Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Qupperneq 6
SPURT&SVARAB: Opið á iaugar- dögum? Sveinn Tómasson, ríkisstjóri: „Já, þaö er opið frá kl. 10-12 á laugardögum hjá okkur í desember eins og tíökast allan ársins hring hjá ATVR t.d. í Kringlunni. Við megum ekkert auglýsa og þess vegna vissu ekki margir af þessu síöasta laugardag. Aðeins einn kúnni mætti. Ég var reyndar búinn að nefna það við þá í Reykjavík hvort ég mætti ekki auglýsa að neðri hæðin í Háskólanum væri opin fyrir hádegi á laugardögum en þeir tóku illa í það. Eg vil nota tæki- færið og benda Eyjamönnum á að opið er áÞorláksmessu til kl. 22 og á gamlársdag er opið 10 til 12. “ Ríkið í Eyjum var í fyrsta skipti opið á laugardegi. Rýmri heisókn artími Sjúkrahúsið verður með rýmri heimsóknartíma um jólin. Opið verður fyrir frjálsar heimsóknir frá kl. 14 til 21. Tilgangurinn er að fólk sé ekki bundið ákveðnum tíma heldur geti kornið þegar því hentar á tíma- bilinu kl. 14-21. Athugið að hér er aðeins átt við hátíðisdagana sjálfa. [Gluggatjöld Rúllugardínur Rimlatjöld Strimlatjöld Plíseruð tjöld Gardínubrautir Harmonikuhurðir HUSEY BYGGINGAVÖRUVERSLUN VESTMANNAEYINGA Fréttir Fimmtudagur 12. desember 1996 Jólatónleikar kórs Landakirkju nk. sunnudag: Diddú Kór Landakirkju heldur hina ár- legu jólatónleika sína í Landakirkju í Vestmannaeyjum sunnudaginn 15. desember kl. 20.30. Efnisskráin er að venju mjög fjölbreytt, en flutt verða verk eftir innlenda og erlenda höfunda, svo sem Sigvalda Kaldalóns, Ingibjörgu Þorbergs, V. Bellini, J.S. Bach, G.F. Hendel, G. Verdi, S. Adams og L. Luzzi. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn og kosta 800 kr. Einsöngvari á tónleikunum verður Sigrún Hjálmtýsdóttir og mun hún bæði koma fram með Kór Landa- kirkju og einnig syngja ein við undir- leik Guðmundar H. Guðjónssonar á orgel kirkjunnar. Þá munu þær Eva Lind Ingadóttir, Rannveig Rós Olafs- dóttir og Védís Guðmundsdóttir, sem Diddú allar eru nemendur í Tónlistar- eru samtals um 40 félagar og gestir skólanum í Vestmannaeyjum, aðstoða sem taka þátt í flulningi þessara verka. við hljóðfæraleik. I tilefni af þessum Organleikari og söngstjóri kórsins er tónleikum hefur kórinn einnig fengið Guðmundur H. Guðjónsson. liðsstyrk frá áhugasömu söngfólki og LESENDABREF - Róbert Marshall Þrjór ósttkmir og Árni Johnsen Það eru ekki margir pistlahöfundar sem íjalla á jafnskemmtilegan hátt um það sem flestir myndu kalla hvers- dagsleg málefni og Sigurg. eða skrifari eins og hann kallar sig. Oft er ég líka hjartanlega sammála honum. Það get ég þó ekki sagt um pistilinn sem birtist í síðustu viku. Þar var tekinn fyrir umfjöllun Helgarpóstsins um Arna Johnsen og meinta lis- taverkasölu hans. Skrifara þótti sú umfjöllun vera af sama meiði og baknag og öfund í garð náungans. Því er ég ekki sammála. Sú umræða sem fram hefur farið á síðum Frétta að undanfömu um þann leiða fylgifisk fámennisins, baktal og illmælgi, er vissulega þörf. Húnerþó ekki eingöngu þörf fyrir Vestmanna- eyinga heldur einnig og ekki síður fyrir hvert mannsbam. Hver einstakl- ingur verður að hugleiða með sjálfum sér hvernig hann hagar orðum sínum um aðra einstaklinga. Sjálfur hef ég þurft að taka þessi mál til allrækilegrar umhugsunar í starfi mínu sem blaðamaður og þátt- takandi í stjórnmálastarfi. Eitt er að fjalla um athæfi opinberra persóna, annað að Ijalla um sjálfar persónumar. Ég hef gagnrýnt Áma Johnsen offar en ég get rifjað upp. Mér þykir lítið til hans sem stjórnmálamanns koma. En hvers vegna? 1) Ég er ekki sammála hugmyndafræði hans. 2) Hann er ekki líklegur til að bæta kjör þeirra lægst- launuðu í landinu né útrýma kyn- bundnu launamisrétti. 3) Á sama tíma HÚSASMÍÐI SKIPAVIÐ- GERÐIR Strandvegi 80 Gengið inn að norðan Sími 481-3110 og 481-3120 • Fax 481-3109 Heimas. Kristján 481-1226 og 481-1822. Þórólfur 481-2206 og atvinnuleysi var hæst á íslandi dundaði hann sér við að koma fmm- varpi um bílnúmeraplötur í gegnum Alþingi. 