Selfoss - 16.01.2014, Blaðsíða 6
16. janúar 2014
FRÁ GRIKKLANDI
Ég hef áður minnst á grísk-an mat. Gríska eldhúsið er dæmigert Mijarðarhafseld-
hús þar sem eru áhrif frá Balkanskag-
anum, Tyrklandi og Mið – Aust-
urlöndum.
Hefðbundinn grískur matur er
einfaldur, litríkur og hlaðinn bragð-
miklum kryddum. Þótt margir rétt-
ir beri keim af forsögu Grikklands,
bera þeir sín sérkenni sem lítið hafa
breyst í gegnum árin. Grísk mat-
argerðarlist hefur langa hefð fyrir
vandaða matargerð.
Við fórum í fyrrasumar með tvo
átján ára ömmustráka í vikuferð til
Grikklands. Þeir heilluðust af matn-
um sem og öðru. Guðjón Helgi sem
er búsettur í Hollandi fékk óskagjöf-
ina í desember sem er bók á hol-
lensku um Gríska eldhúsið. Þegar
við vorum í heimsókn hjá þeim á
aðventunni fannst okkur tilvalið
að hafa grískt kvöld. Hann valdi
þrjár uppskriftiir úr bókinni góðu.
Dæmigerðar grískar uppskriftir.
Einn grænmetisrétt, einn fiskrétt og
svo dæmigerðar lambafarsbollur. Á
markaðnum fengum við svo í sölu-
básnum hjá „Grikkjanum“ ólífur,
tatziki, hrognakæfu, eggaldinmauk,
hummus, alvöru fetaost, ekta grískt
jógúrt og allskonar grænmeti.
Grænmetisrétturinn er mjög
skemmtilegur bæði sem réttur og
sem meðlæti.
Eggaldin -og tómata
„kökur“.
u.þ.b. 800 gr. eggaldin
1,5 dl. ólívuolía
2 stórir laukar, fínskornir
3 hvítlauksrif, pressuð eða skorin
mjög fínt
500 gr. vel þroskaðir tómatar, fín-
skornir og afhýddir ef vill (má nota
niðursoðna)
1½ tsk. þurrkað óregano og timjan
½ tsk. sykur
3 msk. söxuð steinselja (helst flat-
laufa)
1 msk. tómatpúrra, uppleyst í 1,5
dl. af heitu vatni
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð.
Skerið eggaldin í u.þ.b. sentimetra
þykkar sneiðar og steikið upp úr
helmingnum af ólívuolíunni þar til
sneiðarnar eru ljósbrúnar báðum
megin. Einnig er hægt að pensla
sneiðarnar með olíu og grilla á
grillpönnu.
Hitið olíu í potti eða pönnu og
steikið laukinn þar til hann er ljós-
brúnn. Bætið hvítlauknum við og
steikið í smá stund. Setjið tómatana,
tómatpúrruna, óregano, timjan,
sykur, salt og pipar og sjóðið sósuna
undir loki í u.þ.b. korter. Hrærið af
og til og bætið steinselju við í lokin.
Hitið ofninn í 190 gráður. Raðið
eggaldinsneiðunum í eldfast mót
eða ofnskúffu og setjið 1-2 msk. af
tómatmauki á hverja sneið. Bakið í
20-25 mín. Hægt er að bera réttinn
fram hvort sem er heitann eða við
stofuhita.
Smokkfiskur með kartöflum.
1 kg. smokkfiskur, hreinsaður og
snyrtur
1,5 dl. ólívuolía
1 stór laukur eða 2 minni (u.þ.b. 225
gr.) fínsaxaður
1,75. dl. hvítvín
3 dl. heitt vatn
500 gr kartöflur, afhýddar og skornar
í bita
4-5 vorlaukar, saxaðir
Safi úr einni sítrónu
4 msk. ferskt dill
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð.
