Hafnarfjörður - Garðabær - 17.10.2014, Page 8

Hafnarfjörður - Garðabær - 17.10.2014, Page 8
8 17. Október 2014 Úttekt atli Þór Fanndal atli@thorfanndal.com Einkarekstur hótunar- tæki gegn kjarabótum Vagnstjórar sem starfa fyrir undirverktaka Strætó bs. geta búist við lægri launum en þeir sem starfa beint hjá fyrirtækinu. Nokkur hluti þeirra leiða sem Strætó rekur í leiðakerfi sínu eru í höndum undiverktaka líkt og fyrir- tækisins Hagvagna. Þeir starfsmenn sem þar vinna eru sumir félagsmenn í Bifreiðastjórafélaginu Sleipni en flestir eru þeir þó í Verkalýðsfélaginu Hlíf. Blaðið hefur vitneskju um að starfsfólki og jafnvel fulltrúum Starfs- mannafélags Reykjavíkur sé hótað útboði á störfum þeirra af hálfu Strætó bs. fari þeir fram á bætt kjör. Hafnarfjörður og Garðabær eru báðir aðilar að byggðasamlaginu Strætó og eiga einn fulltrúa í stjórn hvor. 40% í útboði „Það eru um 40 prósent af akstrinum sem eru í útboði, það er ekinn af öðrum en okkur sjálfum. Við erum að íhuga þessi mál núna og ég held að stefnan sé að halda áfram að vera með allavega hluta af akstrinum boðinn út. Það er samt alltaf ákvörðun stjórnar hvort farið er í útboð eða ekki,“ segir Bryndís Haraldsdóttir, stjórnarformaður Strætó. - Hvert er hagræðið fyrir strætó? „Það eru upplýsingar sem fram- kvæmdastjórinn yrði að gefa þér,“ segir Bryndís Haraldsdóttir, stjórnar- formaður Strætó bs. og bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ. Blaðið óskaði upplýsinga um rök- semdafærslu Strætó bs. fyrir útboði ákveðinna leiða sem og skýringu á þeirri pólitísku stefnumótun sem að baki slíkum útboða er. Engin svör hafa borist. Geta jafnað launin „Okkar menn falla undir kjarasamning á almennum markaði. Aftur á móti er Strætó í Reykjavík undir samningum Reykjavíkur. Þótt grunnlaunin séu lægri þá hafa hér verið borgaðir ýmsir bónusar t.d. tjónlaus bónus og reyklaus bónus,“ segir Kolbeinn Gunnarsson formaður Hlífar og bætir við að eftir greiðslu bónusanna þá séu tekjurnar nokkuð svipaðaðar. - Bónusar eru samt ekki jafn traust kjör og grunntaxtar? „Ég gerði nú einhverntíman könnun á þessu og þá voru menn á svipuðum stað. En það er alveg rétt og þess vegna hef ég verið að reyna að gera kröfu um að festa þetta inn í kjarasamninginn. Það hefur bara gengið frekar hægt. Það er alveg rétt þetta er ekki alveg í hendi með bónusum.“ - Þegar þú segir festa þetta áttu þá við að setja bónusa í kjarasamninga eða ná upp grunnlaunum? „Já við erum náttúrulega alltaf að reyna að ná upp laununum í okkar kjarasamningum en því miður hafa laun á almennum markaði verið ívið lægri en hjá Strætó í Reykjavík,“ segir Kolbeinn og bætir við að almennt telji hann bílstjóra allt of lágt launaða á Ís- landi. Starfinu fylgi mikil ábyrgð en að greiðslu vegna hennar sé ekki að finna í launakjörum. Unnið að nýjum kjarasamningum „Það eru að koma nýir samningar og það er verið að fara í þessa vinnu um áramótin - væntanlega byrjar vinnan fyrir áramót. Það á að fara inn í kafla sem varða bílstjóra. Það er eitt af því sem átti að gera við gerð síðustu kjara- samninga en var ekki gert vegna þess að það voru bara stuttir samningar sem gerðir voru í fyrra. Núna er næsta skref að vinna í gerð kjarasamninga fyrir þetta fólk,“ segir Kolbeinn. - Hvað hefur þessi staða, það er launa- munur þrátt fyrir sambærilega vinnu, verið lengi? „Þetta er búið að vera til nokkurra ára. Það hefur alla tíð verið þessi mis- munur á Strætó í Reykjavík og hóp- ferðabílstjórnunum hér suður frá. Það hefur gengið mjög tregt að ná að samræma þetta.“ Lítið frumkvæði Lítill hluti vagnstjóra eru félagar í Bif- reiðstjórafélaginu Sleipni. Á skrifstofu félagsins fengust þær upplýsingar að þeir væru fáir. Félaginu hefði borist það til eyrna að félagsmenn þeirra væru á lægri launum en félagsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkur. Sleipnir hefði hins vegar ekki tekið frumkvæði í málinu. Þeir starfsmenn sem blaðið ræddi höfðu orð á launa- mun starfsmanna og sögðu þann mun notaðan til að kæfa gagnrýni á framkvæmdastjórn Strætó og óánægju með laun. Þá voru nefnd dæmi þess að launamunurinn væri notaður sem hótun um enn frekari útboð og einka- rekstur vagnleiða Strætó. Nýlega var greint frá hótunum um starfsmissi mótmæltu vagnstjórar notkun öryggismyndavéla í vögnum fyrirtækisins. Uppsögn og einkavæðing „Strætó BS. gerir þá kröfu að allir starfsmenn sem sinna farþegaflutn- ingum