Málfríður - 15.03.2005, Blaðsíða 32
32 MÁLFRÍÐUR
Nýtt og spennandi efni
FRANSKA OG SPÆNSKA
Hjá Máli og menningu er von á glænýju efni í
frönsku og spænsku fyrir haustið.
Carte blanche er námsefni í frönsku sem hentar
nemendum í fyrstu tveimur áföngum í framhaldsskóla.
Í lesbók er að finna fjölbreytta texta um fólk, menningu
og samfélag í Frakklandi og hinum frönskumælandi
heimi. Orðalistar, spurningar og æfingar fylgja hverjum
kafla. Auk þess er hlustunarefni með æfingum á
geisladiski sem fylgir bókinni, en á geisladiskum sem
seldir eru sérstaklega er að finna alla texta bókarinnar,
enn meiri æfingar og söngva. Í vinnubók eru æfingar af
ýmsu tagi við alla kafla lesbókarinnar.
Handbók um franska málfræði eftir
Katrínu Jónsdóttur er yfirgripsmikil
bók þar sem lögð er áhersla á
ítarlegar útskýringar, mörg dæmi og
aðgengilegar skrár. Bókinni fylgja
gagnvirkar æfingar á heimasíðu
Eddu.
Þær Margrét Jónsdóttir, Þórunn María
Bjarkadóttir og Ana Fernández hafa
tekið saman mikinn fjölda gagnvirkra
æfinga í spænsku sem koma út á
geisladiski ásamt bókarkveri með
málfræðiágripi. Hér er lögð áhersla á að
æfingin skapar meistarann!