Hafnarfjörður - Garðabær - 21.03.2014, Blaðsíða 2
2 21. mars 2014
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AkureyrArApótek, Kaupangi - LyfjAver, Suðurlandsbraut 22
borgArApótek, Borgartúni 28 - gArðsApótek, Sogavegi 108
urðArApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, Apótek HAfnArfjArðAr, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!

u ð rApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, Apótek HAfnArfjArðAr, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AkureyrArApótek, Kaupangi - LyfjAver, Suðurlandsbraut 22
borgArApótek, Borgartúni 28 - ArðsApótek, Sogavegi 108
urðArApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, p ek HAfnArfjArðA , Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Áskorun um
Evrópumál
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti með sex atkvæðum
að skora á Alþingi að slíta ekki við-
ræðum við Evrópusambandið heldur
ákveða framhald málsins í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Bæjarfulltrúar Vinstri
grænna og Samfylkingarinnar greiddu
tillögunni atkvæði sitt en bæjarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.
Greiðslubyrði Hafnar-
fjarðarbæjar lækkar
Guðrún Ágústa Guðmunds-dóttir, bæjarstjóri Hafnar-fjarðar, segir að endur-
fjármögnun skulda bæjarins tryggi
bænum aðgengi að meira fé en hann
þurfi að nota.
Greint var frá því í fyrri viku að
skuldir bæjarins við þýskan banka
hefðu verið endurfjármagnaðar, í
gegnum Íslandsbanka.
Eftir endurfjármögnunina verða
allar skuldir sveitarfélagsins í ís-
lenskum krónum. Fram kemur á
vef bæjarins að þetta muni lækka
greiðslubyrði bæjarins og draga úr
gjaldeyrisáhættu sveitarfélagsins, auk
þess að styrkja fjárhagsstöðu bæjarins.
Guðrún Ágústa segir að meirihluti
Vinstri grænna og Samfylkingar hafi
allt kjörtímabilið unnið að endur-
skipulagningu á rekstri sveitarfé-
lagsins. Sú vinna hafi verið lykillinn
í endurfjármögnuninni sem nú hafi
verið tryggð.
Guðrún Ágústa segir að bærinn
hafi nú tryggt sér betri samningsstöðu
gagnvart kaupendum skuldabréfa og
öðrum mögulegum lánveitendum.
Hún bendir einnig á að lánshæfi
Hafnarfjarðarbæjar sé á pari við
lánshæfismat Arion banka og Kópa-
vogsbæjar. Hún segir í aðsendri grein
hér í blaðinu að beðið sé viðbragða frá
Seðlabankanum, en bærinn hafi sótt
um undanþágu frá gjaldeyrishöftum.
„Hins vegar tryggir samþykkt lánatil-
boðs Íslandsbanka endurfjármögnun
erlendra lána sveitarfélagsins að fullu
óháð því hvert svar Seðlabankans
verður,“ segir Guðrún Ágústa.
Málið var samþykkt í bæjarstjórn
á miðvikudag. Sjálfstæðismenn lögðu
til að málinu yrði frestað. Þar til málið
yrði tekið upp að nýju yrði aflað frek-
ari upplýsinga um það, eins og yfirlit
yfir greiðsluflæði, gjaldeyrisgreiningu
og tilboð frá öðrum lánastofnunum.
Sjá einnig bls. 4.
Milljóna kostnaður vegna tafa
Reykjanesbær hækkaði yfir-dráttarheimild sína í janúar og bíður greiðslu frá Ursusi I,
félagi Heiðars Más Guðjónssonar og
lífeyrissjóða, fyrir hlut í HS veitum, til
að gera upp.
Reykjanesbær samdi um það í fyrra
að selja 15 prósenta hlut í HS veitum til
Ursusar fyrir um einn og hálfan millj-
arð króna. Orkuveita Reykjavíkur gerði
slíkt hið sama. Hafnarfjarðarbæ var
boðið að selja álíka stóran hlut sinn í
HS veitum til Ursusar, en kaus að selja
ekki. Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar vildu selja.
Umtalsverð arðgreiðsla
Arðgreiðsla til Hafnarfjarðarbæjar af
eignarhlutnum varð umtalsvert hærri
en gert var ráð fyrir í áætlunum bæj-
arins, en ætla má að hann nemi um 70
milljónum króna, en stjórn félagsins
ákvað að arðgreiðsla ársins yrði 450
milljónir króna. HS veitur hafa greitt
eigendum sínum hátt í einn og hálfan
milljarð króna í arð frá stofnun 2009.
Framlengdu yfirdráttinn
„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar fékk
framlengngu á lánalínu sem átti að
greiða upp með þessum hlut. Þetta var
tímabundin ráðstöfun og rétt að taka
málið upp aftur,“ segir Friðjón Einars-
son, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í
Reykjanesbæ.
Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti
16. janúar að hækka yfirdrátt bæjarins
tímabundið, til loka febrúar. Kaup-
unum er hins vegar ekki lokið. Það
verður ekki fyrr en Samkeppniseftirlitið
hefur fjallað um þau. Eftir því sem næst
verður komist óskaði Samkeppnis-
eftirlitið eftir umsögn Orkustofnunar
um kaupin, og mun málið vera statt
þar. Kostnaður Reykjanesbæjar vegna
yfirdráttarheimildarinnar nemur að
minnsta kosti einhverjum milljónum
króna og fer vaxandi eftir því sem
málið dregst á langinn.
