Málfríður - 15.10.2012, Side 24
24 MÁLFRÍÐUR
„Heimsborgarafabrikkan“
Á Hugvísindasviði Háskóla Íslands starfar Deild
erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda .
Deildin er ein sinnar tegundar á Íslandi . Við DET –
eins og deildin er alla jafna kölluð – eru kennd 13 og
stundum 14 erlend tungumál, sum frá grunni (gríska,
ítalska, japanska, kínverska, latína, rússneska) en önnur
sem framhald tungumálakennslu í grunn- og fram-
haldsskólum landsins (enska, danska, norska, sænska,
franska, spænska og þýska) . Nú leggja tæplega 1000
nemendur stund á nám í erlendum tungumálum við
Háskóla Íslands og eru þá nemendur á meistara- og
doktorstigi og nemar við Tungumálamiðstöð Háskóla
Íslands taldir með .
Á öllum námsstigum leggja nemendur stund á ýmis-
legt fleira en eiginlegt tungumálanám . Námskeið í
stjórnmála- og menningarsögu viðkomandi landa eða
málsvæða eru iðulega kennd strax á fyrsta ári B .A .-
náms . Sama á við um námskeið í ritun og tjáningu, texta-
greiningu, málskilningi og málnotkun, vísindalegum
vinnubrögðum, bókmenntafræði, málfræði og mörgu
öðru . Á síðari stigum fá nemendur þjálfun í greiningu
bókmenntatexta og í kvikmyndarýni . Hugmyndasaga,
þýðingar og málvísindi eru einnig meðal þess sem
glímt er við . Hverjum nemanda er þannig gefinn
kostur á að auka skilning sinn og þekkingu á þjóðlífi
og menningu þeirra landa og málsvæða sem tilheyra
því tungumáli sem hann leggur stund á . Nemendur
öðlast þjálfun í því sem kallað hefur verið menningar-
læsi og geta borið titilinn „heimsborgari“ með réttu
– enda hafa margir þeirra dvalið og búið erlendis um
lengri eða skemmri tíma . Yfirskriftin „heimsborgarafa-
brikkan“ á því vel við þegar fjallað er um starfssemi
og starfsvettvang DET – Deildar erlendra tungumála,
bókmennta og málvísinda við Háskóla Íslands .
Fjölmargir nemendur DET dvelja hluta námstímans
við erlenda háskóla . Annars vegar nýta þeir sér sam-
starfssamninga sem gerðir hafa verið við háskóla víða
um heim . Hins vegar sækja þeir í sér-evrópska sjóði,
m .a . til Erasmus-áætlunarinnar, um dvöl við samstarfs-
skóla í Evrópu . Nemendur velja námskeið ytra í sam-
ráði við kennara sína hér heima og fá þau síðan metin
inn í nám sitt við Háskóla Íslands . Dvölin ytra seinkar
því ekki námsframvindu nemandans heldur stuðlar að
því að hún eða hann öðlist innsýn í starfshætti erlendra
háskóla, kynnist nýjum vinnubrögðum, víkki sjón-
deildarhringinn og lifi og hrærist í því málsamfélagi
sem áhuginn beinist að . Þessi reynsla verður enn eitt
lóðið á vogarskálar verðandi „heimsborgara“ sem eiga
eftir að láta til sín taka á öllum sviðum íslensks menn-
ingar- og þjóðlífs .
Hólmfríður Garðarsdóttir, Ph.D.,
deildarforseti og prófessor við
Deild erlendra tungumála, bók-
mennta og málvísinda
á Hugvísindasviði Háskóla
Íslands
Háskóli Íslands Háskólatorgi S. 570 0777 - Háskólinn í Reykjavík Sólinni Nauthólsvík S. 599 6469 boksala@boksala.is
www.boksala.is