Reykjanes - 30.10.2014, Síða 10

Reykjanes - 30.10.2014, Síða 10
10 30. OktóBEr 2014 Vogar: Nýverið var opnuð Tónlistarsmiðja Félagsmiðstöðin Boran býður upp á starf fyrir 12-16 ára. Opið er einu sinni í viku fyrir 12-13 ára og þrisvar sinnum í viku fyrir 14-16 ára. Nýverið var opnuð Tónlistarsmiðja sem gerir okkur kleift að ná til breiðari hóps. Fyrir utan fasta opnunartíma erum við í samstarfi við félagsmiðstöðvar á Suðurnesjum (SamSuð) og höldum saman ýmsa viðburði. Einnig tökum við þátt í viðburðum á vegum Samfés (Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi) Kálfatjarnarkirkja býður upp á barna og unglingastarf fyrir 6-16 ára einu sinni í viku. Ungmennafélagið Þróttur er með fjórar deildir, júdó, sund, körfubolta og knattspyrnu. Hjá Þrótti er breiður aldurshópur iðkenda, allt frá leikskóla- börnum að 17 ára aldri. Einnig býður Þróttur upp á námskeið í samstarfi við önnur félög, til að mynda er núna í gangi Taekwondonámskeið á vegum Taekwondo deildar Keflavíkur. Jóna Ósk Jónasdóttir Tómstundaleiðbeinandi Sandgerði: Virk félagsmiðstöð í bænum Hér í Sandgerði er ýmislegt í boði fyrir börn og unglinga á svæðinu. Við bjóðum upp á knattspyrnuæfingar fyrir alla aldurs- flokka og þar sem sveitarfélagið er lítið þá eru flokkarnir ýmist reknir í sam- starfi viðVíði í Garði eða Keflavík til að ná saman stærri hópum. Í körfubolta er æft í tveimur aldurs- flokkum, 12 ára og yngri og svo 13 ára og eldri. Yngri hópurinn er nú þegar búinn að taka þátt í einu fjölliðamóti sem gekk mjög vel. Um helgar er sund í boði fyrir alla, þó yngstu krakkarnir séu duglegri að nýta sér þær æfingar. Vel tókst til með Taekwondo nám- skeið í haust sem varð til þess að í síðustu viku byrjuðu Taekwondo æf- ingar í Sandgerði. Mikill áhugi er fyrir þessari íþrótt í bæjarfélaginu og hafa íþróttamenn ársins síðustu tvö ár verið Taekwondo iðkendur. Frábært skref hjá Taekwondo félagi Keflavíkur að vera komnir hingað til okkar. Seinna í vetur mun svo að öllum líkindum hefjast byrjendanámskeið í golfi. Golfklúbbur Sandgerðis glímir við sama vandamál og margir aðrir golfklúbbar, erfitt að fá nýja iðkendur. En aðilar á þeirra vegum stefna að því að fá kennsluréttindi í SNAG sem er byrjendanámskeið í golfi fyrir börn og stefnan er að hefja kennslu í Sandgerði strax á nýju ári. Auk þess reynum við reglulega að vera með ýmis námskeið fyrir börn og unglinga og er til að mynda dansnám- skeið að fara af stað núna fyrir elstu krakkana í leikskólanum og þau yngstu í grunnskólanum. Björgunarsveitin Sigurvon rekur unglingadeildina Von þar sem ungt fólk getur undirbúið sig fyrir þátttöku í björgunarsveitum. Þar er um skemmti- legar æfingar að ræða, mikla útiveru og ævintýraleg ferðalög. Við erum einnig með virka félags- miðstöð í bænum. Það ætti því ekki að vera mikið vandamál fyrir börn og unglinga á svæðinu að finna sér eitt- hvað til þess að gera eftir að skóla lýkur á daginn. S. Hilmar Guðjónsson Frístunda- og forvarnarfulltrúi Sandgerðisbæjar Garður : Barna og æskulýðsstarf Það sem helst er í boði fyrir börn í Garðinum er. Unglingaráð Knattspyrnu-félagsins Víðis heldur úti knattspyrnuæfingum fyrir öll börn á grunnskólaaldri. Mikið sam- starf er við Reyni Sandgerði sem og íþrótta- og ungmennafélagið Keflavík um knattspyrnuæfingarnar. Töf hefur orðið á útgáfu æfingatöflu vetrarins þar sem ráðningar á þjálfurum hafa dregist en von er til þess að hægt verði að koma út endanlegri æfingatöflu nú fyrir mánaðamót. Útskálasókn heldur kirkjan úti starfi fyrir öll grunnskólabörn í Garðinum. Æskulýðsfulltrúi Útskálasóknar hefur umsjón með því starfi og er það þremur hópum. Sex til átta ára börn mæta saman. Níu til tólf ára, NTT, eru saman og síðan