Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Side 4

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Side 4
Fréttir ORÐSPOR - ORÐSPOR - Hvernig kemur þú fíl inn í ísskáp í þremur handtökum? Opnar hurðina á ísskáþnum, setur fílinn inn og lokar. - En hvernig kemur þú apa inn í ísskáp í fjórum handtökum? Opnar ísskápinn, tekur fílinn út og seturapann inn og lokar. - Ljónakóngurinn kallaði saman fund í frumskóginum. Hver mætti ekki til fundarins? Nú auðvitað apinn. Hann var lokaður inni íísskápnum! - Hvernig komast fílar niður úr trjánum? Þeir setjast á laufblað og bíða eftir haustinu! Ég hélt ekki. Þeir hljóta að feia sig svona rosalega vel. - Af hverju setti fíllinn tómatsósu á sæta naflann sinn? Svo hann gæti legið á bakinu og borðað franskar kartöflur. Hafnfirðingarnir Óli og Stína voru að fara í brúðkaupsferð á Hótel Örk. Þegar þau voru í hringtorginu og á leiðinni í Hveragerði setti Óli Hafnfirðingur hendina á læri Stínu. - Já.Óli, farðu lengra! Og Óli keyrði alla leið á Selfoss.... Sælkeri vikunnar - Magnús Þórarinsson HUMARRÉTTUR Þórarinn Axel Jóns- son skoraði á Magnús Þórarins- son múrara sem sælkera vikunnar. Gefum honum orð- ið: ,,Eg þakka Þórami félaga mínum fyrir áskorunina. Afrískum þjóðarréttum ætla ég að sleppa (hann bað um það) því ég veit um marga sem hafa fengið í magann af þeim. Minn réttur kemur úr íslensku sjávarfangi, sameiginlegri auðlind þjóðarinnar (eða hvað). HUMARRÉTTUR Uppskriftin er miðuð við handa fjórum(það má nota skötusel) 2 meðalstórir laukar 2 paprikur rauðar 1-2 epli 1/4 dós ananas 2,5 dl ijómi Arómat krydd Fiskikrydd Hvítlaukskrydd Smjör til steikingar Meðlæti: Ristað brauð eða hvít- lauksbrauð, ferskt salat og hrísgrjón. Eg er að hugsa um að skora á lista- kokkinn hana systur mína, Asdísi Þórarins. Ég veit að hún getur töfrað fram eitthvað gott.“ Humarinn er steiktur í 1 -2 mín á hvorri hlið. Kryddaður með arómat, fiskikryddi og hvítlaukskryddi. Humarinn er tekinn af pönnunni, eplin og ananasinn skorið í bita og steikt á pönnunni. Humarinn sett út í, rjóma hellt yfir og látið krauma litla stund. Sósuþykkni sett í eftir smekk. - Hvers vegna mála fílarnir á sér táneglurnar í öllum regnbogans litum? Til þess að geta falið sig í Smarties sælgæti. - Hefur þú einhvern tímann fundið fíl í Smartíes sælgæti? - Hvað þarf marga Hafnfirðinga til að mjólka kú? Tíu. Fjóra til að halda í spenana og sex til að lyfta kúnni upp og niður... - Hvað kallast fluga sem hefur komist inn í hausinn á Ijósku? - Geimfari. Fjölbreytt og skemmti- legt húsvarðarstarf Það gerist ekki á hverjum degi að kvenmaður sé í virðulegu húsvarðarem- bætti eins og raun ber vitni í Bamaskóla Vestmanna- eyja. Húsverðir hafa hingað til verið með typpi en Ásdís hefur sýnt það og sannað að svó þarf ekki að vera. Hún er nú afleysinga- húsvörður í Barnaskól- anum og verður fram á vor. Fyrir utan hús: varðarstöðuna er Ásdís með þekktari þjóð- hátíðargítaristum Eyjanna auk þess sem hún er sópran í Samkór Vestmannaeyja. Húsvörðurinn Ásdís sýnir Eyjamönnum á sér nýjar Fullt nafn? Þórarinsdóttir. Fæðingardagur og ár? Leyndó. Fæðingarstaður? Reykjavík. Fjölskylduhagir? Sjálfstæð fimm barna móðir. Menntun og starf? Gagnfræðingur og starfa sem afleysingahúsvörður í Barnaskólanum. Laun? Ég satt að segja veit það ekki enn. Helsti galli? Fljótfær. Helsti kostur? Á erfitt með að telja þá alla upp. Þyrfti aukablað hjá Fréttum til þess. Uppáhaldsmatur? Piparsteik með stórum sveppi ofan á og með piparsósu. Versti matur? Hræringur. Uppáhaldstónlist? Mérfinnst öll tónlist góð. Hvar myndir þú vera ef þú yrðir fluga á vegg í einn dag? I vinnuskúrnum hans Sæla eftir hádegi á föstudögum. Uppáhalds stjórnmálamaður? Halldór Blöndal. Uppáhalds íþróttamaður? Einar Ágústsson. Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Ég er í skemmtile- gasta kór á landinu, Samkór Vestmannaeyja. Hvert er eftirlætissjón- varpsefnið þitt? Allt í hers höndum. Hvaða sjónvarpsrás horfir þú mest á? Stöð 2. Uppáhaldsleikari? Robert DeNiro. Uppáhaldskvikmynd? Deer Hunter. Uppáhaldsbók? Þögla her- bergið. Hver eru helstu áhugamál þín? Söngur. Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Hið gagnstæða. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Þórsmörk. Hversu umfangsmikið starf er þetta hjá þér? Það er lítil reynsla komin á starfið en mér sýnist þetta vera heilmikið og skemmtilegt starf. Hvernig gengur með hamarinn? Eg er með hann í beltisstað. Gætir þú hugsað þér húsvarðarstarf í framtíðinni? Já já. Hver er helsti kost- urinn við starfið? Hversu fjölbreytt það er. Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð: - Bilun? Erbilun? - Viðhald? Hjálp! - Barnaskólinn? Skemmtilegur vinnustaður. Eitthvað að lokum? Égóska Vestmannaeyingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ég minni um leið á jólatónleika Samkórsins og kórs Hamarsskóla föstudaginn 20. des. kl. 20.30. Fimmtudagur 12. desember 1996 Nýfceddir Vestmannaeyingar 9 Stúlka Þann 23. nóvember sl. eignuðust Hafrún Ingadóttir og Guðlaugur Kristófersson stúlku. Hún vó 13 merkur og var49 sm. Stúlkan er í fangi bróður síns Kristófers Inga. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir. Drengur Þann 27. nóvember sl. eignuðust Ragna Birgisdóttir og Jóhann Brandur Georgsson dreng. Hann vó 16 merkur og var 56 sm. Hann er í fangi Egils bróður. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir. Stúlka Þann 24. nóvember sl. eignuðust Ágústa Sveinsdóttir og Gunnar Arni Vigfússon stúlku sem hefur yerið skírð Agnes Berg. Hún vó 17,5 merkur og var 54 sm. Á myndinni eru einnig frænkurnar Steinunn Lilja, Þóra Birgit og Helga Rut. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir. Drengur Þann 23. nóvember sl. eignuðust Annika Geirsdóttir og Jón Gísli Benónýsson dreng. Hann vó 13 merkur og var52 sm. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.