Smokkfiskurinn skorinn í 2 cm
þykkar ræmur. Hitið olíu á pönnu
og steikið laukinn þar til hann hef-
ur tekið á sig ljósbrúnan lit. Bætið
smokkfisknum á pönnuna og steikið
þar til allur vökvi hefur gufað upp,
tekur 10-15 mín. Hellið hvítvíni á
pönnuna og leyfið að sjóða niður
áður en vatninu er bætt við. Eldið
undir loki í 10 mín. Bætið kartöflum,
vorlauk, sítrónusafa, salti og pipar og
vatni ef með þarf þannig að fljóti yfir.
Sjóðið undir loki í 40 mín. eða þar
til smokkfiskurinn er orðinn mjúkur.
Bætið dillinu á pönnuna og sjóðið í
5 mínútur í viðbót.
Hér hefur stundum verið hægt
að fá frosinn smokkfisk sneiddan
í hringjum. Smokkfiskur er mikið
borðaður í Grikklandi. Ef notaður
er annar fiskur má ekki sjóða hann
svona mikið heldur bæta honum í
pottinn rétt í lokin.
Kjötbollur í tómatsósu
Bollur:
50 gr. brauðmylsna
1,5 dl.mjólk
675 gr. lambahakk eða blandað
nauta-og svínahakk
2 msk. raspaður laukur, eða einn lítill
mjög fínt saxaður
3 hvítlauksrif, pressuð
2 tsk. cummin (broddkúmen)
2 msk. flatlaufa steinselja, fínsöxuð
Hveiti til að velta bollunum upp úr
Ólívuolía til steikingar
Tómatsósa:
2 dósir af söxuðum tómötum
1 tsk. sykur
2 lárviðarlauf
1 lítill laukur, fínsaxaður
Salt og pipar
Aðferð.
Blandið í skál hráefnunum fyrir
bollurnar, ásamt góðum skammti af
salt og pipar og vinnið vel saman.
Mótið bollur með höndunum og
veltið upp úr hveitinu. Hitið olíu á
pönnu og steikið bollurnar í u.þ.b.
8 mín. þar til þær eru vel brúnaðar.
Takið til hliðar og setjið hráefnin í
tómatsósuna á pönnuna. Látið sós-
una sjóða í 20 mín., bætið bollunum
við og sjóðið í 10 mín. í viðbót.
Þetta var frábært kvöld með
grískri músik og góðri stemningu.
En skemmtilegast var að elda með
ömmustráknum mínum.
Gangi ykkur vel og verði ykkur
að góðu.
Kveðja, KS
6
Allt í einum pakka í Víkingastræti
Öðruvísi stemmning
w w w . f j o r u k r a i n . i s - P ö n t u n a r s í m i : 5 6 5 1 2 1 3
Þrumandi þorrablót að hætti
Víkinga hefjast 24.janúar
ATH. Morgunmatur innifalinn í öllum pökkum.Tilboð gilda til 30. apríl 2014.
Aukanótt í 2ja manna herbergi kr. 5.000, á mann.
1. Þorrapakki:
Gisting, bjór og þorrahlaðborð.
Víkingasveitin leikur fyrir matargesti.
Tveggja manna herbergi kr. 13.400 á mann.
Þorrahlaðborð án gistingar kr. 6.600 á mann.
2. Árshátíðarpakki:
Gisting með fordrykk og þriggja rétta hátíðarkvöldverði.
Tveggja manna herbergi kr. 13.700 á mann.
3. Sælkerapakki:
Gisting og kvöldverður með þriggja rétta sælkeraveislu.
Tveggja manna herbergi kr. 13.000 á mann.
Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar.
www.fjorukrain.is
HLIÐ ÁLFTANESI
Veitingar og gisting
Hlið á Álftanesi
Við kynnum nýjan
möguleika í mat
og gistingu.
Verið velkomin
Víkingasveitin leikur fyrir matargesti
öll kvöldin eins og þeim einum er lagið.
Gerum tilboð fyrir hópa í gistingu og mat
Sérréttamatseðill
Pakkatilboð í Víkingastræti
Að hætti hússins
Kristjana Sigmundsdóttir
kristjanasig@simnet.is