Hafnarfjörður - Garðabær - 17.10.2014, Qupperneq 10

Hafnarfjörður - Garðabær - 17.10.2014, Qupperneq 10
10 17. Október 2014 Stenst allar kröfur Í sumar birti vefsíðan BabyCentre lista yfir vinsælustu barnanöfnin í Bretlandi. Þótt þessi listi sé auðvitað langur eru ekki birt nema hundrað vinsælustu nöfnin. Listinn er gefinn út árlega og fátt í sjálfu sér sem breytist frá ári til árs. Það bar hins vegar til tíðinda í sumar að eitt nafn hafði tekið gríðarlegt stökk upp listann –um 243 sæti. Þetta er kvenmannsnafnið Elsa, sem nú er í áttunda sæti. Vinsældir þess eru raktar til þess að aðalsöguhetjan í Disneymyndinni Frosin heitir einmitt Elsa. Vinsælasta teiknimynd allra tíma Frosin er ein allra vinsælasta kvik- mynd sem nokkurn tíma hefur verið gerð. Engin teiknimynd hefur halað inn viðlíka tekjum –jafnvirði um 140 milljarða króna samkvæmt tölum frá í júní. Þá er ótalið allt það sem tengdur varningur, leikföng, töskur, litabækur o.þ.h. hefur skilað í buddu framleiðanda. Frosin er fimmta tekju- hæsta kvikmynd sögunnar og er enn sýnd í kvikmyndahúsum sums staðar í heiminum. En það er líka búið að gefa hana út á DVD. Diskurinn náði því að slá öll sölumet á Amazon – bara með forsölunni. Myndin varð semsagt mest selda barnamynd á þessari stærstu verslunarvefsíðu heims, áður en hún kom út. Hefur rakað inn verðlaunum En það er ekki bara myndin sjálf sem rakar inn peningum. Tónlistin ein og sér hefur líka skilað sínu, með a.m.k. milljón seldum geislaplötum og sjö milljón niðurhölum á tónlistarvef- síðunni Spotify. Þá hafa bæði myndin og tónlistin halað inn fjölmörgum verðlaunum, Óskar, BAFTA, Golden Globe og svo mætti lengi telja. Mynd- skeiðaáhorfin á myndbandavefsíðunni Youtube eru talin í hundruðum millj- óna. Svo eru lögin úr Frosin auðvitað sungin í kórum, á leikskólum, skólum og í afmælisveislum um alla veröld. Fellur foreldrum í geð Myndin byggir á sögu H. C. And- ersens um ísprinsessuna. Í henni er hvorki að finna alvarlegt ofbeldi eða annað sem foreldrar reyna að forða börnunum sínum frá því að sjá. Stelpur eru í stærstu hlutverkum og eru hetjur myndarinnar. Aðalpersónur myndar- innar, Elsa og Anna, eru flóknar og mannlegar og kannski skiptir það líka máli. Myndin stenst hið svokallaða Bechtel próf, en það gefur vísbendingu um stöðu kynjanna, en grunnforsenda prófsins er að tvær (nafngreindar) kvenpersónur tali saman, um eitthvað annað en karlmenn. Flestar myndir falla á prófinu. Svo er ekki með þessa mynd og því hafa jafnréttissinnar um allan heim tekið myndinni opnum örmum. Opnar leið að hjarta barnsins Vinsældirnar eru semsagt gríðarlegar. Flest börn hér á landi hafa séð myndina og margir foreldrar líka, þ.m.t. undir- ritaður. Hún er ágæt skemmtun, vel íslenskuð og talsett - framleiðendunum og þeirra fólki hér á landi til sóma. En slíkri velgengni fylgir líka mikil ábyrgð. Allt sem tengist Frosin kvikmyndinni á greiða leið inn í huga og hjörtu millj- óna barna um allan heim. Vegna þess hversu vel þessi mynd er úr garði gerð og barnvæn – eru varnir flestra foreldra líklega stilltar á lægstu stillingu þegar kemur að myndinn sjálfri og afleiddum vörum. Þar af leiðandi er ábyrgð þeirra mikil sem búa til þennan varning. Ábyrgð útgefanda Nú er komin út Frosin matreiðslubók á íslensku. Útgefandi er Edda. Bókin mun líklega eiga jafn greiða leið inn að kjarna hvers íslensks barns og aðrar vörur, tónlist og fleira sem tengist myndinni. Líklegt er að bókin skauti hæglega fram hjá vörnum foreldra sem einbeita sér frekar að vernda börnin fyrir ofbeldi og klámi á alnetinu og í tölvuleikjum – frekar en að hafa varann á varðandi þær Elsu og Önnu. Fólk treystir því – út frá því sem á undan er komið, að það sem tengist kvik- myndinni sé í lagi. En standa Disney og Edda undir þessum væntingum? Matarblaðamaður náði sér í eintak af Frosin matreiðslubókinni og kannaði málið. Titillinn lofar góðu Matarblaðamaður rekur strax augun í að ekki er búið að íslenska vörumerkið, það stendur Frozen en ekki Frosin. En þar með eru mínusarnir nánast upp Smiðsbúð 10 | 210 Garðabær Sími: 554 4300 | www.solskalar.is hf Sólskálar Svalaskjól Gluggar og hurðir Smiðsbúð 10 | 210 Garðabær Sími: 554 4300 | www.solskalar.is hf Sólskálar Svalaskjól Gluggar og hurðir matarsíða svavars

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.