Hafnarfjörður - Garðabær - 22.08.2014, Blaðsíða 1
Eignaumsjón er óháður fagaðili þegar kemur að rekstri húsfélaga og rekstrarfélaga – og því frábær lausn fyrir eigendur atvinnuhúsnæðis. Í okkar umsjá
ertu í góðum höndum - við sjáum um fjármálin, fundina, undirbúning framkvæmda og viðhalds og annarra þátta sem þarf að leysa.
Er húsfélagið í lausu lofti ?
»
Vantar óháðan aðila til að annast málefni húsfélagsins eða rekstrarfélagsins ?
Eignaumsjón hf . – Suður landsbraut 30 – Sími 585 4800 – afgreids la@eignaumsjon. is – www.eignaumsjon. is
ER BÍLSÆTIÐ RIFIÐ ?
Viðgerðir á öllum gerðum af bíla-,
mótorhjóla og snjósleðasætum.
Húsbílaklæðningar og öll almenn
bólstrun. Við erum þekktir fyrir
fljóta og góða þjónustu.
Hamraborg 5 kóp, Hamrabrekkumegin S. 544 5750 www.hsbolstrun.is
Formbólstrun
LAGNALAGINN,
PÍPARINN ÞINN
Fagmennska • Snyrtimennska • Áreiðanleiki • Traust
Kannaðu málið og bókaðu tíma núna
www.lagnalaginn.is /lagnalaginn
Sími : 774-7274 (7-PÍPARI)
22. ÁGÚST 2014
15. tölublað 4. árgangur g a r ð a b æ r UMHVErFISVOTTUð PrENTUN
Gleraugnaverslun
Strandgötu, Hafnarfirði / Sími 555 7060 / www.sjonlinan.is
Gleraugnaverslun
Strandgötu, Hafnarfirði / Sími 555 7060 / www.sjonlinan.is
Fjarðargötu 17 - Hafnarfirði
Sími 520 2600 - Fax 520 2601
Netfang: as@as.is - Heimasíða: www.as.is
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17
Hundruð barnaverndarmála
í Hafnarfirði:
Hátt í 50
börn í vistun
hjá barna-
verndar-
yfirvöldum
Börnum í Hafnarfirði sem hafa verið sett í vistum á vegum barnaverndarnefndar fjölgaði úr 34 í 49 milli áranna 2013 og
2014. Þetta er um það bil helmings aukning milli
ára, en merki um þessa þróun voru farin að sjást
síðasta haust.
„Við höfum verið að leita skýringa,“ segir Rann-
veig Einarsdóttir, sviðsstjóri hjá Fjölskylduþjónustu
Hafnarfjarðar. „Það er fjöldi barnaverndarmála
í vinnslu á hverjum tíma. Árið 2013 voru þetta
um 500 mál sem voru í vinnslu. Málunum hafði
þá raunar fækkað frá árinu áður, en þau verið að
þyngjast og orðið erfiðari í vinnslu.“
Rannveig segir í rauninni engar skýringar hafa
komið fram aðrar en að mál hafi verið lengi í
vinnslu og komin á það stig að engin úrræði hafi
verið fyrir hendi en að senda börn í vistun eða í
fóstur. „En það má velta því fyrir sér hvort efna-
hagsástandið hafi hér áhrif,“ segir Rannveig og vísar
til reynslu Finna í þessum efnum. Frh. á bls. 2.
Stuðningsmenn Stjörnunnar gáfust ekki upp þrátt fyrir 0-3 tap gegn Inter frá
Mílanó á miðvikudagskvödið. Stjörnumenn þóttu standa sig vel þrátt fyrir
tapið, enda héldu þeir hreinu næstum allan fyrri hálfleik. Níu þúsund stuðn-
ingsmenn sem fylltu hvert sæti í stúku Laugardalsvallarins hvöttu þá áfram
og skilaði það sér í hörðum sóknum á lokamínútunum. Fólk er bjartsýnt um
gengi Stjörnumanna í Evrópukepnninni enda þótt á brattann sé að sækja, því
haft er á orði að Stjörnumenn séu alltaf „betri á útivelli“. Mynd: Fótbolti.net.