Selfoss - 08.05.2014, Blaðsíða 6
6 8. maí 2014
Öryggisvörur & vinnufatnaður
HAGI ehf – HILTI á Íslandi
Stórhöfði 37 - 110 Reykjavík - Sími 414 3700 - Fax 414 3720 - Póstfang: customerservice@hilti.is
Töff vinnufatnaður
frá Timberland PRO
Smart frá Snickers
Rykgrímur,
einnota og
fjölnota m/filter
Einungis vörur frá heims-
þekktum vörumerkjum
Öryggisskór í úrvali
Fallvarnir og
úrval fylgihluta
Eyrnatappa, einnota
og fjölnota
Öryggisgleraugu
Allt fyrir öryggið – Heyrnarhlífar frá Howard Leight/Bilsom
Vinnuvettlingar frá Sperian og North
Framboðslisti Vinstri
grænna í Árborg
Framboðslisti Vinstrihreyfingar-inna græns framboðs í Árborg
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í
vor liggur fyrir.
Eftirtalin skipa listann:
1. Andrés Rúnar Ingason, varabæj-
arfulltrúi
2. Margrét Magnúsdóttir, garð-
yrkjufræðingur
3. Haukur Örn Jónsson, fanga-
vörður og formaður Fanga-
varðarfélags Íslands
4. Elín Finnbogadóttir, ferðamála-
fræðingur og kennari
5. Óðinn Kalevi Andersen, skrif-
stofumaður
6. Anna Þorsteinsdóttir, landvörður
7. Sigurbjörn Snjólfsson, öryrki
8. Guðrún Lilja Magnúsdóttir,
námsmaður
9. Halldór Pétur Þorsteinsson,
verkfræðingur
10. Kristín María Birgisdóttir, bú-
fræðingur og nemi
11. Þröstur Þorsteinsson, vagnstjóri
Strætó
12. Guðfinna Ólafsdóttir, læknarit-
ari
13. Jóhann Óli Hilmarsson, fugla-
fræðingur
14. Ingibjörg Stefánsdóttir, flokk-
stjóri hjá I.S.S.
15. Sigfinnur Snorrason, jarð-
fræðingur
16. Guðrún Jónsdóttir, eftirlauna-
kona
17. Jón Hjartarson, fyrrverandi bæj-
arfulltrúi
18. Þórdís Eygló Sigurðardóttir,
bæjarfulltrúi og forstöðumaður
sundlauga Árborgar
Málefnaskráin byggir á grunngild-
um hreyfingarinnar þar sem áhersla
verður lögð á jöfnuð og félagslegt
réttlæti, umhverfisvernd, fjölbreytni
í atvinnulífi, nýsköpun og öflugt
skólasamfélag.
Hluti frambjóðenda, frá vinstri: Sigurbjörn Snjólfsson, Halldór Pétur Þor-
steinsson, andrés Rúnar Ingason, Elín Finnbogadóttir; margrét magnúsdóttir,
Guðrún Lilja magnúsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Guðfinna Ólafsdóttir,
Haukur Örn Jónsson
Íbúar fyrir austan
fjall leiksoppar
tilraunaverkefnis sem heitir Hellisheiðarvirkjun.
Bæjarráð Hveragerðisbæj-ar hefur fjallað um um-sögn Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands (HES) tímabundna
undanþágu frá hertum ákvæðum
í reglugerð 514/2010 um styrk
brennisteinsvetnis í andrúmslofti.
Bæjarráð fordæmir það að HES
skuli gefa jákvæða umsögn og veita
undanþágu.
„Bæjarráð vekur athygli á að
sambærilegar stofnanir á höfuð-
borgarsvæðinu hafa ítrekað mót-
mælt þeirri mengun sem nú berst
yfir höfuðborgarsvæðið enda er
hún heldur meiri þar miðað við
mælingar en reyndin er hér fyrir
austan fjall.
Bæjarráð undrast þau vinnu-
brögð að umsögn HES skuli vera
falin í fundargerð en ekki skýrt
greint frá afstöðu embætti sins og
íbúar þannig upplýstir um afstöðu
HES. Með slíkum vinnubrögðum
er alið á tortryggni og upplýsinga-
skylda embættisins að engu höfð.“
Þá segir í fundargerð ráðsins:
„Bæjarráð Hveragerðisbæjar
furðar sig á því að forsvarsmenn
Orkuveitu Reykjavíkur skuli ekki
fyrir löngu hafa nýtt sér þær lausnir
til mengunarvarna sem vitað er að
virka og hafa verið nýttar annars
staðar. Vonandi mun tilraunaver-
kefni um niðurdælingu gefa góða
raun en á meðan eru íbúar austustu
byggða höfuðborgarsvæðisins og
íbúar fyrir austan fjall leiksoppar
tilraunaverkefnis sem heitir Hell-
isheiðarvirkjun en berlega hefur
komið í ljós að þar var farið af stað
meira af kappi en forsjá.“
Framboðslisti Samfylkingarinnar
og óháðra í Hveragerði
Samfylking og óháðir bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í
Hveragerði. Framboðslistann skip-
ar fólk með fjölbreyttan bakgrunn,
menntun og störf. Jafnt kynjahlutfall
er á listanum.
Njörður Sigurðsson sagnfræðing-
ur og sviðsstjóri á Þjóðskjalasafni Ís-
lands skipar efsta sæti listans. Í öðru
sæti er Viktoría Sif Kristinsdóttir,
grunnskólakennari og verkefnastjóri
við Grunnskólann í Hveragerði,
Guðjón Óskar Kristjánsson bifvéla-
virki og tónlistarmaður í Hveragerði
skipar þriðja sætið og í fjórða sæti
er Bjarney Sif Ægisdóttir náms- og
starfsráðgjafi við Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Listann skipa:
1. Njörður Sigurðsson, sagn-
fræðingur
2. Viktoría Sif Kristinsdótt-
ir, grunn skólakennari og
verkefna stjóri
3. Guðjón Óskar Kristjánsson,
bifvélavirki og tónlistarmaður
4. Bjarney Sif Ægisdóttir, náms-
og starfsráðgjafi
5. Walter Fannar Kristjánsson,
atvinnubílstjóri
6. Álfhildur E. Þorsteinsdóttir,
talmeinafræðingur
7. Davíð Ágúst Davíðsson, inn-
kaupafulltrúi
8. Kristbjörg Erla Hreinsdóttir,
viðskiptafræðingur
9. Erla María Gísladóttir, náms-
og starfsráðgjafi
10. Gísli Magnússon, rafeinda-
virki
11. Valdimar Ingvason, húsasmið-
ur
12. Sigurbjört Gunnarsdóttir,
heilari
13. Sigurgeir Guðmundsson,
sundlaugarvörður
14. Anna Sigríður Egilsdóttir,
förðunarfræðingur