Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Page 1

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Page 1
23. árgangur • Vestmannaeyjum 12. desember 1996 • 50. tölublað • Verðkr. 130, - • Sími: 481 3310 • Myndriti: 481 1293 Flugvöllur- irni 50 ára Þann 13. nóvember sl. voru 50 ár frá því Vestmannaeyjaflugvöllur var tekinn formlega í notkun. Samfara framfórum í flugi hefur mikilvægi vallarins aukist. Flug- völlurinn hefur fylgt þróuninni og stendur í dag fyllilega undir nafni. í upphafi voru ekki margir sem unnu við völlinn en með aukinni umferð og umsvifum í flugi hefur þeim fjölgað jafnt og þétt. I dag vinna 16 manns með einum eða öðrum hætti við flug í Vest- mannaeyjum og á surnrin eru þeir talsvert fleiri. Hafa þeir veg og vanda um að taka á móti þeim 80 þúsund farþegum sem fara um völlinn. Starfa þeir hjá Flugmálastjóm, Flugleiðum, Flugfélagi Vestmanna- eyja og Islandsflugi. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Þröstur, Sigurður, Jónas, Laufey, Ágústa, Bjarni, Eva, Ingibjörg, Jenný, Einar, Margrét, Valur og Bragi. Á myndina vantar Hildi flugumferðarstjóra. Standa þau undir TF-SUX sem hangir uppi í flugstöðinni en hún var fyrsta tlugvélin sem lenti í Eyjum. Á sunnudaginn verður opið hús í flugstöðinni í tilefni afmælisins frá kl. 15 til 18. Vestmannaeyjabær: Yfírtekur mál- efni fatlaðra Kjötog græn- meti á Fiskmark- aðnum Undanfarnar vikur hafa bændur á Suðurlandi og fleiri selt kjöt og grænmeti í gegnum sölukerfi Islenska fiskmarkaðarins sem Fiskmarkaður Vestmannaeyja er aðili að. Sigmar Georgsson, kaupmaður í Vöruvali, hefur nýtt sér þessa þjónustu. Segist hann hafa fengið vörur á mjög góðu verði á uppboðunum sem haldin eru einu sinni í viku. Sérstaklega á þetta við kjötvörur sem hefur komið fram í lægra verði en hann hefur náð að bjóða áður. Markaðurinn, sem er uppboðs- markaður, er á Selfossi og em það einkum bændur af Suðurlandi sem bjóða þar kjöt og grænmeti. Einnig hefur verið í boði Mývatns-silungur og hörpudiskur frá Stykkishólmi. „Ég byrjaði að nýta mér þessa þjónustu fyrir fjórum eða fimm vikum. Það tók tíma að læra á uppboðskerfið en eftir að maður náði tökum á því hef ég verið að gera góð kaup,“ segir Sigmar. Hann hefur keypt kjöt, grænmeti og Mývatnssilung í gegum markaðinn. „Mest hef ég keypt af svínakjöti og svolítið af lambakjöti. Hef ég gert mjög góð kaup, sérstaklega í kjöti og hefur mér ekki áður tekist að fá það á Ingimar Georgsson hjá Heild- verslun Karls Kristmannssonar og Sigmar bjóða í kjöt og grænmeti á Fiskmarkaðnum á þriðjudaginn. eins hagstæðu verði." Sigmar segir að viðskiptavinir sínir hafi strax fengið að njóta hagstæðra innkaupa. „Um daginn var ég með nýja svínabóga og svínahnakka á mjög góðu verði og í síðustu viku var niðursagað súpukjöt og úrbeinaðir frampartar á verði sem er langt fyrir neðan venjulegt verð,“ sagði Sigmar að endingu. Á bæjarstjórnarfundi á þriðju- daginn var samþykktur samn- ingur um yfirtöku bæjarins á málefnum fatlaðra í bænum frá ríkinu. Samningurinn er gerður við félagsmálaráðuneytið og felur í sér að Vestmannaeyjabær taki að sér að veita fötluðum þá þjónustu sem þeir eiga rétt á lögum samkvæmt. Tekur bærinn að sér verkefni svæðisskrifstofu Suðurlands í málefnum fatlaðra, sambýlið við Vestmannabraut, Kertaverk- smiðjuna Heimaey, dagvistun og skammtímavistun að Búhamri 17, leikfangasafn og frekari liðveislu. Er þetta gert í samræmi við lög um reynslusveitarfélög og hefur fjár- málaráðuneytið ábyrgst fjárhagslið samningsins. í samningum segir að meginmarkmið samningsins sé að færa stjóm og ábyrgð á þjónustu við fatlaða á eina hendi, þ.e. Vest- mannaeyjabæ og stuðla um leið að betri nýtingu á því fjármagni sem veitt er til málaflokksins og bættri þjónustu við fatlaða. Málaflokkurinn mun heyra undir félagsmálaráð bæjarins en yfirumsjón verður í höndum framkvæmda- nefndar um reynslusveitarfélög en félagsmálastofnum bæjarins mun annast daglegan rekstur. Framlag til málaflokksins frá ríkissjóði verður 31,7 milljónir á næsta ári, 32 milljónir 1998 og 32,3 milljónir 1999. Núverandi starfsmenn sem sinna málefnum fatlaðra verða áfram starfsmenn rfkisins og halda öllum skyldum sínum og réttindum en starfsmenn sem ráðnir verða frá og með 1. janúar verða starfsmenn Vest- mannaeyjabæjar. Fyrirliggjandi samningur var sam- þykktur í bæjarstjóm og tekur að óbreyttu gildi 1. janúar nk. Bflaverkstæðið BRAGGINN s/f. RÉTTINGAR OG SPRAUTUN: Flötum 20 - Sími 481 1535 VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ. Græðisbraut 1 - sími 4813235 r.a r-VM.num. Alla daga n/sunnudaga Kl. 08:15 Kl. 12:00 Sunnudaga kl: 14:00 kl: 18:00 Aukaferð Föstudaga kl: 15:30 kl: 19:00 ‘Ucrjóljur hfi. BRUAR BILIÐ Sími 4812800 Fax 4812991

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.