efstu
skólastigum grunnskólans í tengslum við styttingu
framhaldsskólanáms til stúdentsprófs, verður yfir-
skrift fundarins „Ný sóknarfæri í dönskukennslu“.
Í því sambandi munu nokkrir valinkunnir dönsku-
kennarar segja frá spennandi valáföngum í dönsku
í framhaldsskólum sem og nýbreytni í starfi grunn-
skólans. Fagfundinum lýkur með sameiginlegum
kvöldverði.
Þann 26. maí kl. 20.15 verður haldinn kaffihúsa-
fundur í Skólabæ, en undanfarin ár hefur stjórn
félagsins gengist fyrir fundum þar sem félagsmenn
mæta og spjalla.
Almennt hefur þátttaka félagsmanna FDK í
starfsemi félagsins verið góð og vonar ný stjórn
að svo verði áfram. Það er vissulega krydd í til-
veru dönskukennara að 200 ára fæðingarafmæli
H.C. Andersen skuli vera fagnað nú í vor og af því
tilefni bauð Þjóðleikhúsið öllum félagsmönnum
á sýningu leikritsins „Klaufar og kóngsdætur“.
Dönskukennarar eru alltaf svo heppnir!
Auður Leifsdóttir, formaður FDK.
Frá félagi dönskukennara
Starf félagsins hefur verið með hefðbundnu sniði
það sem af er vetri. Árlegri ljóðakeppni frönsku-
nemenda er nýlokið, en hún var 5. mars. Er þetta
í tíunda sinn sem keppni þessi er haldin. Fór
hún fram í húsakynnum Alliance française og
var vel heppnuð í alla staði. Í þetta sinn komu
þrjú efstu sætin úr MR og FSu. Fyrstu verðlaun
fóru til ungrar stúlku úr MR og hlaut hún að
launum ferð til Frakklands á sumri komanda.
Annað og þriðja sætið fóru til nemenda úr FSu og
MR. Í dómnefnd sátu Brynhildur Guðjónsdóttir,
leikkona, Ásdís Magnúsdóttir, dósent við HÍ og
Olivier Tourneux, forstöðumaður menningarmála
við sendiráð Frakka.
Í vetur kom nýr sendiherra til starfa við franska
sendiráðið, Nicole Michelangeli. Eftir ljóðakeppn-
ina þann 5. mars bauð hún frönskukennurum til
smá samsætis í AF og ræddu menn m.a. málefni
er snerta kennslu tungumála eins og frönsku.
Sendiherrann er mjög áhugasamur (áhugasöm)
um frönskukennsluna hér og vill gjarnan fá að
heimsækja skólana og koma í frönskutíma.
Í sumar verður ekki um hefðbundið námskeið
að ræða hjá félaginu. Hins vegar er samt ætlunin
að hittast og fara yfir málin. Nú eru kennarar í
óðaönn að leita fyrir sér með nýtt kennsluefni.
Kennslubókin „Café crème“ sem flestir skólar
hafa notað er að renna sitt skeið á enda. Nokkrir
skólar hafa þegar skipt um námsbók og nota
bókina „Taxi“. Einn skóli notar bók sem nefnist
„Carte blanche“ og enn aðrir nota ekki ákveðna
kennslubók. Það verður því spennandi að setjast
niður í vor og heyra hvernig kennurum líkar sitt
námsefni.
Félagið okkar varð 30 ára sl. haust og af því til-
efni efndum við til vinnufundar og hátíðarkvöld-
verðar 25. feb. og fjölluðum sérstaklega um stöðu
frönskunnar sem þriðja tungumáls. Ekki er talin
vanþörf á því að ræða þessi mál vegna þess að
samkvæmt tillögum menntamálaráðuneytis um
breytta námsskipan til stúdentsprófs á að skerða
verulega kennslu þriðja og fjórða tungumáls í
framhaldsskólum landsins. Það er yfirlýst stefna
Evrópuráðsins að auka veg og vanda tungumála-
náms og skýtur það því skökku við að á Íslandi
skuli tungumálakennsla skert þegar í raun ætti að
auka hana.
Vera Ósk Valgarðsdóttir
formaður FFÍ
Frá félagi frönskukennara á Íslandi