þrír elstu árgangar grunn- skólans. Þemað er skapandi kærleikur í barna og æskulýðsstarfi og er starfið vel sótt. Sundæfingar fyrir grunnskóla- börn fara fram í sundmiðstöðinni í Garðinum á laugardögum og sunnu- dögum í umsjón Davíðs Valagarðs- sonar fyrrum sundkappa. Hreyfiþroskanámskeið er fyrir börn frá þriggja ára aldri á laugar- dagsmorgnum í umsjón Laufeyjar Erlendsdóttur íþróttakennara. Íþrótta- og æskulýðsnefnd Garðs hefur staðið fyrir styttri íþróttanám- skeiðum fyrir grunnskólakrakka með því markmiðiði að börnin fái að prófa sem flestar íþróttagreinar. Þau munu einnig verða í vetur þó dagskrá þeirra sé óljós á þessari stundu. Ungmennadeildin Rán hefur einnig verið með starf fyrir ungmenni frá þrettán til sautján ára, en þar fer fram kennsla í hinum ýmsu þáttum björg- unarsveitanna og frá krakkarnir að reyna sig við ýmislegt sem reynir á þau bæði líkamlega og andlega. Félagslífið í Gerðaskóla og félags- miðstöðinni Eldingu er samtvinnað og skipulegtur nemendaráð Gerðaskóla að félagslífsins í skólanum og í félagsmið- stöðinni með starfsfólki bæði frá skóla og félagsmiðstöð. Nýlega var dagskrá yfir það helsta í félagslífinu dreift í öll hús í Garðinum. Á heimasíðu Garðs má finna dag- skrá félagslífsins. Heimasíður. Félagsmiðstöðin á heimasíðu Garðs. http://svgardur.is/f%C3%A9lags- mi%C3%B0st%C3%B6%C3%B0 Facebook síða félagsmiðstöðvar- innar Eldingar. https://www.facebook. com/eldingin?fref=ts Facebook síða Æskulýðs- fulltrúa Útskálasóknar. https:// www.facebook.com/profile. php?id=100007099270891&fref=ts Facebook síða Björgunarsveit- arinnar Ægis í Garði. https://www. facebook.com/aegirgardi Heimasíða Víðis. http://vidirgardi.is Facebook síða Knattspyrnufélags- ins Víðis. https://www.facebook.com/ vidirigardi?fref=ts Guðbrandur J. Stefánsson. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Garðs. Hvað er í boði hjá sveitarfé- lögunum fyrir börn og unglinga Reykjanes leitaði til þeirra aðila í sveitarfélögunum, sem hafa á sinni könnu tómstunda-og æskulýðsstarf barna og unglinga í bænum. Hvað er það helsta sem boðið er uppá í þeim efnum í þínu sveitarfélagi. Reykjanesbær: Mikið framboð í Reykjanesbæ Stefán Bjarkason fram-kvæmdastjóri íþrótta-og tóm-stundasviðs benti Reykjanesi á upplýsingar í vefriti á eftirfarandi slóð: http: //issuu.com/grafiksmidi/ docs/veturireykjanes- b__2014_78d40e25f06be9 Í vefritinu eru upplýsingar um það fjölbreytta tómstunda-og menningar- starf sem er í boði fyrir börn og ung- linga í Reykjanesbæ. Framboð á þjónustu fyrir börn og ungmenni hefur aukist í Reykjanesbæ ár frá ári. Uppbygging á leiksvæðum, körfu- boltavöllum, gervigrasvöllum, vatns- leikjagarði, hreystibraut og 50 metra innisundlaug er einnig dæmi um þá þjónustu og árangurinn í íþróttum og skólahreysti lætur ekki á sér standa. Hvað er í boði fyrir börn og ung- menni. Í vefriti Reykjanesnbæjar eru ítarlegar upplýsingar um það. Fjárhagsaðstoð í Grindavík Fjöldi einstaklinga sem þegið hefur fjárhagsaðstoð fyrstu sex mánuði ársins er 38. Heildargreiðslur Grindavíkjur-bæjar vegna fjárhagsaðstoðar fyrstu sex mánuði ársins er kr. 15.675.170 Ferskir vindar í Garði Listahátíðin Ferskir vindar stóð yfir á tímabilinu 21. desember 2013 til 26. janúar 2014. Verndari hátíðar- innar er Dorrit Moussaieff. Þátttak- endur voru fjörutíu og fimm talsins af sautján mismunandi þjóðernum, úr nær öllum listgreinum. Í skýrslunni er fjallað um listahátíðina og ýmis- legt sem henni tengist. Bæjarráð lýsir ánægju með hve vel tókst til með lista- hátíðina Ferska vinda, þakkar öllum hlutaðeigandi fyrir þeirra framlag og aðstandendum hátíðarinnar fyrir gott samstarf.

x

Reykjanes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.