Selfoss - 11.09.2014, Side 8
8 11. SEPTEMBER 2014
„Listaverk
náttúrunnar
eru engu lík“
- Landnámsmenn á ferð.
Þau fóru könnunarleiðangur um miðjan ágúst við leit að góðri gönguleið frá Landmannahelli
í Dalakofann að Fjallabaki. Í ferðinni
voru fulltrúar ferðafélaga; Útivistar og
Ferðafélags Íslands, reyndir fararstjór-
ar á fjöllum og heimafólk af Suður-
landi sem þekkir hverja laut og hól
að Fjallabaki. „Leiðin kom okkur
skemmtilega á óvart,“ segir Guðni
Olgeirsson, einn leiðangursmanna.
Fjölbreytt og þægileg 20 kílómetra
dagleið á fjöllum. „Maður fær á til-
finn ing una að vera einn í heimin-
um.“
„Listaverk náttúrunnar eru engu
lík á þessu svæði. Dalastígurinn dá-
samlegi. Hér eru nokkrar myndir
frá könnunarferðinni um Dalastíg-
inn, þ.e. leiðina frá Landmannahelli
í Dalakofann, 20 km þægilega og
fjölbreytilega leið innan Friðlands
að Fjallabaki. Fengum gott veður
og fallega birtu. Spái því að á næstu
árum eigi margir eftir að ganga þessa
leið sér til yndis. Sjón er sögu ríkari,“
segir Guðni.
Myndirnar sem Guðni Olgeris-
son tók varpa ljósi á fegurðina að
Fjallabaki.
Gengið upp með Dalakvíslinni og þar er kjörin uppgönguleið með fossum og
litskrúðugum fjöllum. Örnefni eru af skornum skammti á þessu svæði. Mætti
kalla þetta svæði Hvítakamb.
Nafnlaus foss í litskrúðugu gili.
Er enn með hugann við Dalastíginn, en Fjallabak kemur manni endalaust á óvart, sannkallað listasafn náttúrunnar.
Fundum þennan nafnlausa foss og litskrúðugt nafnlaust gil í Dalakvíslinni.
Kvöldkyrrð við Álftavatn. Náði þessari kvöldspeglun um daginn við Álftavatn.
Töfrandi heimur. Kaldaklofsfjöllin og Skerinef njóta sín vel við þessar aðstæður,
en það var ekki fyrr en undir kvöld sem þokunni létti. Sáum ekki handa okkar
skil í Hrafntinnuskeri og gönguferð á Háskerðing verður að bíða betri tíma.
Dalakofinn. Góður áningarstaður að Fjallabaki. Dalakofinn er rétt norðan
Laufafells í nágrenni Reykjadala að Fjallabaki og er sérlega vel staðsettur í
þessari stórkostlegu náttúru. Eigendur Dalakofans er Stolzenwald fjölskyld-
an, en Rúdolf Stolzenwald sem upphaflega byggði skálann árið 1971 var
frumkvöðull í hálendisferðum og ferðaðist mikið á vélsleðum og jeppum um
þetta svæði. Útivist og börn Rúdolfs sem öll eru félagsmenn í Útivist gerðu
með sér samkomulag um endurbyggingu skálans og lauk þeirri endurgerð
2010.(af vefnum nat.is)
Smáhver með flottum útfellingum.
Listaverk náttúrunnar í Dölunum.
Furðumyndir.
Við Landmannahelli á leið í Dalakofann. Olgeir Engilbertsson sá að venju
um trússið. — með Ingibjörg Eiríksdóttir, Guðjón Ó. Magnússon, Olgeir
Engilbertsson, Birgir Sigurðsson, Skúli H. Skúlason og Fanney Gunnarsdóttir.
Vesturdalir. Laufafell í baksýn. Friðsæl stemning í Dölunum.
Á toppi Sátu við Landmannahelli.
Ómar bróðir horfir yfir Löðmundar-
vatn með Löðmund og Lifrarfjöll í
baksýn. Afar skemmtileg eins og hálfs
tíma ganga frá Landmannahelli upp á
topp Sátu og vel sést yfir nágrennið.
Bara hressandi að vaða Helliskvíslina
við skálana.