Hafnarfjörður - Garðabær - 22.08.2014, Blaðsíða 14
Raunverulegur sparnaður
Frekari upplýsingar á www.deltalausnir.is
Sími: 895 0640 eða 695 2091
með varmadælum
Loft í vatn - vatn í vatn
fyrir heitt vatn og ofnakerfi
5 ára ábyrgð*
Allt að 80%
sparnaður
Best í prófun hjá SP í Svíþjóð
Fujitsu LTCN - Loft í loft varmadæla
* Nánar á heimasíðu
Margra ára reynsla við íslenskar aðstæður
og hundruð ánægðra viðskiptavina
segir allt sem segja þarf.
Rétt hitastig, betri loftgæði
og þú sparar í leiðinni!
Fyrir heimili - sumarhús - vinnustaði - skóla - félagsheimili - sundlaugar - íþróttahús...
14 22. ÁGÚST 2014
Nýtt sjávarútvegblað hefur göngu sína í haust:
Aldan - nýtt blað um sjávarútveg
Blaðið heitir Aldan, fréttablað um sjávarútveg. Blaðið mun fjalla um sjávarútveg almennt,
útgerð, fiskvinnslu, þjónustufyrirtæki í
atvinnugreininni, og ekki síst um fólkið
sem kemur að þessum undirstöðuat-
vinnuvegi þjóðarinnar, bæði þá sem
stjórna fyrirtækjum í atvinnugreininni
og ekki síður þá sem vinna ýmis önnur
störf í atvinnugreininni, s.s. í fiskmót-
tökunni, löndun, sjómennina og aðra.
Engin verður undanskilin. Með því mun
blaðið gefa sem besta spegilmynd af
sjávarútveginum í dag,“ segir Geir A.
Guðsteinsson, ritstjóri Öldunnar, sem
mun koma út mánaðarlega.
Útgefandi blaðsins er Fótspor, sem
meðal annars gefur út bæjarblaðið
Hafnarfjörð/Garðabæ, Vesturland, Vest-
firði, Akureyri vikublað, Austurland,
Suðurland, Reykjanes, Selfoss - Suður-
land, Kópavog og Reykjavík vikublað.
Geir A. Guðsteinsson hefur starfað
við blaðamennsku og ritstjórn um
áratugaskeið og ritstýrir meðal annars
blöðunum Vesturlandi og Vestfjörðum.
Öldunni verður dreift til allra helstu
aðila í sjávarútvegi í dag, liggja frammi
á hafnarvogunum víðs vegar um
landið og veður jafnframt aðgengilegt
á völdum stöðum, s.s. bensínstöðvum.
„Blaðið mun taka mið af því að mörg
sjávarútvegsfyrirtæki á landsbyggðinni,
s.s. Samherji á Akureyri, eru lykistoð
í atvinnulífinu á Akureyri. Þannig
mætti einnig nefna Síldarvinnsluna á
Neskaupstað, Ísfélag Vestmannaeyja,
HB-Granda og fleiri. Meðan ég var
blaðamaður fyrir norðan átti ég ágætt
samstarf við forsvarsmenn Samherja
og það verður enginn breyting á því.
Samherji er einnig burðarás í atvinnu-
lífinu á Dalvík, togarar fyrirtækisins
landa oft í Hafnarfjarðarhöfn og þannig
markar þetta eitt stærsta útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtæki landsins djúp spor
í atvinnulífinu víðar um landið, ekki
bara á Akureyri,“ segir Geir í fréttatil-
kynningu.
„Fyrir á markaði eru a.m.k. tvö blöð
sem helga sig sjávarútvegsmálum svo
Aldan verður og ætlar að marka sér
ákveðna sérstöðu. Ekki síst að fjalla
um undirstöðuna í þessum helsta at-
vinnuvegi landsins, tala m.a. við fólk
sem hefur atvinnu af því að starfa við
sjávarútveg. Einnig verður sjónum
beint að nýsköpun í sjávarútvegi, bæði
vinnslu í landi og við veiðar. Þjónusta
við sjávarútvegsfyrirtæki er stöðugt vax-
andi atvinnugrein en nýjungar í þeirri
grein hafa vakið heimsathygli. Nægir
þar að nefna fyrirtæki eins og Marel,
en þau eru miklu fleiri. Einnig verður
fjallað um markaðsmál sjávarútvegsins,
rætt við neytendur hérlendis, en einnig
að fá fram álit neytenda erlendis, ekki
síst í Evrópu sem er mikilvægt. Fiskur
er í vaxandi mæli fluttur út ferskur, það
er krafa markaðarins, og að því þurfa
íslenskir framleiðendur að laga sig sem
best, og fylgjast með vel með.“
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
Hér geisar hin gamla spilling
og gullkálfsins siðlausa hylling
ríkir hér enn,
því ráðþrota menn
ei hemja þann taumlausa trylling.