á fyrirtækisins, hafa umsjón með ökutækjum eða eftirlit í vögnum samþykki búnaðinn,“ segir í nýlegri umfjöllun blaðsins en orðin eru bein tilvitnun í fjöldapóst sem sendur ar á vagnstjóra Strætó bs. „Starfsmenn hafa andmælarétt en nýti þeir sér hann leiðir það til starfsmissis,“ segir enn fremur í bréfinu. Í samtölum við starfsfólk Strætó og við fulltrúa Starfsmannafé- lags Reykjavíkur að undanförnu hefur komið fram að starfsandinn á Strætó er afar slæmur. Stéttarfélaginu berist til að mynda töluvert magn af kvört- unum. Þá er stjórnunarstíll fyrirtæk- isins sagður afar harkalegur. Í samtali við blaðamann, vegna fréttar af upp- töku öryggismyndavélakerfis sagðist Reynir Jónsson framkvæmdastjóri byggðasamlagsins telja að aðeins einn starfsmaður væri óánægður með upp- töku eftirlitskerfisins en að aðrir væru ánægðir. Þetta er í andstöðu við við- mælendur blaðsins sem segja megna óánægju með upptökukerfið í ljósi þess að innan fyrirtækisins ríki ekki traust milli starfsfólks á gólfi og yfirmanna. Starfsfólk óttist að kerfið verði mis- notað og notað í öðrum tilgangi en kynnt hafi verið. Allt í útboð Blaðið fékk staðfestingu hjá Starfs- mannafélagi Reykjavíkur á að hótanir um útboð væru reglulega nýtt þegar semja eigi um laun og almenn kjör fyrir félagsmenn félagsins. Þessi um- ræða kæmi þannig alltaf upp í kringum kjarasamningagerð. Fulltrúar Stætó bs. bentu þannig iðuleg á að hægt væri að bjóða út allar ferðir byggðarsamlagsins taki verkalýðsfélagið of harkalega á í samningsgerðinni. Samkvæmt þessu virðist framkvæmdastjórn Strætó meðvituð um að kostnaður útboða falli meðal annars á herðar óbreyttra starfs- manna. Bryndís Haraldsdóttir segir stjórn félagsins ekki hafa rætt útboð á þessum forsendum en þau séu vissu- lega hagkvæmari fyrir Strætó sé miðað við kostnað á hvern ekinn kílómetra. Á herðar láglaunafólks - Eruð þið í stjórn meðvituð um að þegar þið takið akstur í útboð að ein af af- leiðingum þess er að laun starfsmanna á gólfi lækka miðað við laun í sambæri- legu starfi hjá Strætó bs.? „Útboð eru í eðli sínu gerð til að ná fram hagræði í rekstri. Það er alveg ljóst að ekinn kílómetri í útboðnum akstri er lægri en ekinn kílómetri í okkar eigin akstri. Þannig að við erum bara sem stjórn að gæta hagsmuna eigenda og sjá til þess að hægt sé að reka Strætó með sem hagkæmasta hætti,“ segir Bryndís Haraldsdóttir. - Þú ert þá að segja að þið eruð með- vituð um það að hluti kostnaðarins við hægræðingu er borinn á herðum óbreyttra starfsmanna Strætó í formi verri starfskjara? „Já, ég þekki bara ekki þær tölur. Ég veit bara að einkaðaðilar hafa getað gert þetta með hagkvæmari hætti en við.“ Útboð áfram Bryndís segir að stjórn Strætó bs. muni á næstunni fara yfir þessi mál. Þá er vert að benda á að kjarasamningar ASÍ losna fljótlega en samningar síðasta árs voru tímabundnir samningar. Yfirferð yfir útboð Strætó fer því fram skömmu áður en vinna við kjarasamninga fer í gang. - Hvert er hagræðið fyrir strætó? „Það eru upplýsingar sem fram- kvæmdastjórinn yrði að gefa þér,“ segir Bryndís. - Þetta er þrátt fyrir allt fyrirtæki í al- mannaþjónustu þá spyr maður hvort þessi umræða, um afleiðingar fyrir starfsfólk sem þegar starfar við störf sem ekki eru beinlínis hálaunastörf, hafi átt sér stað innan stjórnar? „Umræðan hefur ekki verið tekin út á þeim grundvelli. Fyrst og fremst erum við bara að gæta hagræðingar í rekstri og við höfum talið það heppilegt fyrir Strætó að hafa hluta af þessu í eigin akstri og hluta hjá öðrum. Það hefur komið hagstætt út fyrir félagið. Ég held að það sé almennur vilji hjá stjórn og eigendum að halda því þannig.“ - Blaðið hefur fengið úr nokkrum áttum, þar á meðal frá Starfsmannafélagi Reykjavíkur sem og starsfólki sjálfu, að útboð sé notað sem hótunartæki innan fyrirtækisins gagnvart starfsfólki sem gerir kröfu um betri kjör. Hefur þú vit- neskju um slíkt og hvað finnst þér um slíkar aðferðir? „Ég get ekki svarað fyrir þetta og þekki ekki þennan hluta. Fram- kvæmdastjóri fer með starfsmannamál og hefur fullt taust og umboð stjórnar til þess.“ reynir Jónsson.bryndís Haraldsdóttir. „Því miður hafa laun á almennum markaði verið ívið lægri en hjá Strætó í reykjavík,“ segir kolbeinn Gunnarsson hjá Hlíf. bryndís Haraldsdóttir, stjórnar- formaður Strætó, segir að útboð séu gerð til að lækka rekstrarkostnað.

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.