4) Hann styður óbreytt ástand í handónýtri fiskveiðistjómun. 5) Hann fjallaði á Alþingi um málefni samkynhneigðra á meiðandi hátt með ómálefnalegum uppnefningum. 6) Þegar Matti Bjama greiddi fyrir hann atkvæði í þinginu sem frægt varð þá var Ámi Johnsen með þrjár mismun- andi útskýringar í íjölmiðlum (þetta er auðvelt fyrir hvem sem er að sann- reyna á bókasafninu), þannig að einhverjar tvær vom ósannar. Ég tek hér nokkur dæmi til rök- stuðnings þeirri fullyrðingu minni að mér þyki lítið til Áma Johnsens sem stjómmálamanns koma. Þetta er ekki illmælgi heldur gagnrýni sem er studd rökum. Þetta er heldur ekki gagnrýni á „einka”-persónu Áma Johnsen eða hans innri mann enda þekki ég hann ekki. Þetta er gagnrýni á stjómmála- manninn Áma Johnsen. Mann sem hefur sóst eftir því að gegna trún- aðarstörfum fyrir almenning allan og þiggur laun fyrir. Þess vegna er hann ekki undanþeginn gagnrýni. Þetta er ekki baknag vegna þess að þetta er birt opinberlega og undir nafni. í lýðræðisþjóðfélagi hafa þegnamir val. Þeir velja sér sína fulltrúa og veita þeim umboð sitt til þess að fara með þeirra mál á löggjafarsamkomunni. í lýðræðisþjóðfélagi er málfrelsi hom- steinn. Það er til þess m.a. að koma á framfæri óánægju, nú eða ánægju með skipan mála í samfélaginu. í lýð- ræðisþjóðfélagi sýna fjölmiðlar stjóm- völdum og opinbemm persónum aðhald. Vegna þess að það er réttur fólksins að vita hvemig t.d. þingmenn fara með það umboð sem þeir hafa fengið frá kjósendum. Nú er Ámi Johnsen borinn þremur þungum sökum í Helgarpóstinum. Hann er 1) sakaður um að hafa „beitt óeðlilegum þrýstingi” þegar hann býður sveitarstjómarmönnum lista- verk til kaups. 2) Hann er sakaður um að hafa notað Gallerí Borg til þess að hylja slóð sína í sölu listaverka. 3) Það kemur fram að hann hafi notað skrif- stofu Alþingis er hann pantaði 10 afsteypur af listaverki Bertels Thor- valdsen, Þrjár gyðjur og amor. Thor- valdsensafnið í Kaupmannahöfn hefur staðfest það. Skrifari kemst að þeirri niðurstöðu að það sé ekkert athugavert við það að þingmenn reyni að drýgja tekjumar með einum eða öðmm hætti. Það get- ur svo sem vel verið. I nágranna- löndum okkar er þingmönnum gert að skýra frá þeim tekjum, yfir ákveðna upphæð, sem þeir hafa umfram laun fyrir þingmennsku. Það er gert til að stuðla að gagnsæi þannig að það liggi alveg ljóst fyrir á opinberum skjölum hvar persónulegir hagsmunir þing- manna liggja. Þetta er ekki gert hérlendis, því miður. Og hér emm við komin að kjama málsins. Málið snýst um einn hlut og einn hlut aðeins: Trúverðugleika. Opinberar persónur, eins og Ámi Johnsen, verða að vera trúverðugir. Það má ekki leika neinn vafi á því að þingmenn afgreiði mál á ákveðinn hátt af annarlegum orsökum. Almenningur verður að geta treyst því að sams konar mál fái samskonar umíjöllun og afgreiðslu. Ámi Johnsen hefur ekki svarað gagnrýni HP. Það er miður. Þar Bíóið sýnir íslensku bíómyndina Djöflaeyjuna eftir sögu Einars Kárasonar í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar. Myndin gerist í hinu fræga braggahverfi í Reykjavík. Tæplega 70 þús. Islendingar hafa séð til hann það gerir er hann ekki trúverðugur. Hann segir í samtali við HP að hann hafi ekki komið nálægt neinni listaverkasölu til sunnlenskra sveitarfélaga. Þó liggur það fyrir að Ölfushreppur hefur keypt afsteypu af fyrmefndu listaverki. Óg það liggur fyrir að Ámi Johnsen keypti 10 af- steypur erlendis af sama verki. Almenningur á rétt á útskýringu. Og víst ég er nú búinn að stinga niður penna, þá er hér ein opinber fyrirspum til bæjaryfirvalda í Vest- mannaeyjum. Hefur bærinn keypt afsteypu af listaverkinu þrjár gyðjur og amor? Ég bara spyr. Róbert Marshall þessa frábæm mynd. Djöflaeyjan verður sýnd í kvöld, fimmtudag, kl. 21.00, á laugardaginn kl. 21.00 og á sunnudaginn kl. 21.00. Bíóið DASOG SÍBS Vinningar verða greiddir út föstudaginn 20. des. kl. 13.00-15.00. Umboðsmaður Djöflaeyjan í Bíóinu

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.