Hafnarfjörður - Garðabær - 11.07.2014, Blaðsíða 6
11. júlí 20146
Mikil gróska í frumkvöðlastarfsemi
„Þau fyrirtæki sem aðstöðu hafa í húsakynnum Kveikjunnar leigja
þar skrifstofuaðstöðu gegn vægu gjaldi með aðgengi að fundaher-
bergjum. Þau fá faglega ráðgjöf og stuðning við framgang hugmynda
sinna frá þeim fjölbreytta hópi vel menntaðs starfsfólks er starfar
á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og geta sótt sér þekkingu og reynslu
frá þeim í gegnum handleiðsluviðtöl. Skapandi umhverfi og öflugt
tengslanet fyrirtækja og starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvar Ís-
lands getur reynst litlu fyrirtæki sem er að hefja störf sín gríðarlega
mikilvægt.“ segir Tinna Jóhannsdóttir, markaðsstjóri Nýsköpunar-
miðstöðvar Íslands.
Líf og fjör í Kveikjunni
Kveikjan er eitt fimm frumkvöðlasetra
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og er
hún rekin í samstarfi við sveitarfélögin
Hafnarfjörð og Garðabæ. Hún hefur
verið starfrækt frá 2009 og er stað-
sett að Strandgötu 31 í Hafnarfirði.
Kveikjan er bæði fyrir einstaklinga og
hópa með viðskiptahugmynd á frum-
stigi en einnig fyrir stofnuð fyrirtæki
sem þurfa á handleiðslu að halda til
að þróa sína hugmynd áfram og ná
upp veltu. „Frá upphafsdögum Kveikj-
unnar hafa þar verið um 30 fyrirtæki
og nú eru þar um 10 fyrirtæki sem
vinna hörðum höndum að sínum
áhugaverðu verkefnum. Hjá þeim
fyrirtækjum starfa um 25 starfsmenn
þannig að það er líf og fjör í húsnæð-
inu.“
Miðla þekkingu sín á milli
Tinna segir þá sem hafa haft aðstöðu í
Kveikjunni vera með mjög fjölbreyttan
bakgrunn úr hinum ýmsu áttum. Þar
komi saman einstaklingar og hópar
sem hafa meðal annars þekkingu á
sviði menningar, viðskipta, heilbrigðis-
fræða, tölvuvísinda og annarar tækni.
Fyrirtækin hafa meðal annars þróað
viðskiptahugmyndir og hönnun á
tölvuleikjum, flotastjórnunarkerfi fyrir
flugiðnaðinn, gagnabanka fyrir íslensk
myndbönd, óhefðbundin meðferðar-
form og sérhannaða matarbakka.
„Menntun þessara aðila er mjög mis-
jöfn og ekki óalgengt að fyrirtækin
hjálpist að og miðli þekkingu sinni til
hvors annars. Einhver fyrirtæki hafa
jafnvel runnið í eina sæng og unnið
að verkefnum í sameiningu. Þá hafa
mörg fyrirtækjanna sprengt utan af
sér starfsrýmið á frumkvöðlasetrinu
og í kjölfarið flutt í sitt eigið húsnæði.“
Aðspurð hvort hún geti nefnt fyrirtæki
sem hafi tekið sín fyrstu skref í Kveikj-
unni tekur Tinna sem dæmi Remake
Electric sem hafi nú náð milum árangri
á alþjóðamarkaði. Fyrirtækið þróaði
nýja tegund rafskynjara og hjá þeim
starfa nú um 30 manns. Þá hafi fyrir-
tækin Maximus Musicus sem kynnir
klassíska tónlist fyrir börnum hér-
lendis og erlendis, tölvuleikja og hug-
búnaðarfyrirtækið Fancy Pants Global
og Luminox sem hannaði tölvuleik
sem senn kemur út á Playstation 3
einnig nýtt sér aðstöðuna sem í boði
er. „Allt eru þetta dæmi um fyrirtæki
sem hafa verið eða eru í Kveikjunni þar
sem þeim hefur verið sköpuð aðstaða
til framkvæmda og myndun mikilvægs
tengslanets, vettvangs reynslu og sam-
starfs á ýmsum sviðum sem yfirleitt
skilar sér í auknum stöðugildum og
fullmótaðri vöru og/ eða þjónustu.“
Gott samstarf
Frumkvöðlar úr Garðabæ og Hafnarf-
irði geta sótt um aðstöðu í Kveikjunni
en samstarfi aðilanna þriggja, Nýsköp-
unarmiðstöðvar Íslands, Garðabæjar
og Hafnarfjarðar, er ætlað að ýta undir
og efla frumkvöðlastarf og nýsköpun
í atvinnulífi bæjarfélaganna. „Rekstur
frumkvöðlasetra þarf að vera sam-
eiginlegt átak ríkis, sveitarfélaga og
fyrirtækja og aðkoma Hafnarfjarðar-
bæjar og Garðabæjar í sameiginlegum
rekstri okkar á Kveikjunni hefur verið
til fyrirmyndar í þessi fimm farsælu
ár“ segir Tinna og bætir við „Það er
vilji okkar að frumkvöðlasetrin okkar,
þar sem talin Kveikjan, séu eins konar
útungunarstöð fyrir vaxandi fyrirtæki
í þeim bæjarfélögum er þau starfa í.