Mikil völd Ursusar
Ursusi I fær mikil völd í hluthafa-
samkomulagi sem tengist kaupunum,
enda þótt fyrirtækið eigi einungis
rúman þriðjungs hlut í HS veitum.
Í lögum segir að sveitarfélag eða
aðrir opinberir aðilar verði að eiga að
lágmarki 50 prósenta hlut í veitufyrir-
tæki. Samkvæmt hluthafasamkomu-
laginu fær Ursus I í reynd neitunarvald
í öllum stórum málum. Það kynni að
brjóta í bága við þann anda laga að
sveitarfélög verði að hafa afgerandi
ákvörðunarvald í málefnum fyrirtækja
á borð við HS veitur.
Fram kemur í lögfræðiáliti sem
unnið var fyrir Reykjanesbæ í lok
nóvember í fyrra, vegna sölunnar, að
enda þótt hún sé sem slík ekki talin
hafa neikvæð áhrif á Reykjaesbæ, að
þá séu uppi álitamál. Eitt sé að í reynd
sé stjórn félagsins falið vald hluthafa-
fundar. Fram kemur í lögfræðiálitinu
að bærinn myndi í öllu falli alltaf hafa
aðkomu að ákvörðunum, en geti ekki
í krafti meirihlutaeignar tekið ákvarð-
anir, heldur þarfnist ávallt samþykkis
Ursusar I.
Semja við
Loftorku
Loftorka átti lægsta tilboðið í gatna-gerð í Urriðaholti, en sex tilboð
bárust. Bæjarráð Garðabæjar hefur
samþykkt að semja við Loftorku um
Gatnagerðina. Kostnaðaráætlun hljóð-
aði upp á rúmar 70 milljónir króna, en
tilboð Loftorku nam rúmlega 49 og
hálfi milljón króna.
Formaður körfuboltadeildar Hauka hvetur félög til að huga að jafnrétti:
Félögin spara dómara-
kostnað í kvennaflokknum
„Ég er þeirrar skoðunar að það eigi í raun enginn munur að vera á dómgæslu kvenna og karla, hvorki
á fjölda dómara í leik í efstu deildum né
heldur menntunar dómara eða gæðum
dómara á leikjum elstu flokka kvenna
og karla. Varðandi þriggja dómara
kerfið þá er staðreynd málsins sú að
félögin eiga mörg hver erfitt með að
standa undir þeim dómarakostnaði
sem hlýst af því að vera með þriggja
dómara kerfi og er það ein helsta
ástæðan fyrir því að tveir dómarar
dæma í efstu deild kvenna, sem sagt
ósk félaganna,“ segir Henning Henn-
ingsson, formaður körfuknattleiks-
deildar Hauka.
Kynjamisrétti gagnrýnt
Fyrirkomulag dómgæslu hefur verið
harðlega gagnrýnt, þar sem fleiri dóm-
arar dæmi karlaleiki en kvennaleiki,
auk þess sem menntaðir dómarar
dæmi karlaleikina en ekki endilega
kvennaleiki. Þetta kom meðal annars
fram í grein Benónýs Harðarsonar
þjálfara í síðasta tölublaði.
Horft út í heim
Henning tekur fram að hann telji ís-
lenska dómara það góða, að tveir dóm-
arar ættu að duga í leik; bæði í karla- og
kvennabolta. „Og myndi ég vilja bakka
aftur til þess tíma þar sem 2 dómarar
voru á hverjum leik í öllum deildum
körfunnar. En þá kemur reyndar til
sögunnar enn einn vinkillinn, sem er
þróunin í alþjóða-körfuboltanum því
að lang-flestar deildir í Evrópu eru
með þriggja dómara kerfi og það er
fyrirkomulagið sem FIBA gefur út að
eigi að gilda. Allir landsleikir kvenna
og karla eru með þriggja dómara fyr-
irkomulagi,“ bætir hann við.
Konur verðskulda
góða dómara
Menn verði því, að sínu mati, segir
Henning, að stíga varlega til jarðar og
taka ígrundaðar ákvarðanir. „Ég tel
það ekki vera góðan kost eða til bóta
fyrir kvennaboltann að bæta þriðja
dómaranum við heldur er mikilvægt
að halda áfram að stuðla að aukinni
menntun þeirra dómara sem við eigum
nú þegar og tryggja að gæðadómarar
séu ávallt á öllum leikjum karla og
kvenna. Kvennakörfuboltinn hefur
tekið stórstígum framförum á undan-
förnum árum og verðskulda stelpurnar
jafn góða dómgæslu og karlar.“
Kvennalið Hauka fagnaði bikarmeist-
aratitli á dögunum.
Skipa upp hvalkjöti í
Hafnarfjarðarhöfn
Fullyrt er að til standi að flytja allt langreyðarkjöt Hvals hf. til Japan. Undanfarna daga hefur
staðið yfir útskipun á allt að 2.000
tonnum af langreyðarkjöti í flutn-
ingaskipið Ölmu sem hefur legið við
bryggju í Hafnarfjarðarhöfn.
Vefmiðillinn Eyjan greindi frá því
í gær að stöðugur straumur flutn-
ingabíla hefur legið í höfnina í vik-
unni og að Kristján Loftsson fram-
kvæmdastjóri Hvals hafi verið staddur
á höfninni á þriðjudagskvöldið. Sam-
kvæmt heimildum Eyjunnar er það
ætlun Hvals hf. að flytja öll 2.000
tonnin í einni ferð til Japan. Ekki náð-
ist í Kristján Loftsson áður en blaðið
fór í prentun.