Þá Edvard Taylor Jonsson
Skrafa seggir nú á ný
um naska Hönnu Birnu.
Hægt mun gang’að hnýsast í
hennar sálarkirnu.
Sigrún Haraldsdóttir yrkir limrur
Þórlindur þagði en brosti
er þefaði af gulleitum osti,
hann tinað vægt
og tautaði hægt;
hvað ætli kvikindið kosti?
Í bólinu Sturlaugur Sterki
Stebbu gaf örlítið merki,
hún uppá sig vatt
og umlaði hratt;
ég er með vindgang og verki.
Þá Jón Ingvar Jónsson
Það vex á mér vömbin og spikið,
svo varla mér líst nú á blikið.
Vömbin út tútnar
til vinstri og þrútnar
svo helvíti hratt og svo mikið.
Hjálmar Freysteinsson yrkir
Það bar til um þessar mundir
- þokkalegt að tarna -
Hönnu Birnu hitnaði undir
en hýrnaði yfir Bjarna.
Húrra fyrir stjórnendum sem hækka
launin sín,
hafa ei lengur smáaura í vösum.
Ég tel að þessi „leiðrétting“ sé tíma-
bær og fín
og 2006 á næstu grösum.
Davíð Hjálmar Haraldsson
yrkir um salernisaðstöðu
ferðamanna á Akureyri
Ferðamenn fjölmargt hér líta,
þeir fræðast um búhag og ýta
og skoða og sjá,
þá skyggir helst á
að í kirkjunni kostar að skíta.
Guðmundur Jónsson orti:
Lítið miðar Lada Sport,
löngum talinn bestur.
Er að fara annað hvort
austur eða vestur.
Lada sport er þarfa þing
þegar kemur vetur.
Undir stýri einn ég syng
öðrum mönnum betur.
Helgi Björnsson orti þegar honum
var boðin líftrygging:
Líf sem Guð mér lét í té,
leið er stundum byrði.
Núna er mér sagt það sé
sex milljóna virði.
Sigrún Haraldsdóttir yrkir í góð-
viðrinu:
Gjöful sunna vermir völl,
vanga og augnalokin.
Nú er gömul ólund öll
úr mér burtu rokin.
Ármann Þorgrímsson yrkir um
sendiherraráðningar:
Gamlar reglur gilda þar,
ganga ennþá víðast hvar
engin staða auglýst var
aðeins valdir kunningjar.
Ármann Þorgrímsson orti á meðan
konan skoðaði
í búðir á Glerártorgi.
Margt er hér sem magann seður
meðan frammi beðið er
og ýmislegt sem augað gleður
ef að maður leyfir sér.
Björn Ingólfsson svaraði:
Held ég viti hvað hann er að fara.
Hann hefur sett sig í stellingar,
fengið sér heitan hamborgara
og horft á annarra kellíngar.
Hreinn Guðvarðarson yrkir þessa
mannlýsingu:
Hefur löngum hátt og montinn
höfuð reigir
Fátt að marka sem hann segir
en sæmilegur ef hann þegir.
Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir í
góðu skapi:
Nú er í mér andinn ör
óðum stefja vísur,
Kringum mig er feikna fjör
og föngulegar skvísur.
vísnastund 5
vísnastund 6
Pétur Stefánsson
pest@visir.is
Pétur Stefánsson
pest@visir.is
Sýningarsvæði íslenskra fyrirtækja á sjávarútvegssýningunni í Brussel.
Fiskveiðar og vinnsla eru þrátt fyrir
allt undirstöðuatvinnugrein þjóðar-
innar.