Selfoss - 20.11.2014, Blaðsíða 10
10 20. Nóvember 2014
Búnaður fyrir orkuflutning og orkusparnað
Dexta orkutæknilausnir ehf.
Fjölnisgötu 6A, 603 Akureyri | Símar: 461 5710 og 894 4721 | www.dexta.is | gauti@dexta.is
» Varmaskiptar - Ýmsar gerðir á lager
» Varmadælur og kælisamstæður
» Iðnaðarviftur og -blásarar
» Loftræstisamstæður
» Tæknirýmis- og tölvukælar
» Vökvakælar
» Hitabúnt
» Hitablásarar
» Loftskiljur og afloftarar
» Dælur
» Hraðabreytar
» og margt fleira...
REGLUGERÐ
um ábyrgð og skyldur aðila
skólasamfélagsins í grunnskólum.
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi tekur til ábyrgð-
ar nemenda með hliðsjón af aldri
þeirra, þroska og aðstæðum. Þá tek-
ur hún til réttinda og skyldna aðila
skólasamfélagsins í allri starfsemi á
vegum skóla, skólabrags, samskipta
í skóla, skólareglna og málsmeð-
ferðar vegna brota á þeim.
Reglugerð þessi tekur einnig
til nemenda í grunnskólum sem
fengið hafa viðurkenningu ráðherra
skv. 43. gr. laga nr. 91/2008, um
grunnskóla.
Foreldrar samkvæmt reglugerð
þessari teljast þeir sem fara með
forsjá barns í skilningi barnalaga.
…
7. gr.
Starf grunnskóla gegn einelti.
Allir skólar skulu hafa heildstæða
stefnu fyrir skólann til að fyrir-
byggja og bregðast við líkamlegu,
andlegu og félagslegu ofbeldi og
félagslegri einangrun. Skólar skulu
setja sér aðgerðaáætlun gegn einelti
með virkri viðbragðsáætlun til að
takast á við eineltismál í skólanum.
Áætlunin skal ná til allrar starf-
semi og alls starfsfólks skóla og
skal kveða á um skyldur þess til að
vinna gegn einelti með ábyrgum
og virkum hætti. Áætlunin skal ná
til allra nemenda og styrkja þá til
að bera virðingu hver fyrir öðrum,
sýna tillitssemi og samkennd og
taka afstöðu gegn einelti. Áætl-
unin beinist einnig að foreldrum
með það að markmiði að þeir séu
virkir í samstarfi við skólann í að
vinna gegn einelti og vinna með
starfsfólki skóla að úrvinnslu ein-
eltismála, eftir atvikum með form-
legum samningi milli heimilis og
skóla. Einnig skal í áætluninni vikið
að aðilum í grenndarsamfélaginu
sem starfa með börnum og ung-
lingum og þeir upplýstir um vinnu
skólans gegn einelti og óskað eftir
samráði við þá eftir því sem þörf
krefur.
Aðgerðir skóla gegn einelti taka
til skólans í heild, einstakra bekkj-
ardeilda, námshópa og einstak-
linga. Hver kennari ber ábyrgð á að
framfylgja með virkum og ábyrgum
hætti aðgerðaáætlun skólans gegn
einelti og skólastjóri ber ábyrgð á
að starfið sé samhæft.
Kanna þarf reglulega eðli og
umfang eineltis í skólum, kynna
niðurstöður og nýta þær til úrbóta.
Aðgerðaáætlun gegn einelti er
hluti af skólanámskrá og er kynnt
sérstaklega eftir því sem þurfa þykir
og skal birt opinberlega. Starfsfólk
sérfræðiþjónustu skal aðstoða skóla
í tengslum við aðgerðir gegn einelti
og úrlausn einstakra mála eftir því
sem þörf krefur.
Foreldrar eða skólar geta óskað
eftir aðstoð sérstaks fagráðs sem
starfar á ábyrgð mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytis ef ekki tekst
að finna viðunandi lausn innan
skóla eða sveitarfélags, þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir og aðkomu sér-
fræðiþjónustu. Ráðuneytið gefur
út verklagsreglur um vísun mála
til fagráðsins, málsmeðferð og eft-
irfylgni að höfðu samráði við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga.