Selfoss - 10.04.2014, Blaðsíða 6
6 10. apríl 2014
Þórsþing, sagnaþing til heiðurs Þór Vigfússyni fyrrum
skólameistara, var haldið sunnudaginn 6. apríl í
Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.
„Hér sé friður“
Gestum var boðið að lit-ast um og ferðast með Þór allt frá barnæsku. Í
skólastofum var brugðið upp á skjá
erindum og ræðuköflum sem Þór
hefur haldið í gegnum tíðina. Dag-
skráin sjálf var í hátíðarsal skólans.
Þingið hófst formlega kl. 14 með
því að hringt var skólabjöllu gamla
Iðnskólans. Félagar úr skólakórn-
um gengu í salinn og sungu Cum
Decore undir styrkri stjórn Jóns
Inga Sigurmundssonar. Var ekki
laust við að minningar leituðu á
hugann hjá gömlu félögunum.
Fyrsta atriði á dagskrá að lokn-
um söng kórfélaganna bar titil-
inn „Drengurinn Þór.“ Jón Özur
Snorrason hafði umsjón með minn-
ingarbrotum hans. Sagnamaðurinn
Þór lék stórt hlutverk. Þór minnist
m.a. sumranna í sveit. Þar sagði
fólkið sögur við matarborðið eftir
árangursríkan dag í heyskap. Það
voru sögur um fólk sem hafði búið
í sveitinni. „Sagnamenn líta ekki á
sig sem listamenn á þeim nótum.
Ekki ég heldur.“ Þór sagðist hafa lært
tvennt á sveitabæjum: matvinningur
af því að ég lærði að mjólka kýr og þá
lærði ég líka að slá gras með gömlum
ljá. „Ég hef aldrei litið á þessi verk
sem list, en auðvitað má segja að það
sem maður gerir skynsamlega sé list
í sjálfu sér.“
Hannes Stefánsson, kennari í FSu
rifjaði upp tímann í kennslu hjá Þór
á Laugarvatni. Þá dró Gísli Skúla-
son, kennari í FSu fram myndbrot
úr sögu skólans með Þór. Ýmis fleyg
orð og orðatiltæki voru rifjuð upp
og eignuð eru Þór. Eitt var „Nú er
bara eitt sem gildir; að fara ekki á
taugum.“ Og meinta flóamennsku
bar á góma. Þór hefði fært hana til
vegs og virðingar og undir það tóku
fleiri.
Gamlir nemendur út Mennta-
skólanum við Tjörnina rifjuðu upp
minningar úr kennslustundum hjá
Þór. Tímarnir hjá honum hefðu ver-
ið eftirminnilegir. Þór virtist alltaf
kunna leið til hins betra. „Einmitt
þessi dagur væri góður,“ var við-
kvæði. Einar Kárason rithöfundur
hafði mætt illa í þýsku. Þór fann leið
til að bjarga hónum frá falli í skól-
anum. Í skírteini Einars var skráð
„Kvikmyndir“ eftir að hafa lagt það
að Einari að vinna að kvikmynda-
gerð. Annar nemandi sagði Þór hafa
hrakið burt leiðindi og kvíða.
Guðrún og Snorri Sigfús Birgis-
börn (líka nemendur úr MT) fluttu
þjóðlag sem byrjað var á þegar Þór
og Hildur Hákonardóttir giftu sig
1976.
Listin að stjórna með pí - Sölvi
Sveinsson fyrrum skólameistari
greindi stjórnstíl Þórs. Það hefði
ekki verið tilviljun að Þór hefði
nefnt skrifstofu sína í skólanum
Ráðleysu. Þar ætti að leysa mál.
Hvar sem Þór hefði farið hefði and-
rúmsloftið breyst. „Hér sé friður,“
og meira þurfti ekki til. „Dásamlegt“
var annað orð sem Þór var tamt.
Fleiri röktu kynni sín af Þór.
Tryggvi Sigurbjarnarson af Þýska-
landsárum í byrjun kalda stríðsins
á sjötta áratug síðustu aldar.
Deginum lauk í Tryggvaskála í
kjötsúpu og rjómapönnukökum í
anda Þórs Vigfússonar.
ÞHH
Starfsmenn FSu (núverandi og fyrrverandi) fjölmenntu. Hér eru Gísli Skúlason,
Þórarinn Ingólfsson, Örlygur Karlsson og Olga lísa Garðarsdóttir.
Þær eiga góðar minningar úr FSu: Nanna Þorláksdóttir, Kristín Fjóla Bergþórs-
dóttir og Þórlaug Bjarnadóttir.
Kristjana Skúladóttir tengdi námsár Þórs í Þýskalandi í fallegum söng við
undirleik Vignis Stefánssonar.
Ármúli 17a . 108 Reykjavík . sími: 588 9933 | Miðás 9 . 700 Egilsstaðir . sími: 470 1600
www.brunas.is
Komdu í sýningarsali okkar og fáðu faglega þjónustu
og ráðgjöf innanhússarkitekta við val á Brúnás innréttingum
íslensk hönnun . íslensk framleiðsla
„Ég vel íslenskt...“
- Jói Fel
* Flytjandi ytur vöruna
á þá stöð sem næst er viðskiptavini
FRÍR FLUTNINGUR
Hvert á land sem er*