Hafnarfjörður - Garðabær - 14.11.2014, Blaðsíða 11
UltraGrip 8UltraGrip Ice+ UltraGrip 8 Performance Ultragrip Ice Arctic
Goodyear gæðadekk færðu hjá okkur
Klettagörðum 8-10 | 104 Reykjavík | Sími: 590 5100 | Suðurhrauni 2b | 210 Garðabær | Sími: 590 5290 | www.klettur.is
NÝTT DEKKJAV
ERKSTÆÐI
BJÓÐUM EINNIG:
1114. Nóvember 2014
ákvörðun um þetta en það er samt von
okkar að þetta hús verði að veruleika
núna fljótlega.“
Gagnrýnir bæjaryfirvöld
fyrir „framtaksleysi“
Ívar heldur áfram og fullyrðir að bæjar-
yfirvöld í Hafnarfirði hafi dregið lapp-
irnar undanfarin ár, með tilliti til íþrótta.
„Oft hefur verið talað um íþrótta-
bæinn Hafnarfjörð og er það réttmætt
viðurnefni og því eigum við erfitt
með að skilja það framtaksleysi sem
bæjaryfirvöld sýna íþróttum. Hafnar-
fjörður á eitt besta fótboltalið landsins,
FH, tvö af bestu handboltafélögum
landsins, Haukar og FH, eina bestu
körfuknattleiksdeild landsins, Haukar,
Keilir er landsmeistari í golfi bæði hjá
konum og körlum, SH hefur verið eitt
besta sundlið landsins og Björk hefur
verið í fremstu röð í mörg ár í fimleikum.
Svona væri hægt að telja áfram en læt
þetta gott heita,“ segir Ívar Ásgrímsson.
Hann leggur áherslu á að það þurfi
nýtt löglegt íþróttahús í bæinn og bætir
því við að Haukar eigi ekki knattspyrnu-
hús auk þess sem víða vanti æfingasvæði.
„Bæjaryfirvöld þurfa að átta sig á því
að íþróttir eru líka ein besta forvörn fyrir
unga krakka og því er mjög mikilvægt
að bæjaryfirvöld styðji við íþróttafélögin
meira en nú er gert.“
Brýnt að bæta
samgöngur
„Iðkendur koma alls staðar að úr
bænum,“ segir Ívar Ásgrímsson,
spurður um iðkendur í yngri flokkum
í körfunni. „Körfuknattleiksdeildin
er sú deild innan Hauka sem hefur
þá sérstöðu að félagar okkar úr FH
eru ekki með körfubolta og því
koma krakkar úr öllum hverfum
Hafnarfjarðar. Sama geta örugglega
FHingar sagt um krakka sem stunda
frjálsar.“
Hann segir að í þessu ljósi megi
bæta almenningssamgöngur í
bænum. „Því miður eru samgöngur
ekki góðar og eftir að frístundabíll-
inn lagðist af er þetta mikið vanda-
mál fyrir iðkendur sem þurfa að
komast t.d. úr Norðurbænum og á
Ásvelli og öðrum hverfum þar sem
fjarlægðir eru nokkrar. Við erum
langt á eftir nágrannabæjarfélögum
eins og Reykjavík og Kópavogi. Bæj-
aryfirvöld þurfa að fara að koma
þessum málum í lag og við eigum
ekki að sætta okkur við það að vera
langt á eftir öðrum bæjarfélögum er
kemur að íþróttum.“
Iðkendur eru margir, af báðum kynjum og á ýmsum aldri eins og myndirnar
bera með sér.