Það hefur að okkar mati tekist vel og
skal árangrinum ekki síst þakka sam-
starfi okkar við sveitarfélögin og aðra
samstarfsaðila.“
Stórfyrirtæki
framtíðarinnar
Nýsköpunarmiðstöðin rekur fjögur
önnur frumkvöðlasetur á höfuðborgar-
svæðinu með mismunandi samstarfs-
aðilum. Keldnaholt, KÍM – Medical
Park sem er frumkvöðlasetur fyrir fyr-
irtæki í heilbrigðistækni og skyldum
greinum, á Hlemmi er Setur skapandi
greina og svo er það frumkvöðlasetrið
Kvosin í Lækjargötu. Þá kemur mið-
stöðin að rekstri frumkvöðlasetursins
að Ásbrú við Keflavíkurflugvöll, Húsi
sjávarklasans sem staðsett er úti á
Granda og hefur komið að samstarfi
vegna Topphússins í Elliðaárdal.
Um 80 frumkvöðlafyrirtæki með
hátt í tvö hundruð starfsmenn hafa
nú aðstöðu í frumkvöðlasetrum Ný-
sköpunarmiðstöðvar Íslands. „Ef
marka má þá grósku og það kraumandi
hugvit sem blasir við í frumkvöðla- og
sprotaumhverfinu má ætla að fjölmörg
stórfyrirtæki framtíðarinnar séu að
stíga sín fyrstu skref inni á frumkvöðla-
setrum miðstöðvarinnar og spennandi
verður að fylgjast með þeim í náinni
framtíð.“
Frá því að rekstur Kveikjunnar
hófst hefur nokkur fjöldi fyrir-
tækja sprengt utan af sér starfs-
rými á frumkvöðlasetri og í
kjölfarið flutt í annað húsnæði
segir á heimasíðu Hafnarfjrðar-
bæjar. Dæmi um slík fyrirtæki er
Remake Electric sem þróað hefur
nýja tegund rafskynjara og Fancy
Pants Global sem framleiðir leiki
og hugbúnað fyrir iPhone og
iPad. Viðskiptahugmyndir fyrir-
tækjanna, sem voru í Kveikjunni
við flutninginn 2012, voru þá
mislangt á veg komnar. Sumar
enn á teikniboðinu en aðrar höfðu
þegar skilað sér í stofnun sprota-
fyrirtækja.
Kveikjan skapar þessum fyr-
irtækjum ekki einungis aðstöðu
til framkvæmda heldur jafn-
framt mikilvægt tengslanet og
vettvang reynslu og samstarfs á
ýmsum sviðum. Nokkur dæmi
eru um það að fyrirtæki á setrum
Nýsköpunarmiðstöðvar hafi tekið
sig saman og unnið sameiginlega
að verkefnum sem hafa skilað sér
í fullmótaðri vöru sem þegar er
komin í framleiðslu og dreifingu.
Dæmi um það eru fyrirtækin
Fancy Pants Global og Maximus
Musicus sem í sameiningu bjuggu
til iphone leikinn Maximus
Musicus um tónelsku músina sem
leiðir börn um króka og kima hins
klassíska tónlistarheims.
Með því að halda úti rekstri
Kveikjunnar í Hafnarfirði eru
Garðabær, Hafnarfjörður og
Nýsköpunarmiðstöð Íslands í
sameiningu að ýta undir og efla
nýsköpun og frumkvöðlastarf í
atvinnulífinu með því að skapa
sprotafyrirtækjum kjöraðstæður
þar sem þau geta gengið að skap-
andi umhverfi, öflugu tengslaneti
og faglegri ráðgjöf, segir á vef
Hafnarfjarðarbæjar.
Kveikjan flutti á Strandgötuna árið 2012. Bæjarstjórar Garðabæjar og Hafnar-
fjarðar, þeir Guðmundur Rúnar Árnason og Gunnar Einarsson ásamt Sigríði
Ingvarsdóttur, framkvæmdastjóra Nýsköpunarmiðstöðvar íslands voru við
opnunina ásamt fleirum.
Tinna jóhannsdóttir, markaðsstjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar íslands.